Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013 BÓK VIKUNNAR Hin læsilega og viðburðaríka fjöl- skyldusaga Hanne Vibeke Holst, Iðrun, fellur lesendum greinilega vel í geð því hún er ofarlega á metsölulista. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is Svo margt hefur verið skrifað um lífErnests Hemingways að ætla mættiað allt væri búið að segja í þeim efn- um. Bók Pauls Hendricksons, Hem- ingway’s Boat, sýnir að svo er ekki. Sag- an hverfist um bát Hemingways, Pilar, sem hann átti í tæpa þrjá áratugi, fjöl- skyldu rithöfundarins, eiginkonurnar fjórar og synina þrjá. Þetta er bók sem hefur vakið aðdáun fyrir sérstök efnistök en þar er sjónum iðulega beint að smáatriðum sem fylla samt svo vel upp í myndina af Hem- ingway, þeim sérstaka og mótasagna- kennda rithöfundi sem ekki er annað hægt en að láta sér þykja vænt um. Synir Hem- ingways koma mjög við sögu í bókinni. Jack var elstur, sonur Hem- ingways og fyrstu eiginkonunnar Hadley, sem Hem- ingway sá eftir að hafa skilið við. Jack (mynd af honum er hér að ofan) var ástríðufullur veiðimaður, eins og faðir hans, og kom nokkrum sinn- um til Íslands og þótti afar geðþekkur maður. Með eiginkonu númer tvö átti Hemingway synina Patrick og Gregory. Það er Gregory sem stelur senunni í Hemingway’s Boat. Gregory var læknir sem kvæntist fjórum sinnum og eignaðist sex börn. Gregory var klæðskiptingur. Hann dó af völdum hjartaáfalls árið 2001 í kvennafangelsi en þar hafði hann verið í fimm daga eftir að hafa berað kynfæri sín opinberlega. Hann var 69 ára þegar hann lést. Allt frá barnsaldri hafði hann heillast af kvenmannsfötum og stal und- irfötum frá móður sinni og stjúpmæðr- um. Seint á ævinni fór hann í kyn- skiptaaðgerð. Þessi yngsti sonur Hemingways var þjáð sál. Hann barðist við þá hneigð sína að klæðast kvenmannsfötum en réð ekki við hana og sást iðulega opinberlega vel farðaður, með hárkollu og klæddur eins og kona. Hann er einkennilegasta en um leið eftirminnilegasta persónan í afar minn- isstæðri bók. Persóna sem höfundur skrifar um af mikilli samúð. Orðanna hljóðan SONUR HEMING- WAYS Jack Hemingway Hemingsway’s Boat Dagar vinnu og vona – Saga verka-mannafélagsins Dagsbrúnar íkreppu og köldu stríði er bók eftir Þorleif Friðriksson sagnfræðing. Hún er ann- að bindið í þriggja bóka flokki þar sem Þor- leifur segir sögu verkamannafélagsins Dags- brúnar og fólksins á bak við félagið. Hér fjallar Þorleifur um árin frá 1930 fram á seinni hluta sjötta áratugarins. Fjöldi mynda er í bókinni, flestar teknar af Karli Christian Nielsen verkamanni, sem fæddist 1895 og lést 1951. Myndir hans sýna líf alþýðufólks, hús- næði þess, föt, umhverfi og fleira. „Þetta verk er saga Dagsbrúnar en fyrst og fremst fólksins á bak við félagið,“ segir Þorleifur. „Í þessari bók bý ég m.a. til fjöl- skyldu. Þar byggi ég á mikilli heimildarvinnu og það er því ekki eins og fjölskyldan sé hreinn tilbúningur. Með þessu er ég að reyna að breyta út af þeim ópersónulega takti sem hefur gjarnan einkennt sögu stéttarfélaga. Ég fjalla um félagið sem hluta af þróun sam- félags, skrifa um fæði, klæði og tannheilsu, vinnu, menningu og fleira. Ég kem víða við og sem dæmi má nefna að Ríkisútvarpið kemur nokkuð við sögu. Ríkisútvarpið var stofnað ár- ið 1930 og verkalýðshreyfingin hafði strax sterkar skoðanir á því að dagskráin ætti að höfða til allra landsmanna og krafðist þess að fá menn í útvarpsráð. Útvarpsfréttirnar klukkan 12.20 eru svo hluti af sögu verkalýðs- hreyfingarinnar en strax árið 1934 voru frétt- ir sagðar klukkan 12.20 í staðinn fyrir á slag- inu 12 til þess að verkafólk kæmist heim í soðningu og gæti náð fréttum. Ég hafði mikla ánægju af að skrifa þessa