Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2013 „Við systkinin erum með nákvæmlega eins hár þessa dagana, hér um bil alveg jafnsítt. Þetta er því búið að vera svolítið grín undanfarið hjá fjölskyldunni að við séum nær alveg eins. Við ákváðum því að taka þetta alla leið á öskudaginn og leika hvort annað,“ segir Brynhildur Bolladóttir laganemi. Brynhildur og bróðir hennar, Atli, sem er einn af skipuleggjendum RIFF, sneru bökum saman og sam- einuðust á öskudag í búningum. Það er að segja; Atli lék Brynhildi og Brynhildur Atla. Hugmyndin kviknaði á sprengidag í kvöldverðarboði en það var mágkona þeirra sem átti hugmyndina. Þau fengu lánuð föt hvort af öðru, Brynhildur málaði á sig skegg og Atli setti á sig glimmeraugnskugga sem systir hans notar jafnan. „Þetta vakti mikla athyli og þetta ruglaði svolítið í þeim sem hittu okkur. Við komumst líka að því að við höfum sömu takta svo gervin voru mjög góð,“ segir Atli. UPPÁTÆKI Á ÖSKUDAG Systkini léku hvort annað Atli (efri mynd) og Brynhildur Bollabörn – þegar ekki er öskudagur.Systkinin eru mjög lík þannig að ekki er skrýtið að fólk hafi ruglast í ríminu þeg- ar þau léku hvort annað á öskudag. Hundurinn Knúsi Engill Skallagrímsson og Gunnlaug Þorvaldsdóttir söngkona urðu par í Róm. Þá var Knúsi flækingshundur og þar sem Gunnlaug, eða Gulla, beið á rauðu ljósi á hjólinu sínu kom hann hlaupandi og horfði í augun á Gullu. „Ég hjólaði af stað og hann elti og stökk á hjólið og reyndi að hanga þar og síðan þá hefur hann fylgt mér eða í um fimm ár,“ segir Gunnlaug. „Ég hef aldrei þurft að hafa fyrir neinu, hann hefur aldrei pissað neins staðar eða gert neitt af sér, hann hefur líklega átt gott heimili áður en hann lenti á götunni. Fyrst var hann þannig að hann borðaði tyggjó upp úr götunni, með flær um allan kropp og hafði greinilega lítið haft að borða. En í dag er hann prins og ferðast á milli landa og fer með mér á opnanir og listasýningar, jafnvel í leikhús og í mát- unarklefa í fataverslunum. Í leikhúsinu var hann ótrú- lega góður og gelti aðeins á hárréttum stöðum, eins og þegar vondi karlinn kom inn á sviðið. Svo þegar leikararnir hneigðu sig gelti hann líka.“ GÆLUDÝRIÐ MITT Fer í leikhús með Gullu Knúsi er orðinn þekktur í menningarlífi Rómarborgar þar sem hann fer með eiganda sínum á listasýningar. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Dwight Schrute frá The Office þáttunum er eins og þeir félagar mikill senuþjófur. Svo eru þeir bara alveg eins - svona nánast. Jurgen Klopp þjálfari Dortmund er eiginlega óþægilega líkur Sveini og svo er hann að stela sen- unni í evrópu fótboltanum. Sveinn Ólafur Gunnarsson leikari er glæsilegur. Stelur senunni allsstaðar þar sem hann stígur á stokk. Skyfall mætir í Leiguna 19. febrúar Þín ánægja er okkar markmið Ein flottasta James Bond myndin til þessa og ein stærsta mynd kvikmynda- húsanna í fyrra. Bond klikkar ekki í Leigunni í Vodafone Sjónvarpi. 5.1 SURROUND FÁANLEG Í vodafone.is/leigan H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 3 -0 3 4 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.