Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2013 Matur og drykkir til að fylla bollurnar með. Kólesteról- lausar bollur, 20 stk. 500 g hveiti 1 msk. sykur 1 msk. þurrger 1 dl matarolía 4 dl fingurvolgt vatn úr krananum 8 heilar kardimommur eða ½ tsk. dropar 3 stífþeyttar eggjahvítur kakó, flórsykur og saft eða vín ofan á 1. Steytið kardimommur, setj- ið í hrærivélarskál ásamt hveiti, sykri, þurrgeri, matarolíu og vatni og hrærið eða hnoðið deig. 2. Leggið stykki yfir skálina og látð lyfta sér í minnst 3 klst. á s o mm í u r á eldhúsborðinu, en mun lengur í kæliskáp. 3. Stífþeytið þá eggjahvíturnar og hrærið saman við deigið í hrærivél. Nú verður deigið klístrað og ójafnt. 4. Búið til 20 bollur með skeið og raðið á bökunarpappír á bök- unarplötu. 5. Hitið bakaraofn í 50°C, setj- ið bollurnar í ofninn og látið vera þar í 10 mínútur, aukið þá hitann í 200°C og bakið áfram í 15–20 mínútur. Æskan 1977 Frjáls þjóð 1962 Morgunblaðið 2001 Vikan 1975 DV 1985 Gluggað í gamlar bolluuppskriftir Í ELDRI DAGBLÖÐUM OG TÍMARITUM LEYNIST FJÁRSJÓÐUR BOLLUUPPSKRIFTA FRÁ ÖLL- UM TÍMUM SEM NÚTÍMAFJÖLSKYLDUR GÆTU HAFT GAMAN AF AÐ SPREYTA SIG Á. HÉR MÁ SJÁ ÖRLÍTIÐ BOLLUÚRKLIPPUSAFN ÚR ÍSLENSKUM BLÖÐUM FYRR OG NÚ. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is skriftunum sem safnað var saman í tilefni bolluvertíð- arinnar eru meðal annars þessar hefðbundnu en einnig aðrar útfærslur svo sem Stínubollur, Kisubollur, Snjó- kúlur og Appelsínubollur. Þá má í einni uppskriftinni frá árinu 1960 læra að útbúa svokallaða „svani“ úr klassísku vatnsdeigi sem er áskorun fyrir þá metnað- argjörnu. Margar þessara uppskrifta eru frá 7. og 8. áratugnum en einni úr nútímanum fyrir þá með glú- tenóþol var þó haldið til haga. Eins getur verið gaman að skoða auglýsingu frá árinu 1937 þar sem Kaupfélag Eyfirðinga auglýsir hátt í tuttugu tegundir af bollum sem seldar voru á bolludegi þeim fyrir um 76 árum. M argir leggja helgina undir bollubakstur enda er bolludagur rétt handan við hornið. Þrátt fyrir að bollur fáist um allar trissur, af öllum stæðrum og gerðum, eru þeir ófáir sem láta engan bolludag líða án heimabaksturs. Þeir sem hafa látið bakaríið duga hingað til og eiga ekki, enn í það minnsta kosti, „sína“ uppskrift geta skoðað uppskriftabækur fjölskyldunnar. Þar leynast gjarnan bolluuppskriftir frá eldri kynslóðum sem hafa kannski ekki verið brúkaðar í áraraðir. Nú eða fengið eina í þessu úrklippusafni að láni en úrklippurnar eru allar fengnar úr gagnagrunninum timarit.is. Bolluupp-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.