Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Straumur fjárfestingarbanki hyggst gefa út víxla einu sinni í mánuði eða annan hvern mánuð. Fjárhæð hvers flokks verður að líkindum 200 til 500 milljónir króna og þegar fram í sækir, ef allt gengur að óskum, gæti heildarútgáfan orðið einn til þrír milljarðar króna, að því er Jakob Már Ásmunds- son, forstjóri Straums, segir Morgunblaðinu. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga hjá fjárfestum sem vilja ávaxta fé sitt til skamms tíma enda er ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum um þessar mundir,“ segir hann. Viðskiptablaðið sagði frá því í gær að Íslandsbanki hygðist gefa út bankavíxla fyrir allt að 25 millj- arða króna á næstunni. Þetta verða fyrstu útgáfurnar af þessu tagi frá bankahruni. Útboð 21. mars Ávöxtun bréfanna mun ráðast í útboði, hið fyrsta verður haldið 21. mars. Víxlarnir verða rafrænt skráðir og því væntanlega fýsilegur kostur í augum fjárfesta en eftir bankahrun hefur verið mikill skort- ur á slíkum fjárfestingarkostum. „Hlutabréfamarkaðurinn hefur verið í sókn að undanförnu og von- andi er þetta skref í átt að því að fyrirtæki muni í auknum mæli gefa út víxla og skuldabréf. Þessi útgáfa er liður í uppbyggingu markaðar- ins,“ segir Jakob. Mikill skortur er á fjárfesting- arkostum til skamms tíma og mun umrædd útgáfa því gefa fjárfestum val, að sögn Jakobs. Nú hafi þeir um fátt annað að velja en að leggja peninga inn á bankabók sé einungis horft til skemmri tíma. „Við erum að sækja fé vegna aukinna umsvifa hjá okkur, við erum til að mynda með mikla veltu á skuldabréfa- markaði. Auk þess er þetta liður í því að byggja upp fjölbreyttari fjár- mögnun hjá bankanum. Ég tel að það sé áhugaverður kostur að fjár- festa í víxlum Straums. Hann er vel fjármagnaður með gagnsæjan efna- hagsreikning. Fjárfestar vita því vel að hverju þeir ganga,“ segir hann. Dreifðari fjármögnun banka Fram kom í Viðskiptablaðinu að á undanförnum 15 mánuðum hefðu Íslandsbanki og Arion tekið skref í áttt að dreifðari fjármögnun. Frá hruni hefði fjármögnunin verið einsleit og einkennst af innlánum. Í desember 2011 gaf Íslandsbanki út sértryggð skuldabréf og fylgdi út- gáfa Arion banka í kjölfarið. Ný- lega braut svo Arion ísinn með skuldabréfaútgáfu erlendis, í Nor- egi nánar tiltekið, fyrir 500 millj- ónir norskra króna eða 11,2 millj- arða íslenskra króna. Straumur hyggst gefa út bankavíxla  Sú útgáfa er að glæðast eftir langan frostavetur frá hruni Morgunblaðið/Golli Áhugi „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga hjá fjárfestum sem vilja ávaxta fé sitt til skamms tíma,“ segir Jakob Már Ásmundsson, forstjóri Straums. Rafrænir víxlar » Straumur ætlar að gefa út rafræna víxla einu sinni í mánuði eða annan hvern mánuð. » Þegar fram í sækir gæti útgáfan orðið einn til þrír milljarðar króna. » Fyrsta útboðið verður 21. mars. » Fáir kostir eru í boði fyrir þá sem vilja fjárfesta til skemmri tíma. » Er liður í uppbyggingu markaðarins og því að byggja upp fjölbreyttari fjármögnun Straums. »Í slandsbanki hyggst einnig gefa út bankavíxla á allra næstu mánuðum. » Á síðustu 15 mánuðum hafa Ísalndsbanki og Arion tekið skref í átt að fjölbreytt- ari fjármögnun. Jakob Már Ásmundsson Eimskip hefur verið með í undirbún- ingi breytingar á siglingakerfi fé- lagsins sem miða að því að útvíkka kerfið á Norður-Atlantshafi, fjölga viðkomuhöfnum og bæta við einu gámaskipi í flotann, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Meðal annars fer Brúarfoss frá Reykjavík 14. mars nk. í sína fyrstu strandsiglingu norður fyrir Ísland með tengingu við Færeyjar, Bret- land og meginland Evrópu. Fram kemur í tilkynningu að Eim- skip muni frá 26. mars nk. hefja við- komur í Portland, Maine á austur- strönd Bandaríkjanna í stað þess að sigla á Everett og Norfolk í Virginia, en með þeirri ráðstöfun styttist hringferðartími skipanna. Helstu breytingar Fram kemur að helstu breytingar verða ný vikuleg strandsiglingaleið sem tengir Ísland við Færeyjar, Bretland (Skotland) og meginland Evrópu. Skip félagsins munu koma vikulega við í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri og Reyðarfirði. Aukin ferðatíðni og styttri sigl- ingatími til og frá Bandaríkjunum, auk þess sem Ameríkuskip félagsins á leið vestur eigi þess kost að hafa viðkomu m.a. á Akureyri og Ísafirði á leið sinni frá Noregi. Með þessu skapist beinn aðgangur að hráefnis- öflun í Noregi og Rússlandi fyrir fiskvinnslur á Íslandi. Eimskip muni bjóða upp á nýja þjónustu fyrir ferskan fisk frá Fær- eyjum, sem felist í vikulegum sigl- ingum á nýrri siglingaleið með við- komu í Færeyjum á hverjum mánudegi. Þannig gefist Færeying- um kostur á að flytja ferskan fisk í gámum til dreifingar á Bretlandseyj- um á miðvikudegi. Auk viðkomu í Þórshöfn verði komið við í Vágur á Suðurey þar sem mikill vöxtur hafi verið í vinnslu á uppsjávarfiski. Eimskip breytir siglingakerfinu  Útvíkkun á Norður-Atlantshafi Larus Karl Ingason Breytingar Eimskip gerir miklar breytingar á siglingakerfinu. Sjá sölustaði á istex.is LOPI 32

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.