Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013 Þegar fjórtán umferðir eru eftir á Ítalíu hef- ur Juventus fimm stiga forskot á Napoli. Önnur lið koma varla til með að blanda sér í þá baráttu, Lazio er ellefu stigum á eftir „gömlu frúnni“ og Mílanóliðin, Inter og AC, tólf og fjórtán. Hér er leik fráleitt lokið en stærstu tíð- indin líklega þau að hvorugt Mílanóliðanna hafi blandað sér í baráttuna. Flestir veðja á Juventus, sem á titil að verja, en Napoli hef- ur ekki unnið deildina síðan Diego Armando Maradona lék með liðinu 1990. Í Frakklandi munar sex stigum á tveimur efstu liðunum og enda þótt það séu smámun- ir samanborið við England, Spán og Þýska- land þykir einsýnt í hvað stefnir. Milljarðalið Paris St. Germain hefur verið að ná vopnum sínum og sparkfræðingum þykja meiri líkur en minni á því að bilið niður í Lyon eigi eftir að breikka fram á vorið frekar en hitt. Óttast einokun á næstu árum Mögulega gæti Meistaradeild Evrópu sett strik í reikninginn en eins og dæmin sanna vinnur gott gengi þar alveg eins með liðum í heimalandinu eins og hitt. Í ljósi fjármagns- ins sem Parísingar hafa úr að spila óttast ýmsir að langt geti orðið þangað til önnur félög komist að titlinum í Frakklandi. Sé horft til smærri deilda er mesta spenn- an farin úr belgísku deildinni, Anderlecht komið með átta stig umfram Zulte- Waregem. Þeir síðarnefndu geta þó huggað sig við það að nafnið er kjarnmikið og gott, ég meina Sportvereniging Zulte-Waregem. Skoska úrvalsdeildin var fyrirsjáanleg meðan Rangers og Celtic voru þar bæði en eftir að fyrrnefnda félagið spilaði fjárhags- lega rassinn úr buxunum er hún auðvitað í besta falli grín. Celtic hefur þó ekki „nema“ sautján stiga forystu á Inverness Caledonian Thistle. Þar á bæ geta menn að sama skapi yljað sér við nafnið. Fyrir þá sem langar að fylgjast með spennandi endaspretti í Evrópuboltanum er Holland hálmstráið. Þar getur ennþá allt gerst, alla vega fjögur lið orðið meistari. PSV Eindhoven hefur að vísu þriggja stiga forskot á Ajax og Feyenoord en það getur verið fljótt að fara. Þar fyrir neðan lúrir FC Twente, fjórum stigum á eftir toppliðunum. Svona eiga deildir að vera! Enn er verk að vinna hjá Andrea Pirlo á Ítalíu en Gary Hooper gæti leikið í stígvélum í Skotlandi. AFP SAUTJÁN STIG MEST VAKTASKIPTI GÆTU MÖGULEGA ÁTT EFTIR AÐ VERÐA Á TOPPNUM Á ÍTALÍU OG Í FRAKKLANDI EN ALLS EKKI Í BELGÍU OG SKOTLANDI. HOLLENSKA DEILDIN ER LJÓSIÐ Í MYRKRINU FYRIR SPENNUFÍKLANA. Engin spenna, svolítil og mikil Núna þegar febrúarmánuður er liðlega hálfn-aður má fullyrða að keppni um meistaratit-ilinn sé lokið í Englandi, Þýskalandi og á Spáni og línur teknar að skýrast í Frakklandi og á Ítalíu enda þótt ekki séu öll kurl komin til grafar. Þetta er auðvitað ánægjulegt fyrir áhangendur félag- anna sem eru að rölta í höfn með bikarinn í hverju landi fyrir sig en drepleiðinlegt fyrir keppnisfólk sem ann spennu og taugastríði. Allra best er að úrslitin ráðist ekki fyrr en í uppbót- artíma í lokaumferð mótsins, líkt og í Englandi í fyrra þegar Manchester City rak nefbroddinn fram fyrir ná- granna sína, United. Allt útlit var fyrir annað einvígi á þessum vetri, grannarnir hleyptu árla móts á æðisgengið skeið og skildu önnur lið eftir í reykmekki. Nú eftir áramótin mæddust City-menn hins vegar ógurlega og United er nú aðeins fölur depill í fjarska. Tólf stiga forskot láta þeir Fergusynir aldrei af hendi í síðustu tólf umferð- unum. Fyrr gerir Framsóknarflokkurinn líklega aðild að Evrópusambandinu að baráttumáli í alþingiskosn- ingunum hér heima. Það var þó mót framan af vetri í Englandi, annað en á Spáni. Meistarar Real Madrid hóstuðu og hikstuðu þegar á fyrstu metrunum með þeim afleiðingum að mótið hefur verið lítil og sæt lautarferð í skógi fyrir ofurmennin í Barcelona. Atletico Madrid spriklaði að vísu aðeins framan af en allir vita að þeim ágætu mönnum er ekki ætlað að vinna meistaratitilinn. Þeir eru miklu frekar ígildi héra á frjálsíþróttamótum þeg- ar setja á heimsmet í hlaupum í millivegalengd. Sumsé aðeins með til að halda uppi hraðanum. Barcelona hef- ur tólf stiga forskot á toppnum þegar fimmtán umferð- um er ólokið. Fimmtán stiga forskot Bæjara Enn breiðari gjá hefur myndast í Þýskalandi, þar sem Bayern München situr makindalega á toppi Búndeslíg- unnar, fimmtán stigum ofar en Borussia Dortmund. Þar eru þrettán umferðir óleiknar. Það sem gerir þessa stöðu ennþá athyglisverðari er að liðin sem helst hafa úr lestinni, Manchester City, Real Madrid og Dortmund, eru öll ríkjandi meistarar í sínum deildum. Það er eins og sú staðreynd hafi æst meistaraefnin nú upp úr öllu valdi. Þau láta eins og óþægir krakkar sem vilja fá dótið sitt til baka. Barcelona hefur hlotið 90% mögulegra stiga til þessa í vetur, Bayern München 86% og Manchester United 83%. Fyrir smekk sumra eru það of miklir yfirburðir! David Alaba, Bastian Schweinsteiger, Dante og aðrir Bæjarar hafa hlaupið til þess að gera óáreittir um grundir í vetur. AFP Gerard Piqué, miðvörður Barcelona, gefur yfirstandandi tímabili einkunn. AFP Pakkað saman ÓHÆTT ER AÐ SEGJA AÐ KEPPNI Í STÆRSTU SPARKDEILDUM EVRÓPU HAFI OFT VERIÐ MEIRA SPENNANDI EN Í VETUR. VONT ÞEGAR KEPPNI ER LOKIÐ UM MIÐJAN FEBRÚAR. „Við erum reyndir en maður má aldrei verða værukær. Við verðum að leika vel áfram, maður veit aldrei hvað getur gerst.“ Ryan Giggs, leikmaður Manchester United. Boltinn ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.