Morgunblaðið - 08.03.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013
Fjórar þingkonur tala á baráttu-
samkomu íslenskra kvenna í
Jónshúsi í Kaupmannahöfn í
kvöld kl. 19.30. Þingkonurnar eru
Álfheiður Ingadóttir, Katrín Júl-
íusdóttir, Vigdís Hauksdóttir og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Aðalerindi kvöldsins flytur dr.
Þorgerður Einarsdóttir, prófess-
or í kynjafræði við Háskóla Ís-
lands: „Hrun og heimsmet í
kynjajafnrétti? Femínisminn –
fimm árum síðar.“
Íslenski kvennakórinn í Kaup-
mannahöfn stendur fyrir söng og
sér um veitingasölu.
Fjórar þingkonur
tala í Jónshúsi
16. Unglingalandsmót UMFÍ verður
haldið á Höfn í Hornafirði dagana
2.-4. ágúst í sumar.
Þetta er í annað sinn sem mótið
er haldið á Höfn en síðast var það
haldið þar árið 2007. Veruleg upp-
bygging íþróttamannvirkja var fyr-
ir mótið 2007 og hún hefur haldið
áfram síðan. Ný sundlaug og stórt
knattspyrnuhús hafa verið tekin í
notkun. Tjaldsvæðið sem verður vel
útbúið verður í göngufæri við aðal-
keppnissvæðið. Keppnisgjald er
6.000 krónur á keppanda.
Eftirtaldar keppnisgreinar verða
á Höfn: Fimleikar, frjálsar íþróttir,
glíma, golf, hestaíþróttir, íþróttir
fatlaðra, knattspyrna, körfuknatt-
leikur, motocross, skák, starfs-
íþróttir, sund og karate.
Samning um mótshaldið undirrit-
uðu Hjalti Þór Vignisson, bæjar-
stjóri á Höfn, Matthildur Ásmund-
ardóttir, formaður Ungmenna-
sambandsins Úlfljóts, og Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ.
Unglingalandsmót
UMFÍ haldið á Höfn
STUTT
Vörumessa Fyrirtækjasmiðju
ungra frumkvöðla verður í Smára-
lind um helgina.
Þar verða 30 fyrirtæki fram-
haldsskólanema með bása og
kynna verkefni sín og selja vörur
og þjónustu. Fyrirtækin keppa um
titilinn „Besta fyrirtækið“ og sig-
urvegarinn hlýtur þátttökurétt í
Evrópukeppninni Junior Achieve-
ment í London næsta sumar.
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra flytur ávarp og opn-
ar vörumessuna formlega kl. 16.00
í dag. Henni lýkur á morgun kl.
18.
Vörumessa ungra
frumkvöðla opnuð
SVIÐSLJÓS
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Vart þarf að fjölyrða um áhrif hríðar-
bylsins sem gekk yfir landið sl. mið-
vikudag með tilheyrandi raski á dag-
legu lífi fólks. Hríðarbylurinn var
óvenjulegur.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
ritar pistil á bloggsíðu sína eftir að
hríðarbylurinn hafði gengið yfir. Þar
segir hann að það sé t.d. ekki algengt
að hríðarveður standi yfir svo lengi í
Reykjavík, eða í meira en þrjá athug-
unartíma samfleytt, frá níu til tólf
klukkustundir.
„Þótt austanbyljir séu ekki svo fá-
tíðir í Reykjavík standa þeir yfirleitt
ekki nema í þrjá til fimm tíma. All-
mikið frost hélst allan tímann sem byl-
urinn stóð,“ segir Trausti.
Hann notast við sömu skilgreiningu
á hríðarveðri og er á vef Veðurstof-
unnar á hríðarathugunum í Reykjavík
frá 1949. Af þeim 425 athugunum
kemur í ljós að 177 (42%) falla á áttir
milli norðurs og austsuðausturs eins
og umræddur hríðarbylur. Samt sem
áður voru býsna fjölbreyttar veðurað-
stæður þá uppi, að sjálfsögðu engar
nákvæmlega þær sömu og voru á mið-
vikudaginn. Þá klykkir Trausti út í
lokin á færslu sinni og segir: „Vonandi
fer veðrinu að slota en þó segja spár
að vindur eigi að þrjóskast við og eru
ekkert allt of bjartsýnar með hitann
heldur. Úrkoman í þessu óvenjulega
veðurkerfi er varla heldur alveg búin.“
Veðurstofan á Facebook
Óveðrinu var spáð. Á Facebook-
síðu Veðurstofunnar 5. mars stóð: „En
það verður ekki fallegt veðrið sunnan-
lands í fyrramálið. Veðurstofa varar
við norðaustan hvassviðri eða stormi
og snjóbyl með skafrenningi og slæmu
skyggni sunnanlands seint í nótt og
fram eftir morgundeginum. Má því
búast við að færð spillist víða. Versta
veðrinu er spáð suðvestanlands.“
Að sögn Þorsteins Jónssonar, veð-
urfræðings á Veðurstofunni, eru
kuldaköst í marsmánuði algeng.
