Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Blaðsíða 47
10.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
nota yfir hátíðirnar frá yndislegum manni
sem setti sig í samband við mig. Þar sem
fjölskylda hans hafði áður lent í svipuðu
áfalli vildi hann hjálpa mér í gegnum þessa
erfiðu tíma. Þegar ég var einungis búin að
vera með markaðinn minn opinn í þrjá tíma
byrjuðu að berast kvartanir frá annarri
verslun í Kringlunni um að vöruverðið hjá
mér væri of lágt. Ég ræddi við markaðs-
stjórann þeirra og mér var sagt að ég mætti
vera með jólamarkað eða tilboðsmarkað eins
lengi sem það héti ekki útsala og var búin að
ræða við framkvæmdastjórann þeirra um að
ég myndi auðvitað ekki vera með sömu
vörur og einhver annar í húsinu, en svo sól-
arhring eftir opnun var mér sagt að rekstr-
arfélag Kringlunnar væri búið að fá á sig
kæru og einnig sá sem í góðmennsku sinni
lánaði mér húsnæðið sem er í hans einka-
eign. Þetta var mér auðvitað rosalegt áfall
og varð ég mjög reið því að ég var búin að
fylgja öllum þeim reglum sem búið var að
setja mér, en í ljósi þessa alls varð ég að
loka og flytja aftur sem er auðvitað mjög
tímafrekt og kostnaðarsamt.“
Og enn er Manía til húsa á Laugavegi 51,
Kringlan er ekki á dagskrá. „En ég er núna
að leita mér að nýrri skrifstofu.“
Keypti brúðarkjól 16 ára
María Birta er mikið fyrir eldri hluti en
móðir hennar, Sigurlaug Halldórsdóttir flug-
freyja, smitaði dótturina af söfnunarárátt-
unni. Eitthvað sem hefur þó elst af Maríu
Birtu að hennar sögn. „Móðir mín er með
mikla söfnunaráráttu og þá sérstaklega fyrir
gömlum munum og geymir næstum allt. Ég
var með þessa áráttu á sínum tíma og byrj-
aði að safna símum en mér finnst gamlir
símar svo miklu flottari en þessir nýju, en
blessunarlega er ég laus við þetta í dag. Ég
seldi svo símana sem margir hverjir eru
stofudjásn í dag því þeir voru allir alveg ein-
staklega vel með farnir.“
María Birta hefur ekki alltaf fetað þá slóð
sem allir aðrir feta og hún tryggði sér brúð-
arkjól þegar hún var aðeins 16 ára gömul. Þá
var hún stödd í New York með móður sinni.
„Mamma manaði mig í að máta einn, svo fór
hún næstum að gráta þegar hún sá mig í
honum, enda alveg ofboðslega fallegur silki-
kjóll og hún sagði að ég yrði að kaupa hann,
svo þetta endaði þannig að ég keypti hann
gegn því að mamma myndi halda á honum
heim því hann var svo þungur.“
María Birta hefur verið inn í tískunni og
margir öfunda hana af því að geta klætt sig
nánast í hvað sem er. Allt fer henni vel. „Ég
held að flestar ungar stelpur hafi áhuga á
tísku en annars er pabbi með mjög gott auga
og mamma líka fyrir fallegri hönnun svo ætli
áhuginn minn komi ekki frá þeim báðum.“
Elskar 101 Reykjavík
María Birta hefur gífurlega orku og útgeisl-
un sem aðrir taka eftir. Hún er alltaf að
finna sér nýja hluti að prófa og því ekki úr
vegi að spyrjast fyrir um hvernig hún hafi
verið sem barn? „Ég var rosalega mikill
orkubolti þegar ég var yngri og það hefur
ekkert breyst. Ég fékk snemma mikinn
áhuga á klifri og það hræddi mömmu oft
mikið, því hún þurfti stöðugt að hafa auga
með því hvort ég væri nokkuð að fara mér að
voða,“ segir hún og brosir.
