Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2013 20–70% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM NEMA FERÐATÆKJUM PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 00 77 ISA- ÚTSA LA ELLIN GSEN ALLAR VÖRUR FRÁ DEVOLD MEÐ 20% AFSLÆTTI SNOWLINE KEÐJUBRODDAR 7.192 KR. VERÐ ÁÐUR 8.990 KR. rækilega um. Hellti sér út í viðskiptalífið og réði sig til starfa hjá fisksölufyrirtækinu Cocoon. Það var síðar keypt af fisksöluris- anum Stolt og gegndi Eyþór um árabil for- stjórastöðu þar á bæ. Þegar Eyþór yfirgaf Ísland fyrir þremur áratugum ætlaði hann aldrei að koma aftur; Ísland væri ekkert land fyrir samkyn- hneigða. Hann veit um fleiri sem fóru á svip- uðum tíma og hafa aldrei snúið aftur. En mikið vatn hefur runnið til sjávar og í dag er Eyþór gríðarlega stoltur af þjóð sinni. „Viðhorfsbreytingin er gríðarleg, rétt- indum samkynhneigðra hefur fleygt fram og baráttan sennilega hvergi lengra komin í heiminum.“ Spurður hvort líta megi svo á að henni sé í raun lokið kinkar hann kolli. „Það er alla vega mjög nálægt því eftir að okkur var leyft að gifta okkur í kirkju. Vel má líta svo á að það hafi verið lokaskrefið. Þá er heillandi að fylgjast með því hversu opið samfélagið er orðið fyrir baráttu trans- genderfólks. Allt er þetta ríkri réttlætis- kennd Íslendinga að þakka.“ Römm er sú taug og árið 2007 ákvað Ey- þór að flytja aftur heim til Íslands eftir 24 ára dvöl í útlöndum. „Á þeim tímpunkti hugsaði ég með mér að það væri nú eða aldrei. Junya var opinn fyrir þessu og við létum því slag standa. Hann hafði oft komið með mér heim og heillaðist af landinu og góðri réttindastöðu samkynhneigðra. Honum þótti kyrrðin og næðið líka spennandi, í Tók- ýó heyrir maður nágrannana bursta í sér tennurnar! Hvað mig varðar hefur landið sjálft alltaf haft gríðarlegt aðdráttarafl og svo er það fjölskyldan. Eftir því sem árunum fjölgar kann maður betur að meta sína nán- ustu.“ Læknasetur og bóndabýli Eyþór hafði fest kaup á gamla læknabú- staðnum á Reykjalundi, Arnarfelli, strax árið 2003, svo að þeir Junya hefðu fastan dvalar- stað á heimsóknum sínum til landsins. Þang- að fluttu þeir árið 2007. Ári áður höfðu þeir eignast innsta býlið í Ólafsfirði, Bakka. „Það er saga að segja frá því,“ segir Eyþór. „Árið 2005 vorum við Junya á ferðalagi fyrir norð- an og það sprakk á bílnum hjá okkur til móts við Bakka. Eitthvað gekk illa að skipta Eyþór og Junya á ferðalagi í Noregi 2006. Junya hafði mikið yndi af hundum. Eyþór og Junya í Borgarnesi í fyrstu Íslandsheimsókn þess síðarnefnda árið 1990.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.