Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 37
segir að fyrirtækið ætli sér að vera leiðandi í gerð hágæða þátta, og hefur vonast eftir því að fá til liðs við sig þáttastjórnendur sem séu óhræddir við að leika sér með formið. Hann tekur sérstaklega fram að Netflix sjái enga ástæðu til þess að fylgja hinni viðteknu hefð bandarískra sjónvarsprása að efni sé framleitt í tveimur lengdum, 22 mínútur (hálftími með auglýs- ingum) og 45 mínútur (klukkutími með auglýsingum), þar sem dag- skrá Netflix þurfi alls ekki að lúta að úreltum lögmálum sjónvarps- dagskrárinnar. Netflix leggur gríð- arlega mikið undir í þessari innrás sinni á sjónvarpsmarkaðinn, en fyr- irtækið ætlar sér að framleiða efni fyrir um $300 milljónir á þessu ári. Sumir keppinautar fyrirtækisins hafa látið í ljós efasemdir um að tekjumódel Netflix standi undir slíkri fjárfestingu. En ef áætlanir Netflix ganga upp er ekki ólíklegt að sjónvarpsstöðvar verði að bregð- ast við þeirri þróun með ein- hverjum breytingum á sýning- artímum sínum. En jafn skrýtið og það kann að hljóma, þá er það lík- lega Internetið, sem Neflix byggir tilveru sína á, sem kann að vera helsta ástæðan fyrir því að sjón- varpsstöðvar sjái sér hag í að halda sem fastast í hið gamla módel. Ástæðan er sú gríðarlega umfjöllun sem sjónvarpsefni skapar á sam- félagsmiðlum. Í dag er erfitt að sjá sjónvarpsþætti ekki á sama tíma og allir hinir, án þess að vera fyrir löngu búinn að frétta hvað gerðist í þættinum. Þetta veit enginn betur en undirritaður sem óvart las sér til um endalok Lost áður en honum gafst færi á að sjá þáttinn. Kevin Spacey er einn aðalleikara í House of Cards. Hann hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda vestanhafs fyrir frammistöðuna í þáttunum. AFP Leikstjórinn Joel Schumacher, framleiðandinn David Fincher og aðalleikarinn Kevin Spacey í góðum gír í frumsýningarteiti. AFP Leikkonurnar Robin Wright og Kate Mara í frumsýningarteitinu. AFP Sandrine Holt er ein af leikkonunum í þáttaröðinni House of Cards. AFP 10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 GENEVA S Magnari, útvarp, iPod stöð og klukka. GENEVA M Magnari, útvarp, iPod stöð, klukka. Verð: 65.000.- Tilboð: 50.000.- Verð: 114.000.- Tilboð: 90.000.- Verð: 150.000.- Tilboð: 110.000.- www.genevalab.com GENEVA L Magnari, útvarp, iPod stöð, CD. Verð: 200.000.- Tilboð: 160.000.- GENEVA XL Magnari, útvarp, iPod stöð CD Verð: 366.000.- Tilboð: 290.000.- Standur: 30.000.- Standur: 30.000.- GENEVA M/CD Magnari, útvarp, iPod stöð og CD spilari. thdan@simnet.is ÁRMÚLA 38 - SÍMI 588 5010 Söluaðili N etflix er áskriftarþjónusta sem gerir þér kleift að streyma myndefni yfir netið, bæði bíómyndum og sjónvarpsþáttum, ekki ósvipað þeirri þjónustu sem íslensk símafyrirtæki reka yfir VOD. Netflix er hins vegar með umtalsvert meira úrval kvikmynda og þátta, sem er aðgengilegt gegn föstu 8$ mánaðargjaldi. Netflix hóf starfsemi í USA sem bréfa- DVD-mynddiskaleiga. Þú borgaðir fast gjald og fékkst sendar kvikmyndir á DVD heim til þín með pósti, og sendir þær svo aftur til baka eftir að hafa notið þeirra. Í dag er Netflix-streymiþjónustan fáanleg um alla Norður- og Suður-Ameríku, á Bretlandseyjum og Norðurlöndum, utan Íslands. Það er þó með einföldum hætti og litlum tilkostnaði hægt að nýta sér þjónustu Netflix á Íslandi. Hægt er að nýta sér VPN-þjónustu á borð við Hide My Ass, eða DNS-þjónustu á borð við Unotelly eða Playmo.tv. Áskrift að slíkri þjónustu kostar að meðaltali um 5$, og má því segja að Netflix, hingað komið, kosti um 13$ á mánuði. Þá er hægt að njóta Netflix gegnum borðtölvuna, snjallsímann eða spjaldtölvuna eða streyma í gegnum sjónvarpið frá Apple TV eða sambærilegum tækjum. Til viðbótar er hægt að nýta DNS-þjónustu til að opna fyrir þjónustu a borð við Hulu, Spotify og Pan- dora, sem eru vinsæl streymiþjónusta fyrir tónlist og myndefni, ásamt ýmsu öðru sem ekki er hægt að ná á Íslandi. ÁSKRIFT AÐ SJÓNVARPSEFNI OG KVIKMYNDUM Hvað er Netflix? ÞAÐ KOSTAR UM 13 DALI Á MÁNUÐI AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ NETFLIX FRÁ ÍSLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.