Morgunblaðið - 06.03.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013
✝ Þorbjörg Þór-arinsdóttir var
fædd 6. mars 1914 á
Tjörn í Svarf-
aðardal og lést á
hjúkrunarheimilinu
Mörkinni 19. febr-
úar 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Þórarinn
Kr. Eldjárn, 1886-
1968, bóndi og
kennari á Tjörn og
kona hans Sigrún Sigurhjart-
ardóttir, 1888-1959. Systkini
Þorbjargar: Kristján, 1916-1982,
Hjörtur, 1920-1996 og Petrína
Soffía, 1922-2002. Eiginmaður
Þorbjargar var Sigurgeir Stef-
ánsson f. 2. október 1905. Hann
lést 21. desember 1995. Börn
þeirra: 1) Þórarinn f. 10. júní
1950, kona hans er Anna Rögn-
valdsdóttir f. 1. nóvember 1953,
sonur þeirra er Ragnar f. 29. júlí
1980. 2) Arnfríður Anna f. 25.
nóvember 1952, maður hennar
er Ellert Ólafsson f.
12. nóvember 1948.
Synir þeirra: 1) Þor-
geir f. 8. febrúar
1979, 2) Ómar f. 18.
desember 1982,
kvæntur Lauru Ors-
ini Franca f. 21.
september 1987 og
3) Arnar Magnús f.
18. júlí 1985. Þor-
björg tók gagn-
fræðapróf frá
Menntaskólanum á Akureyri
1930. Hún lærði hússtjórn við
Húsmæðraskólann á Hallorms-
stað, stundaði nám og störf í
Kaupmannahöfn 1938-1940, kom
heim í Petsamoförinni haustið
1940, nam við Handíða- og mynd-
listaskólann í Reykjavík og starf-
aði eftir það einkum við sauma-
skap, heima og á saumastofum.
Útför Þorbjargar Þórarins-
dóttur fór fram frá Fossvogskap-
ellu fimmtudaginn 28. febrúar sl.
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þorbjörg var elst fjögurra
systkina á Tjörn. Yngri systkinin
voru Kristján, Hjörtur og Petrína.
Hana vantaði tvær vikur í 99 ár og
nú eru 10 ár síðan síðasta systkini
hennar lést.
Hún var dul hún Þorbjörg
frænka mín, vildi lítið um sjálfa sig
tala og fólk vissi aldrei mikið um
hana. Hún hafði frá mörgu að
segja en var þannig gerð að hún sá
ekki ástæðu til að segja frá því,
jafnvel ekki sínum nánustu. Hún
fór sem fullorðin mjög lítið á
mannamót sem var sérstakt því
æskuheimili hennar einkenndist
af bullandi félagsstörfum beggja
foreldranna. Það kom vel fram í
bræðrum hennar, hjá öðrum
þeirra svo mjög að hann varð að
lokum forseti lýðveldisins. Heima
í Svarfaðardal hafði hún þó sungið
mikið í kórum, ásamt föður sínum
og Petrínu systur sinni. Þau voru
af hinni söngelsku Skinnastaða-
ætt.
Hún var næm, lærði að lesa
með eigin aðstoð og lauk Grund-
arskóla tveimur árum á undan
jafnöldrum. Faðir hennar var
kennarinn. Ekki var gert ráð fyrir
mikilli skólagöngu þar sem þetta
var stúlka. Það fór þó svo um síðir
að hún var send í Menntaskólann
á Akureyri þar sem hún tók gagn-
fræðapróf, en þá komin yfir tví-
tugt. Þá gat hún jafnframt aðstoð-
að föðursysturnar Sesselju og
Ingibjörgu sem höfðu gisti- og
greiðasölu í Brekkugötu 9.
Hún ræddi ekki um sjálfa sig en
þegar ég spurði um heimilið og
heimaslóðirnar fyrrum gaf hún
skýr og greinargóð svör. Hún
sagði skemmtilega frá mönnum
og málefnum og minnið var ald-
eilis óvenju öruggt. Þar við bætt-
ist að frásögnin gaf yfirsýn yfir
sviðið, ekki bara atriðið sem spurt
var um. Einhvern tíma spurði ég
um hestana á Tjörn. Þá kom hún
með nákvæma frásögn um hest-
ana, einkum dráttarhestana, 12
nafngreinda hesta – og helstu ein-
kenni hvers um sig – frá því hún
mundi fyrst eftir sér og þar til hún
hvarf að fullu úr dalnum nokkru
fyrir 1950. Um leið gaf hún mér
yfirsýn yfir alla búskaparsögu
Þórarins og Sigrúnar á Tjörn.
Hún sigldi til Kaupmannahafn-
ar og vann þar sem húshjálp og
einnig á saumastofu, kannski tvö
ár. Svo lokaði stríðið fólk inni í
Danmörku. Hún komst heim með
Esju í umtalaðri ferð frá Petsamo
til Íslands í október 1940. Á stríðs-
árunum var hún tvo vetur í Hand-
íða- og myndlistaskólanum og
lauk prófi sem handavinnukenn-
ari. Hún var nýfarin að kenna
handavinnu við Héraðsskólann á
Laugarvatni þegar barneignir og
hjúskapur trufluðu þann feril.
