Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 47
Þ að er öskudagur í Borgarleikhúsinu. Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Guð- jón Davíð Karlsson, Hansa og Gói, aðalleikararnir í Mary Poppins, taka eigi að síður á móti mér í borgaralegum klæðum. Það fer líklega vel á því, þau eru í grímubúningum alla aðra daga ársins, alltént í leikhúsinu. Það má því segja að í þeirra tilviki séu borgaraleg klæði ígildi grímubún- ings. Bæði eiga þau lítil börn og náðu að hjálpa þeim í búningana um morguninn, áður en viðtalið brast á. „Voru strákarnir þínir Mary Poppins?“ spyr Gói Hönsu. Hún hleypir brúnum. „Nei, þeir voru sjóræningjar. Ég teiknaði meira að segja á þá yfirvararskegg. Þeir voru alls ekki ólíkir Errol Flynn. Ætli Errol Flynn hafi ekki einhvern tíma leikið sjó- ræningja?“ Hún horfir á blaðamann sem horfir tómum augum á móti. Það hlýtur að vera! Synir Hönsu eru fimm og sjö ára og forfallnir aðdáendur Góa Baunagrasbónda. „Það er plakat af honum á herbergishurðinni. Þeim þykir miklu meira til Góa koma en móður sinnar,“ segir Hansa hlæjandi. Dóttir Góa er eins og hálfs árs. Hún var fíll í tilefni dagsins. Sonurinn, sem er fjögurra ára, var á hinn bóginn Bakkúkan. „Ég reyndi meira að segja að pressa hann í kúlu en það virkaði ekki,“ upplýsir faðirinn og uppsker hlátur hjá Hönsu. Blaðamaður kemur af fjöllum, börnin hans eru bersýnilega orðin of gömul. Áttatíu manna sýning Mikið stendur til við Listabraut, sjálf Mary Poppins er komin í hús. „Þetta er lang- stærsta sýning sem sett hefur verið á svið á Íslandi. Það er ekkert flóknara,“ út- skýrir Gói. Máli sínu til stuðnings dregur hann nýjustu tölur úr Austurbæjarskóla upp úr hatti sínum. 50 manns verða á sviðinu, leikarar, dansarar og hljómsveit og um 30 á baksviðinu, reiðubúnir að skipta um leikmynd, hjálpa leikurum, dönsurum og söngvurum að skipta um föt, farða þá og greiða. Þetta fólk er víst að allan tímann meðan á sýningunni stendur, rétt eins og þeir sem standa á sjálfu sviðinu. „Það verð- ur sumsé söngleikur á sviðinu en farsi á baksviðinu,“ segir Gói hlæjandi. „Í sjálfu sér mæðir ekkert minna á þeim sem eru baksviðs en okkur sem verðum á sviðinu. Það ættu allir að koma í uppklappið, allir áttatíu,“ segir Hansa og Gói bætir við að ekkert megi fara úrskeiðis. Rétt- ar tímasetningar séu nánast upp á líf og dauða. Spurð hvort selt verði inn á „farsann“ líka hlæja Gói og Hansa í fyrstu. Síðan velta þau vöngum. „Það væri ef til vill ekki svo vitlaust, hafa þetta þá tveggja kvölda dagskrá, söngleikinn fyrra kvöldið og hamaganginn á baksviðinu seinna kvöldið,“ segir Hansa brosandi. Magnús Geir, verði þessari hugmynd hrint í fram- kvæmd vill blaðamaður fá prósentur! Sviðið eiginlega of lítið Að öllu gamni slepptu hafa hvorki Gói né Hansa tek- ið þátt í eins umfangsmikilli sýningu – og eru þau þó eldri en tvævetur í leikhúsinu. „Venjulega er verið að dreifa úr fólki á stóra sviðinu hérna í Borgarleikhús- inu, núna er það eiginlega of lítið,“ segir Hansa og Gói bætir við: „Þetta er á svona Broadway- og West End-standard. Langi fólk að sjá þannig sýningu þarf ekki lengur að fara úr landi.“ Borgarleikhúsið er undirlagt þessa dagana enda undirbúningur kominn á lokastig, fólk að smíða, sauma, mála og hvaðeina. Hansa upplýsir að 200 búningar hafi verið saumaðir sérstaklega fyrir sýn- inguna. Það eru ófá spor og saumavélin gengur víst dag sem nótt. „Það hljóta þá að vera 200 skópör líka, það eru 400 stakir skór,“ segir Gói. Málin voru tekin af Hönsu og Góa í nóvember en babb er komið í bátinn, búning- arnir hanga nú utan á þeim. „Sko,“ byrjar Gói að útskýra, „málin voru tekin áður en við byrjuðum á stífum dansæfingum og lýsið hefur runnið af okkur undanfarnar vik- ur.