Hún hefur ferðast víða en kann best við
sig þar sem hún er stödd núna, í miðbæ
Reykjavíkur. „Af þeim stöðum sem ég hef
búið á er best að búa í 101, klárlega. Ég hef
aldrei verið ánægðari en einmitt á þeim stað
sem ég bý á núna, er að leigja fallega og
bjarta íbúð á Laugaveginum, en annars gæti
ég hugsað mér að búa í Hong Kong, New
York, LA og Dóminíska lýðveldinu af þeim
stöðum sem ég hef komið á.“
Kommentakerfin hafa sína
kosti og galla
María Birta hefur verið áberandi í þónokk-
urn tíma enda stór og mikill karakter. Gert
ýmsa hluti sem vakið hafa athygli og leikið í
bíómyndum þar sem hún er óhrædd við að
sýna nekt. Eitthvað sem athugasemdakerfin
á vefsíðum hafa ekki þagað yfir. „Mér finnst
kommentakerfin hafa sína kosti og galla, en
annars eru alltof margir sem hugsa ekki áður
en þeir setja inn eitthvað ærumeiðandi eða
hreinlega eitthvað illkvittið og stundum alveg
að tilefnislausu, en sjálf hef ég ekki mikið
lent í aðkasti inni á kommentakerfum, en
auðvitað er alltaf einhver einn og einn sem er
ósáttur við það sem maður er að gera eða
stendur fyrir en ég læt það ekkert á mig fá.“
Dýravinur með byssuleyfi
Stutt er síðan María Birta fékk sér skot-
vopnaleyfi en hún hefur ekki gert það upp
við sig hvort hún ætlar að sækja um að
veiðahreindýr á næsta ári. „Ég hef nú ekki
farið í neinar veiðiferðir síðan ég fékk skot-
veiðileyfið, en mér finnst mjög gaman að
skjóta leirdúfur. Ég hef ekki enn ákveðið
hvort ég sæki um að veiða hreindýr, en mig
grunar nú að ég muni gera það. Ég fékk að
fljóta með á hreindýraskyttiríi í fyrra og
þótti það alveg ótrúleg upplifun.“ Þrátt fyrir
að vera með byssuleyfi er María Birta mikill
dýravinur og hefur átt fjöldann allan af dýr-
um en núna er það kanínan Lúlli sem á hug
hennar og hjarta. „Ég elska öll dýr og hef
átt þau flest, slöngu, skjaldbökur, hamstra,
ketti, hunda, fiska, snigla, maríuhænur og
svona mætti lengi telja, en kanínur eru í
miklu uppáhaldi og Lúlli er án efa sætasta
kanína í heiminum,“ segir hin magnaða
María Birta áður en hún hleypur af stað.
Hún hefur ekki endalausan tíma til að sitja í
viðtali.
*„Ég var rosalega mikill orkubolti þegar ég varyngri og það hefur ekkert breyst. Ég fékk snemmamikinn áhuga á klifri og það hræddi mömmu oft
mikið, því hún þurfti stöðugt að hafa auga með því
hvort ég væri nokkuð að fara mér að voða.“
María Birta er ein af þremur leikkonum
sem tilnefndar eru sem besta leikkona í
aukahlutverki á Edduverðlaununum sem
afhent eru laugardagskvöldið 16. febrúar.
Hún er tilnefnd fyrir hlutverk sitt sem
Dagný í kvikmyndinni Svartur á leik í
framleiðslu ZikZak eftir samnefndri bók
Stefáns Mána í leikstjórn Óskars Þórs
Axelssonar, en myndin er tilnefnd til 14
Edduverðlauna.
Vantar fleiri kvenhlutverk
Athygli hefur vakið að aðeins þrjár konur
voru tilnefndar í hvorum verðlaunaflokki,
aðal- og aukahlutverki, en fimm karlar í
sambærilegum flokkum.
María Birta segir ljóst að upp á skorti
að nægilega mörg kvenhlutverk séu skrif-
uð í sjónvarpi og kvikmyndum.
„Nei, við vorum ekki í jafnbitastæðum
hlutverkum í fyrra og strákarnir og hvað
þá jafnmörgum hlutverkum, hvorki í bíó-
myndum né sjónvarpsseríum. Því miður
er það svo að það það eru alltaf fleiri
hlutverk skrifuð fyrir karla í leikhúsi og
kvikmyndaheiminum,“ segir María Birta.
María Birta í hlutverki Dagnýjar í kvikmyndinni Svartur á leik sem gerist í undirheimum.
Tilnefnd fyrir Dag-
nýju í Svartur á leik
Þorvaldur Davíð Kristjánsson og María Birta í hlutverkum sínum í Svartur á leik.
Í XL leikur María Birta ástkonu drykkfellda þingmannsins Leifs sem Ólafur Darri leikur.
María Birta í hlutverki Æsu í kvikmyndinni XL eftir Martein Þórsson.
María Birta rekur
sína eigin verslun og
leikur í kvikmynd-
um þess á milli, en
það
er þó ekki nóg fyrir
hana. Hún er lítið
fyrir lognmollu og
vill hafa nóg að gera
í lífinu og er óhrædd
við að prófa eitthvað nýtt. Meðal
þeirra íþróttagreina
eða tómstunda sem
hún stundar eða
hefur að minnsta
kosti
prófað eru skotveið-
ar (hún fór á hrein-
dýraveiðar í fyrra)
og klettaklifur. Þá
æfir
hún fallhlífarstökk
af kappi og hefur
stundað köfun. Hún
er að
læra
flug og auk þess að
hafa prófað sund-
ballett og súludans
(pole-
fitness) fer hún á
snjóbretti eins og
oft og hún getur.
ÞAÐ SEM MARÍA BIRTA
HEFUR PRÓFAÐ