Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Farþegar Icelandair í millilandaflugi
voru alls 104 þúsund talsins í febrúar
og voru þeir 12% fleiri en í febrúar á
síðasta ári. Framboðsaukning í febr-
úar var 17%. Sætanýting var 73,6%
og dróst saman um 1,4%. Þetta kem-
ur fram í flutningstölum frá Ice-
landair.
12% fjölgun farþega
● Atvinnuleysi mældist 10,6% í Frakk-
landi á fjórða fjórðungi ársins 2012 og
hefur ekki mælst svo mikið í fjórtán ár,
samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu
Frakklands. Á þriðja ársfjórðungi mæld-
ist atvinnuleysið í þessu næststærsta
hagkerfi evrusvæðisins 10,2%.
Mesta atvinnuleysi í
Frakklandi í 14 ár
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Verktakafyrirtækið S.G. smiðir
vinnur að því að reisa átta einbýlis-
hús í Þorrasölum í Kópavogi. „Mín
sérstaða liggur í því, að ég er sá eini
sem er að reisa einbýlishús um þess-
ar mundir, aðrir eru að byggja
blokkir,“ segir Sigurður Gunnars-
son, eigandi fyrirtækisins.
Hann hefur þegar afhent tvö hús
og er við það að afhenda það þriðja.
Hvert hús kostar um 60 milljónir og
ef allt gengur að óskum verður velt-
an af sölunni um 480 milljónir króna.
Það er eftirspurn eftir nýjum ein-
býlishúsum á einni hæð, að sögn
Sigurðar, og því hafi hann ákveðið
að ráðast í þessar framkvæmdir.
Það séu ávallt einhver tækifæri í
hvaða árferði sem er. „Það þarf bara
að finna taktinn,“ segir hann. Frá
sjónarhóli verktakans nefnir hann
að það taki styttri tíma að reisa ein-
býlishús en blokkir. Um sé að ræða
sex ára vekefni og tvö ár séu liðin.
Fimm vinna hjá Sigurði við að
reisa húsin.
Í úttekt Arion banka um fast-
eignamarkaðinn sem birtist í desem-
ber segir að allt útlit sé fyrir að að-
stæður á fasteignamarkaði séu að
verða heilbrigðar að nýju og bati á
fasteignamarkaði hvíli á traustari
stoðum en áður. Óhætt sé þó að
segja að hár byggingarkostnaður sé
helsta hindrunin í vegi framboðs
nýrra eigna. Til að nýbygging fari af
stað þarf markaðsverð að hækka
eða byggingarkostnaður að lækka.
Nýir (og óskuldsettir) kaupendur
á markaði muni styðja við fasteigna-
verð og aðstæður til að koma inn á
markaðinn hafi batnað verulega á
síðustu misserum. „Búast má við
nær stöðugri eftirspurn eftir íbúð-
um á höfuðborgarsvæðinu á næstu
árum sökum lýðfræðilegrar þróun-
ar. Íslendingum fer fjölgandi og er
það lykilþáttur í stuðningi við verð-
hækkun á fasteignamarkaði. Ef
mannfjöldaspá Hagstofunnar fyrir
árin 2012 til 2016 (og áætlun grein-
ingardeildar) gengur eftir má gera
ráð fyrir því að hrein árleg eftir-
spurn eftir íbúðum á höfuðborgar-
svæðinu verði í kringum 1.600 íbúðir
á ári að jafnaði,“ segir greiningar-
deildin.
Verktaki hyggst reisa átta
einbýlishús í Kópavogi
Sigurður Gunnarsson segist „sá eini sem er að reisa einbýlishús“
Reynsla Sigurður Gunnarsson, eigandi S.G. smiða, hefur unnið í bygging-
argeiranum í 25 ár, byrjaði 16 ára gamall, og er með tvo lærlinga.
Morgunblaðið/Ómar
Eftirspurn eftir
1.600 íbúðum
» Lítið hefur verið byggt
eftir hrun, en gera má ráð
fyrir að hrein árleg eftir-
spurn eftir íbúðum verði um
1.600 íbúðir á ári að jafn-
aði, árin 2012-2016.
» Fyrsta skóflustungan að
fyrsta einbýlishúsinu í
þessu verkefni S.G. smiða
var tekin í apríl fyrir tveim-
ur árum.
» Morgunblaðið sagði frá
því að verktakafyrirtækið
MótX væri að reisa 35
íbúða fjölbýlishús í Þorra-
sölum í liðnum mánuði.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+12.-
+,+.3
,+.14,
,+.035
+0.5,4
+3,./4
+.3,21
+11.,-
+5,.1-
+,-.30
+12.05
+,+.55
,+.0/5
,,.//+
+0.51+
+3,.4+
+.33+2
+11.1+
+53.3+
,,,.5132
+,-.50
+11.4,
+,,./,
,+.02
,,./55
+0.231
+3,.21
+.33-5
+10.32
+53.22
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.