“ „Já,“ bætir Hansa við. „Það er verið að þrengja og þrengja …“ Augnhárahreyfingar útfærðar Maðurinn á bak við þessa gríðarlegu lýsisframleiðslu heitir Lee Proud og er hingað kominn frá Lundúnum. „Ég leyfi mér að fullyrða að aldrei hafi sést eins nákvæm kó- reógrafía á Íslandi og í þessari sýningu,“ segir Gói og nefnir sem dæmi að jafnvel augnhárahreyfingar skipti máli. „Það er ekki sama hvort höndin snýr svona eða svona,“ segir Hansa og færir handarbakið lítillega til. Proud var um langt árabil virtur dansari en hefur nú alfarið snúið sér að því að semja dansa. „Hann er Off-West End eins og staðan er núna en það er bara tíma- spursmál hvenær hann kemst inn í úrvalsdeildina,“ segir Gói og Hansa vekur athygli á því að Proud hafi verið tilnefndur til verðlauna fyrir þrjár sýningar af fjórum sem hann samdi dansana fyrir á síðasta ári. Spurð hvort Mary Poppins líði þá lipurlega um sviðið segja þau hana á mun meiri hreyfingu en tíðkist í uppfærslum erlendis, þar sem hún sé alla jafna settleg á miðju sviðinu. „Það fer vel á því, Hansa er okkar Dancing Queen,“ segir Gói meðan Hansa ranghvolfir augunum. „Einmitt.“ Dansarar úr Íslenska dansflokknum setja sterkan svip á sýninguna og Hansa og Gói segja frábært að fá að vinna með þeim. Þar sé hver snillingurinn upp af öðrum. Ekki er nóg að dansa í Mary Poppins, eitthvað þarf að leika líka og auðvitað syngja. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson og bera aðalleikararnir honum afar vel söguna. „Frábær“ og „æðislegur“, svo orðunum sé haldið til haga. „Bergur gerði frá- bæra hluti með Galdrakarlinn í Oz á síðasta leikári og hann er líka í essinu sínu hér. Hann er alveg ótrúlega skipulagður, sem er líklega besta gjöf sem leikstjóri, sem leikstýrir svona skrímsli eins og þessi sýning er, getur fengið,“ segir Gói. „Bergur treystir manni og er með hjartað á réttum stað. Við erum í mjög örugg- um höndum,“ segir Hansa. Þau benda á að ekki sé um keyptan „pakka“ að ræða, það er sýningin þurfi ekki að vera í ákveðnum skorðum að kröfu rétthafanna. Þó megi ekki fara um of út af sporinu. Agnar Már Magnússon hefur útsett alla tónlistina upp á nýtt og segja Gói og Hansa hann hafa unnið þrekvirki. Tékkinn Petr Hloušek á heiðurinn af margslunginni leikmyndinni og segja þau hugmyndaflugi hans greinilega engin takmörk sett. „Ég legg til að við kyrrsetjum út- lendingana sem vinna að þessari sýningu. Við höfum lært ótrúlega mikið af þeim,“ segir Hansa og bætir við að þeir komi úr miklu samkeppnisumhverfi, þar sem menn komist ekki upp með annað en að gera allt 150%. Gói tekur í sama streng: „Ég hélt að ég væri búinn að sjá allt í leikhúsi. Aldeilis ekki. Aftur og aftur klórar maður sér í höfðinu og spyr fullur undrunar og efasemda: Hvernig fara þeir eiginlega að þessu?“ Vel fer á með Hönsu og Góa í leðursófanum í Borgarleikhúsinu og þegar talið berst að samstarfinu keppast þau við að ausa hvort annað lofi. Þau hafa svo sem unnið saman áður, stóðu fyrst saman á sviði í uppfærslu Nemendaleikhússins á Þremur systrum eftir Tsjekhov árið 1997. Hansa var þá þriðja árs nemi þar á bæ en Gói sautján ára gestaleikari. „Það er alltaf jafngaman að vinna með Hönsu. Hún er í einu orði sagt frábær leik- kona,“ segir Gói. „Við höfum svipað viðhorf til listarinnar. Það er lykilatriðið. Það er alltaf hægt að ýta Góa aðeins lengra í dag en í gær. Það er stór kostur,“ segir Hansa. „Það þarf að koma fram að Inga og Steini eru líka frábær,“ flýtir Gói sér allt í einu að segja. Hmm? „Það eru makarnir okkar. Börnin og heimilið hvíla á þeirra herðum meðan við er- um á lokasprettinum með æfingarnar hérna. Það er ómetanlegt fyrir leikara að eiga skilningsríkan maka,“ segir Hansa. Kann að njóta lífsins Kvikmyndin um Mary Poppins sló rækilega í gegn um allan heim þegar hún var frumsýnd árið 1964 með Julie Andrews í aðalhlutverkinu. Myndin fékk fimm Ósk- arsverðlaun og er löngu orðin sígild. Það var svo árið 2004 að loks var gerður söngleikur. Hann fékk mjög góðar viðtökur þegar hann var frumsýndur á West End; hlaut sjö Tony-verðlaun, m.a. sem besti söngleik- urinn. Spurð hvað geri karakterinn Mary Poppins svona áhugaverðan og vinsælan svarar Hansa að bragði: „Hún kann að njóta lífsins og skilur að börn þurfa að fá að vera börn. Við fullorðna fólkið lærum alveg jafn- mikið af börnunum og þau af okkur. Ég væri til í að hafa eina svona Mary Poppins í mínu lífi – hún kann þetta. Hún sér ekki vandamál, bara lausnir. Samt leysir hún ekki málin ein og sér, heldur lætur fólk hafa fyrir því að gera það sjálft eftir að hafa beint því í rétta átt. Hún bætir fjölskyldur og kætir með já- kvæðri og uppbyggilegri gagnrýni. Mary Poppins er full af kærleika en um leið ströng og öguð. Hún leið- beinir fólki gegnum lífið. Leitið og þér munuð finna það skemmtilega í lífinu, er boðskapurinn. Njótið þess að vera í augnabliknu, annars missið þið af svo mörg- um tækifærum.