Morgunblaðið - 06.03.2013, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013
Mansal, vændi, klámiðn-aður og hvers kyns kyn-ferðisleg misnotkun varhöfundum Karma fyrir
fugla ofarlega í huga þegar þær skrif-
uðu leikritið. Einnig er það farvegur
fyrir kynjapælingar og til að fjalla um
það ójafnvægi sem ríkir milli
kynjanna. Þetta kemur fram í viðtali í
leikskrá. Þar segir Kari Ósk, annar
höfunda verksins, meðal annars:
„Það er mjög áleitin spurning hvað
það eiginlega sé í manninum sem geri
það að verkum að menn vilji sjá kon-
una niðurlægða, hvort sem það er í
nauðgunarbúðum eða klámiðn-
aðinum.“
Auðvitað er dálítið hart að tilheyra
kyni sem sagt er að langi til að sjá
konur niðurlægðar en þær stöllur
geta því miður tínt ýmislegt til máli
sínu til stuðnings, allt frá ömurlegum
karlrembubröndurum þar sem þem-
að er niðurlæging, til kynlífsánauðar
auk margvíslegra misgjörða þar á
milli.
Styrkleiki þessarar sýningar er að
mínu mati mikill kraftur og tals-
verður frumleiki. Leikmyndin er sér-
stök og henni er breytt á skemmti-
legan hátt af leikendum.
Áhorfandanum birtast einnig oft
óvæntar, frumlegar og eftirminni-
legar myndir.
Grunnhugmynd verksins er að
tengja undirokun kvenna hvar sem er
í heiminum, bæði landfræðilega og
sögulega, á Íslandi, í Taílandi, á 21.
öldinni jafnt sem miðöldum. Hún er
sýnd í ýmsum myndum og það leitar
á mann að þetta séu allt hliðar á sama
peningi. Það er hins vegar galli á
verkinu, þó að það sé sett fram í oft
laustengdum atriðum, að flestar per-
sónur eru algerlega flatar og vekja
því tiltölulega lítinn áhuga eða samúð.
Dóttirin sem Þórunn Arna Krist-
jánsdóttir gerir prýðileg skil er mjög
veik persóna og alger leiksoppur.
Fína frúin móðir hennar, sem Marí-
anna Clara Lúthersdóttur leikur
einnig vel, er í grunninn heldur leið-
inleg manngerð líkt og maður hennar
og er því að mínu mati ekki sérlega
áhugaverð. Gamla útlifaða konan sem
Kristbjörg Kjeld túlkar af krafti er
ögn forvitnilegri og sama á við um
Ólafíu Hrönn í hlutverki vændiskonu
um fimmtugt. Hún er frosin framan
af eftir bitra reynslu en nær að snerta
við manni í lokin þegar hún fellir
grímuna og sýnir snefil af tilfinningu.
Ólafía miðlar þessu ágætlega.
Karlarnir eru fráhrindandi. Þor-
steinn Bachmann leikur að vanda vel
og er sjálfumglaður en heldur vit-
grannur háskólamaður sem leggur
áherslu á hvernig hann setji hlutina
alltaf í víðara samhengi. Ungu menn-
irnir sem Hilmir Jensson gerir góð
skil virðast allir hroka- og ofbeldis-
fullir. Hann er afar kraftmikill og
ógeðfelldur eins og ætlast er til að
þau ungu karldýr sem hann túlkar
séu.
Eitt atriði fór í taugarnar á mér en
það var þegar tvær konur sátu og
saumuðu út og byrjuðu að gagga eins
og hænur. Mér fannst örla á hroka í
þessum gaggleik. Er fólk sem stund-
ar handverk svona andlaust? Er
heimskulegt að sauma út?
Að lokum ætla ég svo að viður-
kenna að ég skildi ekkert í endinum
þegar uppljómuð búddanunna kemur
og nokkrar kvenpersónur verksins
sleppa fuglum úr búri. Kannski átti
þetta að standa fyrir einhverja von
um frelsun konunnar, ég veit það
ekki. Ég ætla hins vegar að leyfa mér
að halda því fram að úr því að þetta
atriði gat ekki kveikt neina hugmynd
að skilningi hjá mér eigi það við um
talsvert fleiri.
