Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2013
Heilsa og hreyfing
S
amtökin Hugarfar hafa
undanfarin ár barist
ötullega fyrir því að
vekja athygli á því sem
stundum hefur verið
kallað „hinn þögli faraldur“ –
áunnum heilaskaða. Fjöldi Íslend-
inga glímir við einhvers konar fötl-
un af völdum áunnins heilaskaða
en áætlað hefur verið að hérlendis
séu það í kringum 500 einstak-
lingar sem hljóta slíkan skaða á
hverju ári, oftast vegna umferðar-
slysa eða ofbeldisverka. Þrátt fyrir
þennan fjölda vantar mikið upp á
þekkingu á umfangi og afleiðingum
heilaskaða og vandinn er oft van-
greindur. Á sama hátt hafa úrræð-
in verið fá en stjórn Hugarfars
vonast til þess að nýjar lausnir séu
í sjónmáli, sérstaklega eftir að hafa
heimsótt og skoðað danska starfs-
stöð sem hefur hjálpað fjölda heila-
skaddaðra þar í landi.
„Tilgangurinn með ferðinni var
að skoða aðstæður fyrir fólk með
heilaskaða í Danmörku því við vilj-
um gjarnan koma á miðstöð líka
þeirri sem þeir hafa þar,“ segir
Anna Soffía Óskarsdóttir, stjórn-
armeðlimur í Hugarfari. Hún flaug
ásamt mæðgunum Dís Gylfadóttur
og Stellu Guðmundsdóttur til Dan-
merkur fyrir nokkrum vikum þar
sem þjónustu- og aðstöðumiðstöð
fyrir heilaskaddaða var skoðuð. Dís
er sjálf þolandi áunnins heilaskaða
en fyrir um tíu árum lenti hún í al-
varlegu bílslysi, fékk mikla höfuð-
áverka og var mörg ár að vinna úr
þeim og átta sig á hvaða afleið-
ingar þeir hefðu haft fyrir hennar
daglega líf og líðan.
„Flestir fá lítinn skaða en það er
alveg öruggt mál að heilaskaði er
mjög vangreindur hjá fólki. Börn
fá höfuðáverka, til dæmis heila-
hristing, og svo er þeim ekkert
fylgt eftir. Vandamálin koma þá
jafnvel ekki fram fyrr en barnið er
orðið unglingur og þá skilur eng-
inn af hverju barnið missir einbeit-
inguna. Þekkingin er því miður al-
veg ofboðslega lítið. Það er mjög
algengt á bráðadeildum, hér- og
erlendis, að það komi inn mann-
eskja úr slysi og líkamlegir áverk-
ar eru skoðaðir en jafnvel ekki
skráð að viðkomandi hafi fengið
höfuðhögg og það þurfi að fylgjast
með heilaskaða. Ef það koma ekki
fram augljós merki um bjúg og
slíkt vantar oft upplýsingar,“ segir
Anna Soffía.
Þykir afar vel lukkað
Miðstöðin danska kallast Hoved-
huset og er sú fyrsta sinnar teg-
undar í Evrópu. Hugmyndafræðin
er hliðstæð þeirri sem notuð hefur
verið fyrir þjónustu fólks með geð-
raskanir, svokölluð Club House,
sem snýst um að virkja einstak-
linga og veita þeim hlutverk, minni
og stærri. Hver og einn einstak-
lingur fær aðstoð við að rækta
hæfileika sína og leita hæfileika og
möguleika sem oft eru aðrir eftir
áverkann en þeir voru fyrir áverk-
ann. Margir einstaklingar hafa
komist á nýja staði í lífinu, vinnu
og menntað sig, eða einfaldlega
fundið sér tilveru í Hovedhuset.
Framtakið hefur vakið mikla at-
hygli í Danmörku og fimm mið-
stöðvar sem byggjast á sömu hug-
myndafræði hafa verið opnaðar
síðustu árin.
