Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013 Heilsa og hreyfing Blanda þessi er borin í hárið að kvöldi dags og núið svo um það að hár og hörund verði þvalt af olíunni. Þjett kollhetta er bundin yfir hárið og varast að koma of nærri ljósi eða eldi. Að morgni er kollhettan tekin af og hárið þvegið úr heitu vatni og sápu. Venjulega drepst öll lús og nit, en gera má ráð fyrir að eitthvað hafi þó undan sloppið. Þess vegna er borið aftur í hárið á sama hátt eftir vikutíma, og bregst þá sjaldan að alt sje dautt. Karlmenn ættu að klippa hárið snöggt áður en borið er í það, en ungir piltar ættu ætíð að vera snoðklipptir. Öllu þrifalegra og þægilegra er „kúprex“ lyf, sem getið er um síðar. Það er lyktarlaust.“ Lokaorðin í greininni eru áskorun til ís- lensku þjóðarinnar að útrýma lúsinni: „Land- hreinsun væri það, ef vjer gætum útrýmt allri lús úr landinu. Engin þjóð í heimi hefir unnið það afreksverk. Svo ríkt er sinnuleysið og gamall vani. Ef vjer vildum, gætum vjer útrýmt lúsinni á einum mánuði, svo hún væri hvergi til. Á einu ári væri það hægðarleikur. Húsmæður vorar og kvenfjelög hafa hjer þarft verk að vinna. Vilt þú styðja gott mál og hjálpa til? Undir þjer er það komið, hvort þetta tekst.“ HÖFUÐLÚSIN HRELLIR Lýs og menn HÖFUÐLÚSIN HEFUR FYLGT MANNINUM FRÁ ÖRÓFI ALDA. BARÁTTAN VIÐ HANA STENDUR ENN YFIR OG HEFUR ÝMSUM BRÖGÐUM VERIÐ BEITT. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Samkvæmt þessu gæti mikil notkun tölvu- leikja í litlum snjallsímum og spjaldtölvum verið vinur lúsarinnar. Lúsin hefur lengi verið áhyggjuefni lands- manna eins og sjá má í grein í Morgunblaðinu frá 5. mars 1925. Þar eru gefin góð ráð um hvernig eigi að losna við lúsina. Steinolía til bjargar „Með daglegri kembingu á hárinu og góðum kambi má á nokkrum tíma útrýma lúsinni. Þó gengur þetta fljótar með lyfjum. Tveimur hlutum af steinolíu er blandað saman við einn hluta af bómolíu eða skilvinduolíu. A llir geta fengið lús og lúsasmit er ekki merki um óþrifnað en lúsa- faraldur virðist koma upp á hverju ári. Eins og fram kemur á vef Heilsugæslunnar smitast lúsin nær eingöngu við beina snertingu. „Það er sáralítil hætta á að smitast af umhverfinu en það er möguleiki að smitast af greiðum/burstum og höfuðfötum. Lús sem dottið hefur úr höfði verður fljótt löskuð og veikburða.“ Dr. Guðjón Magnússon skrifaði greinina „Höfuðverkur á hverju hausti?“ í tímaritið Heilbrigðismál árið 1983. Þar kemur meðal annars fram að höfuðlús hafi fylgt manninum frá örófi alda en það sjáist meðal annars á því að lús finnist á steingerðum líkamsleifum manna í Ameríku, Asíu og Afríku. Þar segir líka: „Baráttan gegn lúsinni virðist lengi vel hafa verið í lágmarki. Þannig segir í Íslensk- um þjóðháttum séra Jónasar Jónassonar (1856-1918) að flær og lýs hafi verið algengir gestir á flestum bæjum og „virtist svo sem sumir væru á því að þær væru heldur til holl- ustu og heilsubótar, drægju illa vessa út úr líkamanum. Sumir héldu að ekki væri hættu- laust að eyða lúsinni, heilsunnar vegna. Var almennt álitið að hún sprytti innan úr holdi manns og væri því ekki til neins að ætla sér að eyða henni útvortis. Þó vildu flestir heldur vera lausir við þessa gesti sem von var.“ Á meginlandi Evrópu mun heldra fólk á sautjándu og átjándu öld hafa gripið til þess ráðs, til að losna við höfuðlús, að krúnuraka sig og nota hárkollu.“ Tölvuleikir ýta undir lúsafaraldur Í grein í Tímanum frá 1984 er vísað í tímarit- ið Ingeniøren þar sem segir að vinsældir tölvuspila ýti undir lúsafaraldurinn: „En mesti vandinn stafar af því hvað tölvu- spilin eru lítil. Yfirleitt sitja börnin saman tvö og tvö með höfuðin þétt saman til þess að geta betur séð á spilið. Og þar með rann upp gullöld fyrir höfuðlúsina.