Hún giftist Sigurgeiri Stefáns-
syni frá Kambfelli í Djúpadal í
Eyjafirði. Þau áttu friðsælt og
gott heimili í litlu húsi við Sólvalla-
götu. Hann vann við verslunar-
störf og akstur á vegum SÍS. Hún
vann á saumastofum þegar hún
var ekki heima vegna uppeldis
barna þeirra tveggja. Sveitakonan
var rík í Tobbu, og hún þurfti þá
auðvitað að ná í Sigurgeir sem var
alveg rakinn bóndi í sér og áhuga-
maður um málefni sveitanna. Ég
veit þetta ekki en kannski varð
Reykjavík aldrei raunverulegur
heimavöllur Þorbjargar. Eftir að
elliglöp ýttu henni úr okkar veröld
spurði hún fyrst og síðast um fólk
og gömul málefni úr Svarfaðardal.
Ég sendi henni vinakveðju að
norðan.
Þórarinn Hjartarson.
Baldvin Arnason, vesturís-
lenskur frændi okkar Eldjárna af
Skinnastaðarættinni, var elstur 10
systkina á Gimli. Í hárri elli var
hann að því spurður hvort honum
þætti ekki einkennilegt og jafnvel
óréttlátt að hann skyldi hafa náð
að lifa sum yngri systkinanna.
Ekki fannst honum það. Hann
svaraði: „Ég kom fyrstur og verð
því að fara síðastur svo ég geti
fylgst með því að allt sé í lagi.“
Ekki stóð hann þó við það.
Þorbjörgu föðursystur okkar
sem nú er látin tæpra níutíu og níu
ára hefði aldrei dottið í hug að gefa
út nokkra yfirlýsingu um slíkt.
Þess í stað stóð hún bara við það
þegjandi og hljóðalaust. Það var
alveg í hennar stíl. Södd lífdaga
kveður nú elsta systirin síðust
þeirra Tjarnarsystkina, rúmum
áratug á eftir yngstu systurinni
Petrínu Soffíu en á undan henni
voru farnir bræðurnir Kristján og
Hjörtur. Mátti því segja um þá
bræður að vel kæmi á vonda þar
sem þeir töluðu stundum sín á milli
um „Þorbjörgu sálugu systur okk-
ar“ ef mjög langt var liðið síðan
þeir höfðu frá henni heyrt og vís-
uðu þar til þeirra orða sem faðir
þeirra Þórarinn og systur hans
Imba, Olla og Sella höfðu ævinlega
um elstu systur sína Þorbjörgu
sem lést aðeins rúmlega þrítug
1913. Ári síðar fæddist Tobba
frænka og var skírð í höfuðið á föð-
ursystur sinni.
Þorbjörg ólst upp við gott atlæti
og almenn sveitastörf á Tjörn í
Svarfaðardal. Hún var góðum gáf-
um gædd og varð gagnfræðingur
frá Menntaskólanum á Akureyri,
aflaði sér síðan starfsmenntunar
og þjálfunar, einkum við sauma-
skap, forframaðist í Kaupmanna-
höfn fyrir seinni styrjöld, kom
heim með Petsamoförinni haustið
1940.
Þorbjörg var hógvær kona og
stillt, ekki margmál í fjölmenni og
hafði sig lítt í frammi en einstak-
lega greinargóð ef til hennar var
leitað og kunni frá mörgu að segja.
„Best að spyrja Tobbu um þetta,
hún man allt,“ sagði faðir okkar
gjarna þegar hann var að rifja upp
og festa á blað ýmsar minningar
um fólk og fyrirburði úr æsku
þeirra og uppvexti í dalnum.
Við systkinin, Ólöf, Sigrún, Ing-
ólfur og undirritaður, og allt okkar
fólk minnumst Þorbjargar frænku
með hlýju og trega og vottum Þór-
arni og Arnfríði Önnu og fjölskyld-
um þeirra okkar dýpstu samúð.
Þórarinn Eldjárn.
„Hvert örstutt spor var auðnu-
spor með þér,“ kvað skáldið Hall-
dór Laxness. Það var auðna okkar
tengdabarna Þorbjargar að eiga
þess kost að spássera við hlið henn-
ar á lífsins göngu í hartnær fjóra
áratugi. Sporin hafa eðlilega verið
af ýmsu tagi. Stutt eða löng, létt
eða þung, allt eftir því hvernig
landið lá í hvert eitt sinn. Þegar á
brattann var að sækja í tilverunni
reyndist nærvera Þorbjargar
sterk, traust og sefandi en lituð
björtum litum ljúfmennsku og
glettni á gleðistundum þegar leiðin
lá áreynslulítið niður í móti.
Þannig gaf Þorbjörg óspart af
sér til okkar beggja, á sinn hóg-
væra og hljóðláta máta, í samskipt-
um þar sem orð voru oft allsendis
óþörf. Að eiga notalega og kyrra
stund með Þorbjörgu yfir kaffi-
bolla og kökusneið, lestur dagblaða
eða við hannyrðir var gulls ígildi.