„Fólk gleymir því gjarnan, þegar
kemur góður kafli í febrúar, að mars
er vetrarmánuður,“ segir hann.
Hvasst áfram næstu daga
Í gær hlýnaði nokkuð og rigning
komin í stað snjókomu. Samgöngur
voru því greiðfærar um borgina. Hins
vegar vöknuðu íbúar á höfuðborg-
arsvæðinu í gærmorgun við að ösku-
fjúk hafði gert snjóinn skítugan, sem
og ökutæki og hús.
Samkvæmt Veðurstofu er spáð
austanátt í dag, 15-23 m/s, hvassast
við suðurströndina. Dálítil snjókoma
og slydda með köflum og rigning
syðst, en skafrenningur norðaustan-
lands. Hiti 0 til 5 stig á Suður- og Vest-
urlandi en frost annars 1 til 6 stig. Á
morgun verður austan 8-13 m/s, en 15-
18 syðst. Él suðaustanlands, en ann-
ars víða bjartviðri. Hiti 0 til 5 stig við
suður- og vesturströndina, en annars
vægt frost.
Á sunnudaginn og mánudaginn
verður fínasta veður, hægur vindur og
bjart, frost á bilinu 0-10 gráður.
Greint hefur verið frá því að febr-
úarmánuður síðastliðinn var með þeim
hlýjustu slíkum frá upphafi mælinga á
19. öld. Úrkomusamt var um landið
sunnanvert og var mánuðurinn sums
staðar sá úrkomusamasti til þessa,
samkvæmt vef Veðurstofunnar.
Þar af leiðandi tók gróður víða við
sér og voru tún á Suðurlandi mörg
hver orðin iðjagræn og því lék forvitni
á að vita hvort kuldakastið hefði haft
áhrif á túnin.
„Á Suðurlandi verður lítið um kal í
túnum en auðvitað grisjast alltaf eitt-
hvað við svona [kulda]. Eftir því sem
hlýindakaflarnir verða fleiri á milli
frostkafla því meira grisjast, hversu
mikið fer alltaf eftir vorinu,“ segir
Kristján Bj. Jónsson, jarðræktar-
ráðunautur á Suðurlandi. Grösin fara
af stað í sprettu þegar hitastigið er í
kringum 3,5 gráður.
Óvenjuleg veðurkerfi ríkjandi
Ekki algengt að hríðarveður standi yfir svo lengi í Reykjavík Veðurspáin stóðst Mars er
vetrarmánuður og kuldaköst eru algeng Ekki miklar líkur á kali í túnum en grös munu þó grisjast
Morgunblaðið/RAX
Óveður Íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengu að finna fyrir vetrinum á miðvikudaginn svo um munaði.
Óveðrið 6. mars
-6°
15
-6°
21
-9°
26
-5°
15
-5°
5
-6°
15
-5°
11
-7°
19
-3°
10
-9°
11
-11°
17
-10°
19
-4°
12
-8°
15
2°
9
-2°
7
-2°
11
-0°
12-0°
39
-3°
13
-2°
22
Allur trjágróður var við það að
springa út í hlýindunum. Brum-
ið var langt komið. „Það er
spurning hvaða áhrif þetta hef-
ur en ég reikna með að þetta lifi
mestallt þó að þetta hafi gerst.
En birkið lætur ekki plata sig;
það stjórnast af því hve lengi er
bjart en ekki hita. En á inn-
fluttum trjáplöntum, runnum og
trjám, voru blöðin við það að
springa út,“ segir Kristján Bj.
Jónsson, jarðræktarráðunautur
á Suðurlandi. Hann man vel eft-
ir Hákonarhretinu svokallaða
árið 1963. Hann segist vona að
viðlíka hret komi ekki aftur því
trjágróður drapst víða á Suður-
landi. Hákonarhretið er nefnt
eftir Hákoni Bjarnasyni, þáver-
andi skógræktarstjóra.
Birkið lætur
ekki blekkjast
ÁHRIF HLÝINDANNA