Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Nú þegar hillir undir bolludag getur verið gott að glugga í gamlar og góðar bolluuppskriftir »32 Ó löf Erla Ingólfsdóttir matartæknir ræður ríkjum í eldhúsinu á Iðavelli, þar sem eld- að er fyrir nærri 100 manns á dag, eftir sameiginlegum matseðlum skólaeldhús- anna á Akureyri. „Lýðheilsustöð hefur lagt línurnar til að hollur og góður og ferskur matur sé á borðum. Reynt er að halda sykri og salti í lágmarki, einnig unninni matvöru. Þess er líka gætt að börnin fái pró- tein, kolvetni og fitu í réttum hlutföllum,“ segir hún. Fiskur er tvisvar í viku og kjötmáltíð jafn oft. Fimmta daginn er eitthvað létt; skyr, pasta eða græn- metisréttur. „Suma daga er maturinn orkuríkari en aðra; það er hægt að leika sér með þetta á ýmsan hátt, en hlutfall próteins, kolvetna og fitu jafnast út.“ Ólöf Erla hóf störf á Iðavelli 2006 og hóf þá að skrá allt hráefni sem þurfti og allar uppskriftir. „Þá er maður miklu fljótari að elda þegar fram í sækir, held- ur en að smakka hlutina alltaf til! Þetta spurðist út og skólayfirvöld vildu fá uppskriftirnar og nú eru þær notaðar í öllum skólum og leikskólum.“ Börnin eru mjög dugleg að borða og fúlsa ekki við neinu. Boðið er upp á morgunverð, hádegismat og síð- degiskaffi. Ólöf segir að í hádeginu sé soðinn fiskur með kartöflum og smjöri líkast til vinsælastur. „Ég er líka dálítið með fiskrétti sem börnin eru mjög ánægð með.“ Ólöf segir þau dugleg að borða grænmeti og ávexti, og hún eldar nánast allt frá grunni. „Ég fæ að vísu fiskfars hrært í hús af því að ég veit að það er gott. Annars fæ ég allan fisk ferskan, líka kjöt og við bökum sjálfar nánast alla brauð,“ segir Ólöf Erla. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson HOLLUR MATUR Í LEIKSKÓLUM Á AKUREYRI Gott og næringarríkt LEITAST ER VIÐ AÐ HAFA HOLLAN MAT Á BORÐUM Á IÐAVELLI EINS OG ÖÐRUM LEIK- SKÓLUM AKUREYRAR. SYKUR, SALT OG UNNIN MATVARA ERU Í ALGJÖRU LÁGMARKI. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Karen Irani og Lúkas Máni tóku hraustlega til matar síns í Iðavelli í vikunni. Þegar blaðamaður kom í heimsókn á Iðavelli í hádeginu á þriðjudaginn var boðið upp á mexíkóskar kjötbollur sem börnin borðuðu með bestu lyst. Voru þó að smakka þær í fyrsta skipti. „Þetta er ekki ósvipað öðrum bollum nema hvað ég nota kanil og negul í þessar,“ segir Ólöf Erla matráður. Mexíkóskar kjötbollur 500 g hakk 100 g laukur 50 g brauðmylsna 5 g hveitiklíð 1-2 tsk. salt 1 tsk. negull 1 tsk. kanel Örlítill pipar Örlítið vatn til að mýkja hakkið. Öllu hrært saman, bollurnar mótaðar, settar á bökunarpappír og bakaðar í ofni. Borið fram með kartöflustöppu og tómatmauki. Ýsa með mangó og karrí Þetta er dæmi um fiskrétt sem eru í uppáhaldi hjá börnunum á Iðavelli: 2 ýsuflök roð- og beinlaus Flökunum velt upp úr heilhveiti og sett í eldfast fat. Sósa á fiskinn: 1 dós sýrður rjómi 4 msk. mangómauk 1 tsk. hvítlauksmauk 1 tsk. karrí ½ tsk. salt 5 g kjúklingakraftur (½ teningur) ½ dl rjómi Örlítið maísenamjöl til að þykkja sósuna. Kjúklingakrafturinn og annað krydd hit- að í rjómanum, þá er mangómaukinu bætt út í og sýrða rjómanum. Sett ofan á flökin og bakað í ofni. Borið fram með hrísgrjónum, salati og e.t.v. hvítlauksbrauði. Mexíkóskar kjötbollur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.