bók. Finnst merkilegt að skoða af hverju fé- lag eins og Dagsbrún var starfrækt, hverju það kom til leiðar og hverjum það var að þjóna. Allir stjórnmálaflokkar komu að verka- lýðsbaráttu þessara ára, það er ekki eins og þetta hafi bara verið kommúnistar og kratar því framsóknarmenn voru innan Dags- brúnar og sjálfstæð- ismenn voru þar einnig mjög sterkir. Árið 1938 stofnuðu sjálfstæðismenn Óð- in, málfundafélag sjálfstæðisverka- manna, og buðu fram og voru í stjórn um tíma í samstarfi við Alþýðuflokkinn. Fjórum árum áður hafði ungur lagaprófessor, Bjarni Benediktsson að nafni, íklæðst búningi verkalýðsleiðtoga og stofnað ásamt öðrum Byggingarfélag stjálfstæðra verkamanna. Dagsbrún var afar skipulögð hreyfing sem hélt fjölmenna fundi og að sjálfsögðu sáu flokkarnir tilgang í því að láta rödd sína heyr- ast innan félagsins. Dagsbrún var miklu meira en félag pólitískra æsingamanna sem komu saman til að boða verkföll.“ Af hverju hefurðu það mikinn áhuga á Dagsbrún að þú skrifar þriggja binda sögu fé- lagsins? „Ég er sjálfur sprottinn úr þessum jarð- vegi. Karl faðir minn var félagi í Dagsbrún þegar hann var ungur maður. Ég fékk snemma áhuga á félagslegum hræringum. Ég lærði síðan í Lundi í Svíþjóð og þar, eins og víða í evróskum háskólum, voru stundaðar líf- legar rannsóknir sem beindust að verkalýðs- sögu. Ég skrifaði pólitíska og nokkuð ögrandi dotorsritgerð um verkalýðsbaráttu og krata. Tískusveiflur gera vart við sig í fræða- heimum, eins og víðar, og áherslur mínar í sagnfræðirannsóknum eru aðrar í dag en gær. Ég er mjög sáttur,“ segir Þorleifur um þessa bók en hann er kominn vel áleiðis með þriðja bindið. „Ég hef unnið lengi að þessum þriggja bóka pakka og hef stöðugt verið að leita heimilda, ekki bara hér heima heldur í Berlín, Moskvu, Kaliforníu, Amsterdam og Skandinavíu. Þótt þessi bók sé fræðilegt verk er hún ekki ætluð þeim einum sem hafa áhuga á verkalýðsmálum eða stjórnmálum. Ef hún er ætluð einhverjum sérstaklega er það öllum þeim sem hafa áhuga á því lífi sem við erum hluti af, sögu samfélags okkar á miklum breytingatímum.“ ÚTVARPSFRÉTTIR KLUKKAN 12.20 ERU HLUTI AF SÖGU VERKALÝÐSHREYFINGARINNAR Ekki bara kommún- istar og kratar Morgunblaðið/Kristinn ÞORLEIFUR FRIÐRIKSSON HEFUR SENT FRÁ SÉR ANNAÐ BINDIÐ AF ÞREMUR UM SÖGU VERKAMANNA- FÉLAGSINS DAGSBRÚNAR Þorleifur Friðriksson. Dagsbrún var miklu meira en félag pólitískra æsingamanna sem komu saman til að boða verkföll. Sem krakki las ég allt sem var til heima hjá mér. Þar var mikið til af bókum sem pabbi og mamma höfðu eignast sem unglingar og ég las þær og sömuleiðis allar bækur sem þau fengu í jólagjöf. Ég les ennþá mikið, alls konar bækur. Þegar kemur að því að velja uppáhaldsbækur þá eru þrjár sem koma strax upp í hugann. Skáldsagan Sagan af herra Sommer eftir Patrick Süskind er í miklu uppáhaldi en þar segir frá herra Sommer sem gengur á milli þorpa í Þýskalandi á eftirstríðs- árunum. Agga gagg: Með skollum á Ströndum eftir Pál Hersteinsson er gríðarlega skemmtileg og vel skrifuð bók sem ég hef alltaf haldið upp á. Páll var á Ströndum að rannsaka hegð- un tófunnar og lýsir samskiptum sínum við hana og Strandamenn. Ég hef lesið hana oft og mörgum sinnum. Ævintýrabókin um Alfreð Flóka eftir Nínu Björk Árnadóttur hefur líka alltaf verið í uppáhaldi, einstaklega falleg bók. Svo verð ég að fá að nefna Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Svo les ég vitanlega reyfara og bíð alltaf spennt eftir nýrri bók eftir Jo Nesbø. Í UPPÁHALDI MARGRÉT JÓNA GUÐBERGSDÓTTIR BÓKSALI Morgunblaðið/Styrmir Kári Margrét Jóna. Frá barnsaldri hefur hún lesið mikið og þá alls konar bækur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.