Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013 Menning Í fyrra var öld liðin frá fæðingu danska myndlistarmannsins Sven Havsteen- Mikkelsen (1912-1999) og er þess minnst með myndarlegum sýningum á verkum hans. Um þessar mundir er sýning í Sophienholm-safninu í Lyngby í Dan- mörku og í sumar verður hún sett upp í lista- safninu í Færeyjum, en listamaðurinn dvaldi löngum á eyjunum þar sem fósturfaðir hans, landkönnuðurinn og ævintýramaðurinn Einar Mikkelsen, rak hvalverkun um tíma. Hav- steen-Mikkelsen tengdist Íslandi einnig á áhugaverðan hátt. Annarsvegar með fjöl- skylduböndum, því langafi hans Niels Havs- ten var á sínum tíma kaupmaður í Reykjavík og var listamaðurinn skyldur þeim Haf- steinum. Kom Havsteen-Mikkelsen til Íslands sumarið 1962 að gera teikningar í bók Jakobs Hafstein frænda síns um Laxá í Aðaldal. En hann hafði líka verið hér áratug fyrr, ásamt landa sínum rithöfundinum kunna, Martin A. Hansen. Þá ferðuðust þeir í sex vikur um landið á rússajeppa og gistu í tjaldi; afrakst- urinn var hin snilldarlega ferðasaga með texta Hansens og teikningum Havsteen-Mikkelsens, Á ferð um Ísland, sem Almenna bókafélagið gaf út árið 1984 í þýðingu Hjartar Pálssonar. Skissubækur málarans Í tilefni aldarafmælis Havsteen-Mikkelsens gaf Johannes Larsen-safnið danska út vand- aða bók um list og ævi Havsteen-Mikkelsens. Nordisk Længsel nefnist hún og þar er ferða- lögum hans um Ísland gerð skil, með mörgum myndum og tilvitnunum í bók Hansen og dag- bækur teiknarans. Reyndar er það áhugaverð staðreynd að það sé safnið sem helgað er list Larsens sem gefi bókina út, því Larsen fór um Ísland sumrin 1927 og 30 og gerði ein- stakar teikningar fyrir þriggja binda útgáfu Íslendingasagnanna. Í bókinni Á ferð um Ísland, lýsir Martin A. Hansen ferðalagi félaganna um Ísland í eins- konar dagbók, afar frjálslegri í formi, með forvitnilegum og litríkum vísunum í Íslend- ingasögurnar, skáldskap og þjóðsögur. Hav- steen-Mikkelsen er áberandi í frásögninni, þar sem hann vinnur jafnt og þétt að list sinni, eins og þegar þeir aka niður aurborinn veginn niður í Öxnadal: Skissubækur mál- arans liggja á víð og dreif í framsætinu, hann hefur gert tilraunir með ýmsar stærðir. Er búinn að dæma margar úr leik. Lætur ekki hvassa tindana sleppa. Hraundrangi, og hann vinnur saltvondur og einbeittur, þótt dautt sé í pípunni, sem hann hefur í munninum. Nordisk Længsel er áhugaverð lesning þeim sem áhuga hafa á list og sögu Hav- steen-Mikkelsens. Og áhugavert væri að sýn- ingu á verkum þessa góða Íslandsvinar ræki hér á fjörur. Félagarnir Sveen Hafsteen-Mikkelsen og Martin A. Hansen á skips- fjöl í Kaupmannahöfn í maí 1952, að leggja af stað til Íslands. DANSKA MYNDLISTARMANNSINS HAVSTEEN-MIKKELSEN MINNST „Lætur ekki hvassa tindana sleppa“ Í BÓKINNI NORDISK LÆNGSEL, SEM GEFIN ER ÚT Í TILEFNI ALDARAFMÆLIS LISTAMANNSINS HAVSTEEN-MIKKELSENS, ER FJALLAÐ UM VERK SEM HANN VANN Á ÍSLANDI, MEÐAL ANNARS Í SAMSTARFI VIÐ MARTIN A. HANSEN. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Teikning eftir Havsteen-Mikkelsen frá ferðalaginu um Ísland vorið 1952. Síðar vann hann þekkt málverk eftir teikningunni og kall- aði það Öxnadal eftir sögusviðinu. Hann þótti mikill meistari í einföldum en lifandi skynditeikningum. Havsteen-Mikkelsen gægist inn í Glaumbæ, „gamla prestssetrið, þar sem allt er með sínum forna brag,“ skrifaði Hansen um heimsókn þeirra félaga. Hin gamla Víðimýrarkirkja í Skagafirði. Teikning Havsteen-Mikkelsens af Bergþórshvoli. Í dagbók hans má lesa að þar þótti hon- um skrýtið að standa, Njáluunnandanum, tæpum þúsund árum eftir Njálsbrennu. Havsteen-Mikkelsen dró einnig upp mynd af Hlíðarenda, einfalda en lýsandi. Staðurinn „… hlaut að vera svona – heim að líta“, skrifaði Hansen. Þar háttaði til eins og þeir höfðu gert sér í hugarlund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.