„Það brennur mjög á heilasködd-
uðum að finna samastað og öðlast
hlutverk. Eftir að heilaskaðateymið
á Reykjalundi var lagt niður á síð-
asta ári hefur dregið verulega úr
endurhæfingu fyrir fólk með heila-
skaða eftir að allra fyrstu endur-
hæfingunni lýkur. Við sóttum um
styrk til Öryrkjabandalagsins til að
fara utan og kynna okkur þessa
starfsemi því við viljum byggja upp
einhvers konar þjónustu af sama
tagi hér heima. Skortur á framtaks-
semi og verkstol eru einkenni sem
margir með áunninn heilaskaða
hafa og því er svo sérstaklega mik-
ilvægt að þeim sé veitt aðstoð sem
þessi; við að finna sér hlutverk og
markmið í daglegu lífi.“
Í Hovedhuset er m.a. fólk sem
kemst ekki út á vinnumarkaðinn
aftur vegna sinna skerðingar. Í
miðstöðinni fær það tækifæri til að
taka þátt í starfsemi hússins, fá
hlutverk í vinnuhóp og skipta máli.
„Það skiptir máli að starfsfólk sé
til dæmis ekki of margt því partur
af hugmyndafræðinni er að störfin
sem tengjast húsinu séu ekki
gervistörf – það sé raunveruleg
þörf fyrir fólkið og þar til ráðið
starfsfólk geti ekki sinnt öllum
verkefnum. Það getur verið allt frá
því að laga kaffi og skera niður
brauð upp í að sinna einhverju
stærra. Þetta er því vinnusamfélag
sem er skapað þarna og með þessu
er fólk byggt upp en skortur á
sjálfsöryggi og sjálfstrausti er eitt-
hvað sem allir sem hlotið hafa
heilaskaða þekkja vel,“ segir
Stella.
Ekki síður er leitað að hæfileika
hvers og eins, fólki hjálpað að
þekkja sína hæfileika, jafnvel þá
sem það hefur ekki komið sjálft
auga á, en margir sem glíma við
heilaskaða hafa skert innsæi í eigin
mál. „Svo eru aðrir einstaklingar
hjá hverjum ekki er búið að greina
til fulls, hversu mikil starfsorkan
sé og þeir vita ekki hvaða þætti í
eigin fari þeir geta nýtt sér í
starfi. Þarna eru þeir aðstoðaðir
við greiningu á sínum sterku hlið-
um og hvaða tillit þeir þurfi að
taka til sín þegar þeir eru orðnir
virkir á vinnumarkaði.“ Þess má
geta að fólk úr báðum þessum hóp-
um; sem er á örorkubótum eða er
á leið í örorkumat, hefur í kjölfarið
farið út á vinnumarkaðinn. „Það
var gaman að sjá að uppi á vegg í
miðstöðinni úti var mynd af fyrr-
verandi félögum sem voru komnir í
vinnu annars staðar – launaða eða
sjálfboðaliðavinnu. Þetta eru ekki
endilega alltaf mjög stór störf, einn
þarna hafði orðið aðstoðarmaður
húsvarðar og svo eru nokkrir sem
hafa farið og menntað sig í fram-
haldinu,“ segir Anna Soffía.
Tekur langan tíma
að fóta sig á ný
Dís segir að miðstöð sem Hoved-
huset skipti miklu máli til að ein-
staklingar sem lenda í að fá heila-
skaða nái að byggja sig upp og
fóta sig í veröldinni eftir fyrstu
endurhæfingu. „Þegar maður út-
skrifast eftir fyrstu endurhæfingu,
í mínu tilfelli Grensásdeild, er
maður kannski líkamlega orðinn
fínn en hausinn á manni virkar alls
ekki eins og hann á að gera.“ Dís
var 19 ára þegar hún lenti í bílslys-
inu og breyttist hún mikið við slys-
ið eins og mjög gjarnan gerist þar
sem ákveðnir þættir í persónuleik-
anum verða jafnvel öðruvísi. Sjö ár
liðu þangað til hún komst upp á
lag með að geta stundað nám á
nýjan leik. Með stuðningi fjöl-
skyldu og vina, vinnu og elju, náði
hún tökum á námsaðferðum sem
hentuðu henni og síðastliðið vor út-
skrifaðist hún með BA-gráðu í guð-
fræði.
