Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Dýraspítalinn í Garðabæ & MP banki Viðskipti sem gagnast stórum og smáum Hanna, Jakobína og félagar á Dýraspítalanum í Garðabæ taka á móti yfir þúsund dýrum í hverjum mánuði, stórum sem smáum. Þau eru sérfræðingar á sínu sviði og sinna fjölbreyttum þörfum viðskiptavinanna. Það gerum við líka. Þess vegna er Dýraspítalinn í Garðabæ í viðskiptum hjá okkur. Ármúli13a / Borgartún26 / 540 3200 / www.mp.is banki atvinnulífsins B ra nd en b ur g Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Það er mikið um að vera.Hópur ungs fólks er sam-an kominn og fær sér sætií kringum langborð. Lista- kokkarnir Beggi og Pacas hafa verið fengnir til að kynna hópinn fyrir hollri og góðri matargerð og kitla bragðlauka þátttakenda með framleiðslunni. Pacas undirbýr eldhúsið á meðan Beggi fræðir hóp- inn um hollustu og slær á létta strengi á meðan. Þátttakendur eru sammála um að þeim finnist matargerðin sem þau munu brátt taka þátt í heldur flókin en víla ekki fyrir sér að ráðast í verkefnið. Skurðarbretti, hnífar og grænmeti ferðast á milli fróðleiks- fúsra þátttakendanna. Á þessum stað er hvorki spurt um stétt né stöðu. Þarna er saman kominn hóp- ur, ungliðahópur sem deilir reynslu sem enginn vill eiga að baki. Hitta aðra í sömu sporum Ungliðahópurinn er samstarfs- verkefni Ljóssins, Krafts og Styrkt- arfélags krabbameinssjúkra barna og hefur hann verið starfræktur frá árinu 2010. „Þetta er hugsað fyrir ungt fólk á aldrinum 18-29 ára sem hefur greinst með krabbamein og líka aðstandendur þeirra,“ segir Kristján Th. Friðriksson, umsjón- armaður hópsins. Hópurinn hittist á tveggja Deila erfiðri reynslu en skemmta sér saman Ungliðahópur Ljóssins, Krafts og SKB er hópur ungs fólks á aldrinum 18-29 ára sem deilir þeirri reynslu að hafa greinst með krabbamein. Hópurinn hittist á tveggja vikna fresti og skemmtir sér saman undir leiðsögn Kristjáns Th. Friðriks- sonar. Þátttakendur njóta jafningjastuðnings þeirra sem hafa fetað sama veg þrautagöngunnar um leið og þeir taka þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá. Morgunblaðið/Eva Björk Hópurinn Búin að elda saman og setjast nú að borðum til að snæða. Girnilegt Fjölbreytileikinn ræður för hjá Begga og Pacas. Kristján Th. Friðriksson Á fésbókarsíðu Háskóla Íslands er kjörið að fylgjast með komandi við- burðum á vegum skólans. Á morgun, laugardag, býður til að mynda skól- inn landsmönnum á öllum aldri í heimsókn. Húsið verður opnað kl. 12. Í boði verða ótal viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindin í lit- ríku og lifandi ljósi. Sprengjugengi HÍ verður með krassandi sýningar með ljósagangi og logandi fjölbragða- glímu við eldfimu efnin. Gestir geta kynnt sér fjölbreytt námsframboð háskólans, starfsemi og þjónustu, skoðað rannsóknastof- ur, tæki, búnað og húsakynni. Á staðnum verða vísindamenn og nem- endur úr öllum deildum skólans sem svara spurningum um allt milli him- ins og jarðar. Vefsíðan www.facebook.com/HaskoliIslands Ljósmynd/Háskóli Íslands Vísindi Það verður margt forvitnilegt að sjá á opnu húsi HÍ á morgun. Opið hús í Háskóla Íslands Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Hvað slær kukkan? Hún slær þrjú. Skemmtistöðunum er lokað. Dyra- verðir smala fénu út, misvel á sig komnu. Í Miðbæjarréttum ríkir ka- os. Hápunkturinn fyrir féð. Fjöl- miðlar birta lýsingar og myndir af hrútum sem geifla sig og sýna. Margir hverjir slást og sýna mátt sinn eða vanmátt. Ærnar, sumar hverjar ælandi af ofdrykkju, lauma framfótum sínum yfir herðar kort- eríþrjúhrútanna svokölluðu. Stálp- að fé sem hélt kyrru fyrir heima við guðar, jesúsar og blessar sig, svartsýnt á framtíð ungviðisins. Ærin ég lofaði ætíð þessa stund. Þarna átti ég þess kost að hitta þá sem hjarta mitt hafði slegið fyrir. Í dag hefur hugur minn fyrir löngu slátrað þessum hjarta- og sálu- stelandi hrútum. Þarna fékk ég líka tækifæri á að hitta fénað úr fjarlægum réttum sem ég sjald- an gat hitt. Ærin ég var sátt við þrjúlokun skemmtistaða enda enn á táningsárum rétt að byrja að kynnast hinum forboðna heimi. Réttarstjórar og aðrir löglærðir marklýsing- armenn voru öllu greindari en ærin ég og tóku fyrir að öllum skemmtistöðum yrði lokað í einu. Í dag á ærin tvö lömb og guðar, jesúsar og blessar sig yf- ir því að ekki sé lengur öllu fé sleppt út í einu í Miðbæjarrétt, nú þegar styttist í að lömbin hennar fari að sækja þangað. Í dag fær ærin líka útrás í öðrum réttum og upplifir sömu tilfinningu og hún gerði klukkan þrjú um helgar á táningsárunum. Það er á fótbolta- mótum hjá lömbunum litlu. Hvar smáfættir elta tuðrur koma saman ær og hrútar sem jarma á hliðarlínunum. Í Boltaréttunum eru hrútar sem áður stálu hjörtum og í réttunum eru ær sem jörmuðu með mér og öðr- um yfir þessum hjarta- sárum. Ær sem fylgdu mér stóran hluta æsku minnar og ég allt of sjaldan hitti. Í dag eru Boltaréttir svo miklu skemmtilegri en Miðbæj- arréttir. »Í dag hefur hugurminn fyrir löngu slátr- að þessum hjarta- og sálu- stelandi hrútum. HeimurSignýjar Signý Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.