Þorbjörg átti þó gnótt orða,
prýdd blæbrigðum norðlenskunn-
ar, þegar hún veitti okkur innsýn í
æsku sína og uppvöxt í Svarfaðar-
dalnum. Af einstakri frásagnarlist
kynnti hún okkur ýmsa siði og
venjur sinna heimaslóða er lutu að
jólahaldi og messugjörð; göngum
og sláturtíð; skólahaldi og manna-
mótum. Þar að auki átti hún í far-
teskinu frá bernskustöðvunum
fjársjóð ljóða, söngva og sálma sem
hún deildi með okkur.
Drengirnir okkar fengu jafn-
framt sinn ríkulega skerf af natni
Þorbjargar og ástríki í sínum upp-
vexti. Ekkert var þeim of gott.
Hún dekraði og nostraði, bakaði og
eldaði. Eldhúsið hennar varð
þeirra griðastaður. Þar var gott að
koma og spjalla við ömmu um
stund. Sötra djús og maula kex.
Hverfa svo á braut – þar til næst.
Nú þegar Þorbjörg hefur kvatt
okkur og þegið far heim í Dalinn
sinn væna er dýrmætt að eiga fal-
legar og hlýjar minningar um góð-
ar og gjöfular samverustundir,
kærleika og vináttu sem aldrei bar
skugga á.
Um leið og við óskum okkar
elskulegu tengdamóður góðrar
heimferðar þökkum við af öllu
hjarta samfylgdina í gegnum lífið.
Blessuð sé minning Þorbjargar
Þórarinsdóttur.
Anna Rögnvaldsdóttir
og Ellert Ólafsson.
Þorbjörg Þórarins-
dóttir Eldjárn
Smáauglýsingar
Gisting
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri
orlofshús við Akureyri og öll með
heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Námskeið
Svæðanuddnám á Heilsusetri
Þórgunnu
Hefur þú áhuga á að vinna
sjálfstætt? Fornám svæðanuddskóla
Þórgunnu byrjar fimmtudaginn
7. mars, frá kl. 16.00 til 18.00.
Frekari upplýsingar á helsusetur.is og
hjá Þórgunnu í síma 896 9653.
Sveitabær.is
Nautakjöt beint frá bónda
Seljum einungis 100% hreint gæða-
ungnautakjöt. Öll vinnsla í höndum
fagmanna. Nánari upplýsingar og
pantanir á sveitabær.is.
Ódýr blekhylki og tónerar
verslun í Hagkaup Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.
Blekhylki.is, sími 517-0150.
Kæliklefar - frystiklefar - Íshúsið
ehf. Kæli- eða frystiklefar sem eru
auðveldir í uppsetningu. Einnig laus-
frystar. Úrval af vélakerfum, hillum og
hurðum. Íshúsið ehf, www.ishusid.is
S. 566 6000.
Ýmislegt
Póstval – vefverslun
www.postval.is
NÝKOMIÐ - GLÆSILEGT !
Teg. REBECCA - léttfylltur og BARA
flottur í D-, DD-, E-, F-, FF-, G-skálum
á kr. 11,550.
Teg. GEM - mjúkur, æðislegur í D-,
DD-, E-, F-, FF-, G-skálum á kr. 9.770.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
laugard. kl. 10-14.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. 38588 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 17.200.
Teg. 8745 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 15.885.
Teg. 8742 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 15.885.
Teg. 7573 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 15.885.
Teg. 7097 Sérlega mjúkir og
þægilegir dömuskór úr mjúku leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 15.685.
Teg. 7904 Þægilegir dömuskór úr
leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 14.685.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Opið laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
MUSSO 99 DISEL TURBO
Ek. 216 þús. 35”. Á að sleppa á
37”. 5 gíra .
HÚSBÍLL FORD TRANSIT 91
vel pakkaður af dóti,þarfnast smá
lagfæringa.
RENAULT MASCOTT,
Árg. 2000. Ek. 208þús. km. Biluð
aksturstölva. Selst í heilu eða
pörtum. TILBOÐ
Get sent myndir.
professor@simnet.is
567 9642. 868 7177, 777 4296,
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Sími 555-1947 Gsm 894-0217
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Fjarlægi veggjakrot
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Varahlutir
50
Sendu eina fyrirspurn á 50
PARTASaLa og þeir svara þér ef
hluturinn er til.
www.partasalar.is
Til sölu
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÚSTAF GÚSTAFSSON,
Hraunbæ 26,
lést á heimili sínu föstudaginn 22. febrúar.
Útför hans fer fram frá Háteigskirkju fimmtu-
daginn 7. mars kl. 13.00.
Þorgerður Óskarsdóttir, Arnór Már Másson,
Rakel Gústafsdóttir,
Margrét Gústafsdóttir, Aron Þór Jóhannsson,
Gústaf Hrafn Gústafsson
og barnabörn.