Konur allra tíma
Þjóðleikhúsið
Karma fyrir fugla bbbnn
Karma fyrir fugla eftir Kari Ósk Grétu-
dóttur og Kristínu Eiríksdóttur.
Leikarar: Herdís Þorvaldsdóttir, Hilmir
Jensson, Kristbjörg Kjeld, Maríanna
Clara Lúthersdóttir, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, Þorsteinn Bachmann og Þórunn
Arna Kristjánsdóttir.
Leikmynd og búningar: Anna Rún
Tryggvadóttir, tónlist: Guðlaug Mía Ey-
þórsdóttir, Helgi Þórsson og Steinunn
Harðardóttir, hljóðmynd: Guðlaug Mía
Eyþórsdóttir, Halldór Snær Bjarnason,
Helgi Þórsson og Steinunn Harðardóttir,
lýsing: Halldór Örn Óskarsson, aðstoð-
armaður leikstjóra: Halldór Halldórsson.
Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir.
3. sýning 3. mars.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
Kraftur „Styrkleiki þessarar sýningar er að mínu mati mikill kraftur og
talsverður frumleiki,“ segir m.a. í gagnrýni um leikritið.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Heimildarmyndin St. Sig: Strigi og
flauel, eftir Önnu Þóru Steinþórs-
dóttur, verður frumsýnd í Bíó Para-
dís í kvöld kl. 20 fyrir boðsgesti og fer
degi síðar í almennar sýningar. Anna
er einnig handritshöfundur mynd-
arinnar ásamt Þóru Sigríði Ingólfs-
dóttur. Í myndinni er fjallað um ævi
og störf listamannsins Steinþórs Sig-
urðssonar, leikmyndahönnuðar og
listmálara og föður Önnu, allt frá
uppvaxtarárum hans í Stykkishólmi
til nútímans. Steinþór er talinn til
merkari abstraktmálara sinnar kyn-
slóðar, starfaði einnig hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í yfir 40 ár og sat í bygg-
ingarnefnd Borgarleikhússins og
stýrði vali og hönnun á sviðsbúnaði
hússins. Steinþór varð áttræður í
febrúar sl. og hefur hin síðustu ár
unnið við uppsetningar á sýningum
og safnaefni.
„Það er pínu snúið, ekki síst vegna
þess að viðfangsefnið er nálægt
manni,“ svarar Anna, spurð að því
hvort það sé ekki ögn snúið að gera
heimildarmynd um föður sinn. „Á
móti kemur líka að maður þekkir við-
fangsefni sitt og það var t.d. eitt sem
mér var kennt í kvikmyndaskóla, að
vera ekki að leita langt yfir skammt,
og ég tók það alla leið.“
Vakti gamlar minningar
En hvers vegna ákvað hún að gera
mynd um föður sinn? „Ég hef marg-
oft verið hvött til þess, mörgum finnst
áhugavert að heyra um pabba og sjá
það sem eftir hann liggur. Ég fór að-
eins að grúska og hann, eins og svo
margir, á vinnustofu sem er full af
dóti og þar úir og grúir af teikn-
ingum, ljósmyndum og alls konar
hlutum sem tengjast hans fortíð. Mér
fannst þetta bara áhugavert efni að
fjalla um og það kveikti í gömlum
minningum úr barnæsku líka, minn-
ingum um karlinn sem stóð við trön-
urnar og lyktaði af terpentínu og var
allur í málningu,“ segir Anna. Hún
hafi líka farið oft með föður sínum í
Iðnó og eigi góðar og skemmtilegar
minningar þaðan. „Það var mjög sér-
stök stemning á þessum tíma og ég
vona að mér takist að koma henni
inn,“ segir Anna.
Hvað frásögnina varðar segir hún
stokkið fram og til baka í tíma í
myndinni, milli nútíðar og fortíðar.
„Þetta er ekki saga um mann sem er
fallinn frá, hann er sjálfur til frásagn-
ar og var á tökutímabilinu ennþá að
vinna ýmis verkefni. Þó hann hafi
ekki verið að gera leikmyndir eða
mála myndir var hann að vinna í upp-
setningum á söfnum, t.d. hjá Sela-
setrinu á Hvammstanga þannig að ég
gat fengið að fylgjast aðeins með því.“
-Hvað fannst honum um að þú vild-
ir að gera mynd um hann?
