Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Aldís Rún Ingólfsdóttir er tuttugu og þriggja ára í dag. Hún út-skrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sundárið 2010 og vinnur nú í skóbúðinni Kron á Laugaveginum. Afmælisdeginum ætlar hún að eyða í vinnunni og enda hann síðan á því að fá sér kaffi og pönnukökur með vinum og ættingjum. „Ég hlakka bara til að verða eldri,“ segir Aldís Rún. Hún hyggur á nám í haust og hefur sótt um í Listaháskóla Íslands. Áhugamál hennar eru tíska, listir og fagurfræðilegir hlutir almennt. Lestur er í miklu uppáhaldi hjá henni en Haruki Murakami er sá allravinsælasti á náttborðinu hjá henni þessa dagana. Aldís ferðaðist um heiminn í fimm mánuði á síðasta ári með þrem- ur vinkonum sínum. „Heimsreisan kenndi mér að verða sjálfstæðari og að ég gæti gert allt sem ég vildi.“ Aldís ferðaðist til Ástralíu, Balí, Suðaustur-Asíu og Indlands. Hún segir að það eftirminnilegasta hafi verið litadýrðin og fólkið á Ind- landi og hana langi að fara þangað aftur sem allra fyrst. „Tengslin við vinkonur mínar urðu nánari eftir ferðina og ég fann hvað ég elska kærastann minn mikið.“ Kærastinn heitir Máni M. Sigfússon og þau eru í sambúð. For- eldrar Aldísar eru Sigurlaug Jónsdóttir, kennari og nemi í guðfræði, og Ingólfur B. Aðalbjörnsson byggingartæknifræðingur. mae9@hi.is Aldís Rún Ingólfsdóttir er 23 ára í dag Afmælisstelpa Aldís Rún ætlar að halda upp á afmælisdaginn með því að fá sér kaffi og pönnukökur með vinum og ættingjum í kvöld. Hlakkar til að verða eldri Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Kópavogur Sævar Þór Zoëga fæddist 27. júní kl. 18.53. Hann vó 3.098 g og var 50,5 cm langur. Foreldrar hans eru Halla Kristín Jónsdóttir og Einar Fal- ur Zoëga Sigurðsson. Nýir borgarar Reykjavík Valgerður Elsa Nganle fæddist 28. september. Hún vó 1.654 g og var 42 cm. Foreldrar hennar eru Björg Pálsdóttir og Guy Rodrigue Ghomsi. E ggert fæddist í Reykjavík 8.3. 1953 og ólst þar upp í Laugarásnum, var í sveit í Stóra- Vatnsskarði í Skagafirði, var í Laugalækjarskóla og var síðan á íslenskum togurum í nokkur ár. Eggert stundaði nám í feld- skurði í London, í Tranås í Svíþjóð og hjá einu virtasta feldskurðar- fyrirtæki heims, Mattsons í Malmö, en þaðan útskrifaðist hann sem feldskurðarmeistari. Eggert stofnaði fyrirtækið Egg- ert feldskeri árið 1977, og hefur starfrækt það síðan við vaxandi vinsældir, fyrst við Laugaveg, síð- an í Hafnarstræti og loks við Skóla- vörðustíg þar sem hann heldur heimili sitt og rekur verslun sína og verkstæði. Eggert hefur innleitt ýmsar nýj- ungar með nýtingu á margvíslegu sjávarleðri og hefur hannað mikið úr selskinni. Hann var kjörinn í einn virtasta klúbb hönnuða og sér- fræðinga í heimi feldskera er nefn- ist „Purple Club“ eða Purpura- klúbburinn árið 2006, en í þann félagsskap eru eingöngu valdir feldskerar sem hafa hlotið al- þjóðlega viðurkenningu fyrir loð- feldi sem teljast með því besta sem býðst. Hinir bráðfjörugu Spottar Eggert sat í stjórn handknatt- leiksdeildar Ámanns í átta ár. Hann situr í ráðgefandi nefnd IFTF - International Floriculture Trade Fair. Eggert spilar listavel á gítar, syngur eins og engill og hefur leikið með þjóðlagahópnum Spottarnir um fimm ára skeið. Þeir koma víða fram og léku á Bellman-hátíð í Stokkhólmi í fyrra. Aðrir meðlimir eru Ragnar Sigurjónsson (Gösli) á slagverk; Ein- ar Sigurðsson á bassa og Magnús R. Einarsson á gítar. Spottarnir hafa leikið og sungið Eggert Ólafur Jóhannsson feldskeri - 60 ára Feðgin Eggert feldskeri ásamt dóttur sinni, Önnu Gunnlaugu, sem er hattagerðarkona og starfar hjá föður sínum. Feldskurðarmeistarinn Morgunblaðið/RAX Spottarnir Hin bráðfjöruga þjóðlagasveit sem Eggert leikur með. TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í 16 ÁR HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14 Verið velkomin MIKIÐ ÚRVAL. SJÓNMÆLINGAR Á STAÐNUM. FRÁBÆRT TILBOÐ Á LES-,TÖLVU- OG FJAR- LÆGÐARGLERAUGUM. VERÐ FRÁ 18.900, UMGJÖRÐ OG GLER. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.