„Mér leist rosalega vel á þetta
og ég er viss um að þetta myndi
nýtast mörgum vel. Fólk með
heilaskaða skortir oft frumkvæði
að því að leita sér hjálpar og áttar
sig oft ekki á vandanum – sér hann
ekki. Þetta er endurhæfing sem
getur hjálpað fólki með heilaskaða
að þekkja og nýta styrkleika sína
og verða þátttakendur á ný,“ segir
Dís en sjálf varð hún talsvert
breytt eftir slysið og þurfti að
kynnast sjálfri sér alveg upp á nýtt
og hvar hennar styrkur lægi. Per-
sónuleikabreytingar verða mjög oft
til þess að fólk týnir vinum og ein-
angrast. Hovedhuset gerir fólki
kleift að mynda ný vinasambönd
og bæta félagsfærni sína, sé henni
ábótavant.
„Starfsemi sem þessi yrði eins
konar þjónustumiðstöð þar sem
fólk gæti komið og fengið aðstoð
við það sem það er að takast á við
í daglegu lífi. Sérstaklega væri
þetta mikilvægt fyrir ungt fólk sem
er með heilaskaða og getur fengið
stuðning við að læra um leið og
það leggur sitt af mörkum og verð-
ur hluti af samfélagi. Þarna finnur
fólk fyrir því að það skiptir máli,
er ekki bara þiggjendur heldur líka
þátttakendur. Mín sýn er sú að hér
á landi gætum við byrjað með eitt-
hvað lítið. Til dæmis starfsemi sem
væri part úr degi, tvisvar til þrisv-
ar í viku. Til þess þarf auðvitað
fjármuni, húsnæði og þó ekki væri
nema einn starfsmann,“ segir Anna
Soffía og bætir við að barátta fyrir
miðstöðinni sé eitt helsta baráttu-
mál Hugarfars um þessar mundir.
„Það er mjög gott slagorðið sem
dönsku samtökin fyrir fólk með
áunninn heilaskaða nota úti og það
segir mikið: Lífi sem er bjargað
verður að lifa.“ Hovedhuset verður
kynnt næsta fimmtudag, 14. febr-
úar klukkan 20, á fundi Hugarfars
í SÍBS-húsinu að Síðumúla 6.
Lífi sem er bjargað verður að lifa
ÁRLEGA VERÐA UM 500 ÍSLENDINGAR FYRIR HEILASKAÐA. ÚRRÆÐI HÉRLENDIS FYRIR ÞESSA EINSTAKLINGA ERU AFAR FÁ EFTIR AÐ FYRSTU MEÐFERÐ
LÝKUR. FÉLAGIÐ HUGARFAR KYNNIR Í NÆSTU VIKU HUGMYNDAFRÆÐI DANSKRAR MIÐSTÖÐVAR FYRIR FÓLK MEÐ HEILASKAÐA SEM HEFUR VAKIÐ
MIKLA ATHYGLI YTRA. VONIR STANDA TIL AÐ SAMS KONAR STARFSEMI GETI ORÐIÐ TIL HÉRLENDIS.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Stjórnarmeðlimir Hugarfars sem heimsóttu Hovedhuset, frá vinstri: Dís Gylfadóttir, Stella Guðmundsdóttir og Anna
Soffía Óskarsdóttir. Dís var ekki fær um að stunda nám í sjö ár vegna heilaskaða sem hún hlaut í umferðarslysi.
Forstöðukona Hovedhuset, Ulla Hasling, fer yfir dagskipulagið. Miðstöðin er
sú fyrsta sinnar tegundar í Evrópu en fimm aðrar hafa verið opnaðar í landinu.
Stærri og smærri verkefni liggja fyrir í
Hovedhuset en allir fá þar hlutverk.
*Þegar maður út-skrifast eftirfyrstu endurhæfingu,
í mínu tilfelli Grens-
ásdeild, er maður
kannski líkamlega
orðinn fínn en haus-
inn á manni virkar
alls ekki eins og
hann á að gera.