Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur úthlutað Stracta Construct- ion ehf. lóð fyrir hótel í Reykholti. Lóðirnar eru á skipulögðu þjón- ustusvæði, á bak við söluskálann Bjarnabúð sem stendur við þjóð- veginn. Stracta er að undirbúa byggingu hótela víðs vegar um landið. Það sótti um tvær lóðir við Skólabraut í Reykholti vegna þess að önnur lóð- in dugar ekki. Samtals eru lóðirnar um 9 þúsund fermetrar. „Öll uppbygging er af hinu góða. Uppsveitirnar eru mikill ferða- mannastaður og ég tel að þörf sé á að auka við gistirými. Það eru þá meiri möguleikar á að fólk staldri lengur við og nýti sér til fullnustu þá afþreyingu sem er til staðar,“ segir Valtýr Valtýsson sveitar- stjóri. Ekki hafa verið kynntar teikningar af hótelinu en sveitarfé- lagið vinnur að því að teikna upp lóðir og aðkomu. helgi@mbl.is Stracta fær hótellóð í Reykholti  Öll uppbygging af hinu góða Búðir Stracta byggir hótelin úr vinnubúðum frá Reyðarfirði. Starfshlutfall fjögurra dag- skrárgerðar- manna Ríkis- útvarpsins á Rás 1 verður skert um mánaða- mótin. Jafnframt var farið í hag- ræðingaraðgerðir í starfseminni. Með þessum aðgerð- um sparast tvö stöðugildi, að sögn Berglindar G. Bergþórsdóttur, mannauðsstjóra RÚV. Hún segir að hjá fyrirtækinu séu um 320 starfsmenn í föstu starfi en að meðtöldum lausráðnum og verktök- um sé starfsmannafjöldinn um 400 manns. „Við erum sífellt að leita leiða til þess að sýna aðhald í rekstri og þessar aðgerðir eru hluti af því,“ segir Berglind. vidar@m- bl.is Aðhaldsað- gerðir á Rás 1 www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Verð kr. 7.900.- St. M-XXXL Bæjarlind 6, sími 554-7030 www.rita.is NÝTT - NÝTT Laugavegi 2 • 101 Reykjavík • sími 552 1103 www.jurtaapotek.is • jurtaapotek@jurtaapotek.is Nýtt námskeið með Kolbrúnu grasalækni sem er sérsniðið fyrir fólk sem á við gigtarsjúkdóma að stríða. Kolbrún kennir hvernig má minnka einkenni gigtarsjúkdóma með góðu mataræði, inntöku jurta og ýmsu öðru. Farið er vel í hvaða jurtir virka bólgueyðandi, verkjastillandi, blóðhreinsandi, kraft- aukandi og styrkjandi en með því að þekkja jurtirnar getur fólk bjargað sér meira sjálft og slegið á einkenni gigtar. Skráning í síma 552 1103 eða á netfanginu jurtaapotek@jurtaapotek.is Námskeiðið er haldið á Laugavegi 2, þann 12. mars og hefst kl. 18.30. Verð 4.500 kr. Allir þátttakendur fá möppu með fróðleik og ítarefni og afslátt af vörum Jurtaapóteksins á námskeiðskvöldi. Gigt og grasalækningar Frábært úrval af aðhaldi fyrir maga, læri og rass. Aðhaldsundirföt 15% afsláttur Bláu húsin v/Faxafen - Suðurlandsbraut 50 - Sími 553 7355 - www.selena.is - Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. - Erum á Facebook „Eftir hrunið fóru námsmenn mikið út af leigumarkaðnum og fluttu í foreldrahús og við það losnuðu margar íbúðir hjá okkur. Árið 2009 fengum við tímabundið leyfi til að fara inn á almennan leigumarkað til að halda íbúðunum í notkun. Und- anfarið hefur eftirspurn eftir íbúð- um fyrir námsmenn aukist smátt og smátt. Það hefur leitt til þess að við bjóðum ekki lengur íbúðir á al- mennum leigumarkaði,“ segir Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri Byggingafélags námsmanna, BN. Stjórn félagsins tók um áramótin þá ákvörðun um að endurnýja ekki leigusamninga við þá sem leigja á almennum markaði. BN gerir leigusamning til eins árs í senn. Fé- lagið á 505 íbúðir. Nú eru um 30 íbúðir á almennum leigumarkaði sem fara í stúdentaleigu á þessu ári. Aðspurður hvort leiguverð muni lækka til námsmanna í kjölfarið segir hann: „Verðið á almenna markaðnum var hærra en það sem við bjóðum námsmönnum. Gagn- vart þeim sem leigja þegar hjá okk- ur breytist leiguupphæðin ekkert þótt við förum í þessar breytingar,“ segir Böðvar. Þrjátíu leiguíbúðir, sem fara bráðlega í leigu til náms- manna, verða leigðar út á sama verði og aðrar í eigu félagsins. thorunn@mbl.is Leigja nú aðeins námsmönnum  Eftirspurn eftir leiguíbúðum fyrir námsmenn eykst  505 leiguíbúðir Morgunblaðið/Styrmir Kári Leigumarkaður BN mun alfarið leigja námsmönnum íbúðir. mbl.is alltaf - allstaðar Í tilefni alþjólegs baráttudags kvenna í dag, 8. mars, verður haldinn hádegis- verðarfundur á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni „Kynhlutverk og kynskiptur vinnu- markaður, ný kynslóð nýjar hug- myndir?“ Dagskráin er skipulögð í samstarfi ASÍ, BSRB, BHM, KÍ, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu. Á dagskránni eru þrjú erindi sem öll fjalla um ungt fólk. Einnig verður fundur kl. 17 í Iðnó sem margs konar samtök standa að, m.a. Kvenfélaga- samband Íslands, Kvenréttinda- félag Íslands, Samtök kvenna af er- lendum uppruna, Stígamót, Femínistafélag Íslands, SFR og Samtök herstöðvaandstæðinga. Fundað í tilefni alþjóðlegs bar- áttudags kvenna IKEA á Íslandi lét DNA-greina unn- ar kjötvörur fyrirtækisins hjá Mat- vís í kjölfar umræðu um hrossakjöt í IKEA-kjötbollum erlendis. Tólf sýni voru send til greiningar og ekkert þeirra reyndist innihalda hrossakjöt. Sýni voru send úr kjöt- bollum af veitingastað sem og frosnum, pylsum, skinku, roastbeef, pepperoni, beikoni og kjötsósu. Þá hefur IKEA ákveðið að fækka rétt- um með unninni kjötvöru og leggja áherslu á hollari mat. Ekkert hrossakjöt í kjötvörum IKEA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.