Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 34
1 DVD-spilaraþarf að
hreinsa bæði að
utan og innan. Þótt
auðveldara sé að
hreinsa DVD-spilara að
utan en að innan eru þó
nokkur atriði sem þarf að
huga að.Til að rykhreinsa tækið að utan
skal að sjálfsögðu slökkva á því áður og taka úr sambandi.
Þá skal fara yfir yfirborðið með örlítið rökum klút, líkt og
notaður er á rykugar bókahillur. Þá má strjúka aftur yfir með
alveg þurrum klút. Ekki er mælt með því að hreinsa botninn.
2 Sama grund-vallaratriðigildir um þrif
á DVD-spilara að
utan sem innan:Að
slökkva á tækinu, taka
það úr sambandi og
ekki má gleyma að
aftengja það sjónvarpinu. Gott er að færa
tækið á skrifborð þannig að vinnusvæðið
sé gott og ekki síður vel upplýst.
3 Það er afar mikilvægt aðhalda loftgötunum opnumog þrífa þau reglulega svo hitinn
úr tækinu komist út og það ofhitni ekki.Til
þess er best að nota örlítið raka tusku.Alls ekki blása
á rykið og forðist að nota rykbursta, slíkt getur þyrlað
rykinu upp og það farið lengra inn í tækið.
4 Ef myndin höktir, eðamerkið „loading” birtistog helst í margar mínútur
án þess að nokkuð gerist bendir
allt til þess að þrífa þurfi tækið að
innan. Oftast er það linsan sem
er skítug.Auðveldast og öruggast
er að kaupa sérstakan hreinsidisk
fyrir linsuna sem fæst í flestum
raftækjaverslunum.Alla jafna ef
eitthvað bendir til þess að tækið
sé bilað er þetta fyrsta ráðið sem
fólk fær áður en það sendir það í
viðgerð. Mjög góðar og ítarlegar
leiðbeiningar fylgja diskunum en
fyrir þá óöruggustu
má benda á að á
youtube er
að finna
leiðbein-
ingar-
mynd-
bönd.
5 Á youtube má finna sérstaklega gott leiðbeining-armynd á íslensku sem heitir einfaldlega „hvernig áað hreinsa geislaspilara” en sama aðferð gildir við
að hreinsa geislaspilara og DVD-spilara. Þetta myndband
sýnir enn vandlegri þrif en linsuhreinsun með aðkeyptum
búnaði en Davíð Ingi
Guðmundsson átti veg
og vanda af því að útbúa
myndskeiðið og í því
tekur hann tækið alveg
í sundur og þrífur hvern
einasta hluta þess að
innan sem utan. Davíð
er rafiðnfræðingur og
meistari í rafeindavirkjun.
6 Vitaskuld ferþað eftir þvíhve mikið
tækið er notað, hve oft
þarf að hreinsa það. Sé
miðað við meðalnotk-
un heimilis ætti tækið
að verða nokkuð
langlíft sé það hreinsað
á 6-8 vikna fresti.
7 Geymdu leiðbeiningarvísinn. Þarmá oft finna leiðbeiningar umhvernig hægt er að gera sjálfur
við smávægilega hluti, svo sem að
endurstilla spilarann.
*Græjur og tækniSífellt fleiri velja að streyma sjónvarpsþáttum og kvikmyndum með áskrift að Netflix »36GÓÐ UMHIRÐA GERIR DVD-SPILARA LANGLÍFARILáttu tækið dugaen ekki drepast
FÁTT ER LEIÐINLEGRA EN HÖKTANDI DVD-SPILARI. LÍKT OG MEÐ HEIMILIS-
BÍLINN MÁ EKKI GLEYMA AÐ HIRÐA UM TÆKIÐ OG ÞRÍFA.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is