„Hann samþykkti það alla vega,“
segir Anna. „Hann var ekkert alltaf í
stuði til að láta myndavélina hanga
yfir sér,“ bætir hún við.
Leitaði ekki langt yfir
skammt að viðfangsefni
Heimildarmynd um Steinþór Sigurðsson frumsýnd
Leikhúslíf Eyvindur Erlendsson og Steinþór setja gervi á Þorstein Ö.
Stephensen í Kirsuberjagarðinum eftir A. Tsjekhov í Iðnó árið 1979.
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
ÞETTAREDDAST KL. 5:50 -8 -10:10
BEAUTIFULCREATURES KL. 5:50 -8 -10:40
BEAUTIFULCREATURESVIP KL. 5:20 -8 -10:40
FLIGHT KL. 8 -10:10
WARMBODIES KL. 8 -10:10
HANSELANDGRETEL KL. 8:20
PARKER KL. 10:50
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:50
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 6
KRINGLUNNI
PARSIFAL ÓPERA KL. 18:00
ÞETTAREDDAST KL. 5:50 -8 -10:10
THIS IS 40 KL. 8 - 10:40
THE IMPOSSIBLE KL. 5:40
FLIGHT KL.5:20-8-10:40
BEAUTIFULCREATURES KL.5:20-8
ARGO KL.5:20-8-9-10:30
WARMBODIES KL.10:40
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
ÞETTA REDDAST KL. 8 - 10:10
BEAUTIFUL CREATURES KL. 8
FLIGHT KL. 10:30
AKUREYRI
ÞETTA REDDAST KL. 8 - 10:20
BEAUTIFUL CREATURES KL. 8
FLIGHT KL. 10:20
EMPIRE
EINFRUMLEGASTA
GAMANMYND
SEM GERÐ
HEFUR VERIÐ
FÓRBEINT ÁTOPPINN ÍUSA
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND
3ÓSKARSVERÐLAUNÞAR Á MEÐALBESTA MYNDIN
TILNEFND TIL 2
ÓSKARSVERÐLAUNA
R.EBERT
ENTERTAINMENT WEEKLY
100/100
LA TIMES
JEREMY IRONSEMMATHOMPSONVIOLADAVIS
STÓRSKEMMTILEGT RÓMANTÍSKT
GAMANDRAMA MEÐ
BIRNI THORS Í AÐALHLUTVERKI
MÖGNUÐÆVINTÝRAMYND
BYGGÐÁMETSÖLUBÓKUNUM
UMLENU SEMBÝR YFIR
YFIRNÁTTÚRULEGUMKRÖFTUM
VIÐSKIPTABLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
NÁM Í DANMÖRKU
Á VIA UNIVERSITY COLLEGE,
BJÓÐUM VIÐ UPP Á FJÖLDA NÁMSKEIÐA
Í BOÐI ER:
Á ENSKU OG DÖNSKU Á ENSKU Á DÖNSKU
- Byggingaiðnfræði
- Byggingafræði
- Byggingatæknifræði
- Efnistæknifræði
- Markaðshagfræði
- Véltæknifræði
- Alþjóðleg
viðskiptafræði
- Framleiðslutæknifræði
- Tölvutæknifræði
- Útflutningstæknifræði i
- Aðgangsnámskeið
- Kort og
landmælinga tækni
- Véltæknifræði
- Véltækni
- Vöruþróun og
tæknileg sameining
KYNNINGARDAGUR – HÓTEL SÖGU Í REYKJAVÍK:
Fulltrúi skólans Johan Eli Ellendersen, verður á Íslandi laugardaginn
9. mars 2013, frá 11-16. Áhugasamir geta haft samband í síma 8458715.
Leggið inn skilaboð og við munum hringja til baka
Þessi námskeið eru í boði í Aarhus, Herning, Holstebro og Horsens
VIAUC.DK/HORSENS
VIA UNIVERSITY COLLEGE
Chr. M. Østergaards Vej 4
DK-8700 Horsens
Tel. +45 8755 4000
Fax: +45 8755 4001
Mail: horsens@viauc.dk