“ Tímaritið mælir með því að öll börn sem spili tölvuspil verði aflúsuð vikulega. Lúsin kann best við sig í hnakka, á hvirfli og aftan við eyru. * Landhreinsun væriþað, ef vjer gætumútrýmt allri lús úr land- inu. Engin þjóð í heimi hefir unnið það afreks- verk. Svo ríkt er sinnu- leysið og gamall vani. Á vef Heilsugæslunnar, sem er www.heilsugaeslan.is, eru gefin góð ráð um hvernig eigi að leita að lús og losna við hana. Leitin að lúsinni „Leitið að lús hjá barni ykkar og öðru heimilisfólki reglu- lega samkvæmt eft- irfarandi leiðbein- ingum: Skoðið hárið vel undir sterku ljósi, lúsin kann best við sig í hnakka, á hvirfli og aftan við eyru. Eggin/nitin eru eins og litlir hnúðar á hárinu. Nitin er oft ljós, dökk eða silf- urlit (tóm). Lúsin límir þau föst, þess vegna strjúkast þau ekki auðveldlega af hárinu. Það er tiltölulega auðvelt að sjá full- vaxna lús, hún er 2-3 mm að lengd, oft grá, dökk eða ljósbrún. Hins vegar get- ur verið mjög erfitt að finna þær lýs sem eru nýkomar úr eggjunum, þær eru pínulitlar og hálfgegnsæjar.“ Kembing „Notið sér- staka lús- akamba sem fást í lyfjaversl- unum. Til eru mismunandi tegundir af kömbum, t.d. sérstakir fyrir þykkt og sítt hár. Greiðið í gegnum hárið. Setjið hárnæringu í þurrt hárið (Land- læknir segir blautt hár) og dreifið henni vel um hárið. Byrjið að kemba með kambinum við hársvörðinn og kembið vel út í hár- endana, gerið þetta yfir hvítu blaði, spegli eða vaski með vatni. Sé hárið sítt eða þykkt er betra að skipta hárinu upp og kemba hvert svæði fyrir sig. Eftir hverja kembingu í gegnum hárið, er rétt að strjúka af kambinum með eldhúspappír til að tryggja að lús eða nit verði ekki eftir í kambinum.“ Ef lús er til staðar „Ef lús finnst í hári þarfnast það meðhöndl- unar með sér- stöku lús- ameðali sem fæst án lyfseðils í lyfjaverslunum. Tilkynnið lúsasmitið til skólans. Leitið að lús hjá öllum í fjölskyldunni, meðhöndlið aðeins þá sem eru með lús. Fylgið leiðbeiningum um meðhöndlun nákvæmlega. Endurtakið alltaf meðferðina með lúsameðalinu eftir 8 daga eða sam- kvæmt leiðbeiningum. Ráðlagt er að kemba alla í fjölskyld- unni daginn eftir meðferð (á 1. degi) til að athuga hvort meðferð hafi tekist. Ef lús finnst þarf að endurtaka meðferð strax. Kemba þarf á fjögurra daga fresti næstu 2 vikur.“ Þarf ekki að þrífa heimili sérstaklega „Ekki er nauðsynlegt að þrífa heimili eða fatnað sérstaklega. Ráðlegt er að meðhöndla bursta, greiður, kamba, hár- skraut og húfur vegna möguleika á smiti. Hella skal sjóðandi vatni yfir og láta liggja í bleyti í 10-15 mín. eða frysta í 4-6 klst.“ Hvað er til ráða? Á vef Lifandi markaðar er bent á náttúrulega leið til að losna við lúsina án eitur- efna. Það sem til þarf er: Eplaedik, kókosolía, lyktarlaust sjampó, tea tree- kjarnaolía og sem fyrr lúsakambur. Aðferð:  Skolið hárið með eplaediki og látið þorna í hárinu.  Setjið kókosolíu í hár og hársvörð, passið að hún þeki allt hárið. Setjið sturtu- hettu, sundhettu eða eitthvað álíka yfir hárið og skiljið eftir í nokkrar klukku- stundir, jafnvel heilan dag.  Notið lúsakamb til að greiða vel í gegnum hárið.  Þvoið hárið með lyktarlausu sjampói en setjið nokkra dropa af tea tree-olíu út í og nuddið vel í hársvörðinn.  Endurtakið meðferðina eftir þörfum. UPPSKRIFT ÁN EITUREFNA Náttúruleg leið til að losna við lúsina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.