“ Fjölskyldan ofar öllu Gói segir okkur Íslendinga hafa gott af því að tileinka okkur þetta viðhorf. „Pössum okkur á því að verða ekki gömul og hafa misst af einhverju mikilvægu. Hversu skemmtileg sem vinnan okkar er, hversu gott hlutverk ég fékk, hversu stóran samning ég gerði, skipta okkar nánustu á endanum öllu máli. Þetta vita svo sem allir innst inni en samt hættir okkur til að gleyma því. Rífum okkur nú upp með þetta að leiðarljósi!“ Hann þagnar stutta stund en bætir svo við sposkur á svip: „Kosningaskrifstofan mín er á Hverfisgötu …“ Hansa er honum sammála. „Við Íslendingar erum upp til hópa alltof lengi í vinnunni, oft lengur en framleiðnin segir til um. Njóti fólk þess ekki að vera heima með fjölskyldunni þarf það að skoða sinn gang rækilega!“ Þegar séra Guðjón Davíð hefur prédikað og séra Jóhanna Vigdís þjónað fyrir altari horfa þau hvort á annað, yggla sig aðeins. „Það er kannski svolítið skrýtið að vera að prédika þetta hafandi sjálf verið í vinnunni allan sólarhringinn að undanförnu,“ segir Gói. Þau skellihlæja. En Mary Poppins er harður húsbóndi. Á sömu blaðsíðu í lífinu Gói fer með hlutverk Berts, besta vinar Mary Poppins í verkinu. Hvernig náungi ætli hann sé? „Bert er þúsundþjalasmiður. Sótari, götulistamaður, lírukassaspilari og Guð má vita hvað. Hann leiðir áhorfendur gegnum sýninguna, þessa töfraveröld. Bert er ákaflega heillaður af Mary Poppins, hver yrði það svo sem ekki? Og það sem er ef til vill mest um vert; hann er búinn að læra, nú er hann bara að njóta. Þau Mary Poppins eru fyrir vikið á sömu blaðsíðu í lífinu. Eins og hún kennir hann börnunum að sjá hlutina í öðru ljósi,“ segir hann. Hansa kinkar kolli. „Það er mjög sterk taug á milli Mary Poppins og Berts. Hann býr yfir einstaklega fallegu æðruleysi.“ Talið berst að markhópnum og Gói og Hansa fullyrða að Mary Poppins sé jafnt fyrir börn og fullorðna, sannkölluð fjölskyldusýning. „Ég sá sýninguna úti í London fyrir nokkrum árum með hópi fullorðins fólks. Við urðum öll börn aftur. Þvílíkir töfrar!“ segir Gói. Hansa tekur undir það sjónarmið. „Fólk þarf alls ekki að hafa barn meðferðis á sýninguna enda þótt það sé auðvitað ekki verra.“ Að lokum hvetja þau alla leikhúsunnendur til að koma og njóta herlegheitanna. „Allir þessir áttatíu sem að sýningunni koma eru stilltir inn á að gera stærstu og flottustu uppfærslu sem um getur á Íslandi,“ segir Gói. „Mér líður eins og ég sé að fara að keppa á ólympíuleikunum!“ 17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47 Byggt á: Sögum P.L. Travers og kvikmynd frá Disney. Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson Handrit: Julian Fellowes. Ný lög og textar: George Stiles, Anthony Drewe Meðframleiðandi: Cameron Mackintosh. Upphaflega sett upp af: Cameron Mackintosh, Thomas Schumacher. Íslenskun á lausu máli og bundnu: Gísli Rúnar Jónsson Leikmynd: Petr Hloušek. Aðstoðarleikstjóri: Hlynur Páll Pálsson. Búningar: María Ólafsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Pétursson. Hljóð: Thorbjoern Knudsen. Tónlist og texti: Richard og Robert Sherman. Tónlistarstjórn: Agnar Már Magnússon. Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir. Danshöfundur: Lee Proud. Leikarar: Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Halldór Gylfason, Esther Talía Casey, Sigrún Edda Björnsdóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrímur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Jóhann Sigurð- arson, Sigurður Þór Óskarsson o.fl. MARY POPPINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.