Morgunblaðið - 08.03.2013, Síða 36

Morgunblaðið - 08.03.2013, Síða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gamansemi þín gengur vel í aðra svo þú ert vinsæl/l meðal vina og samstarfs- manna. Þér fer vel að stjórna, gerðu meira af því. 20. apríl - 20. maí  Naut Gefðu þér tíma til að gera heimili þitt meira aðlaðandi. Langur og langdreginn há- degismatur í einrúmi er gott mótvægi við of- virkni dagsins. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú getur verið hreykin/n af því hvernig þú hefur haldið á málum og komið þér fyrir. Hættu að reyna að fá fólk til þess að vera sammála þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gættu þess að tala tæpitungulaust svo enginn þurfi að fara í grafgötur um hvað það er sem þú vilt. Mundu að öllum orðum fylgir ábyrgð og reyndu að leiða átökin sem mest hjá þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Kraftmiklar tilfinningar gera vart við sig í sumum ástarsamböndum í dag. Vertu vand- lát/ur á val þeirra sem þú gefur tíma þinn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Kröfurnar frá umhverfinu virðast yfir- þyrmandi í dag. Leggðu þig fram um að sjá málin í víðara samhengi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert að ganga í gegnum mikinn tilfinn- ingasrússibana nú um stundir sem slær þig eilítið út af laginu. Mundu að vera gagnorð/ ur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Innsæi þitt getur af sér kær- komna skipulagningu í vinnu. Að vilja eitt- hvað sem ekki er í boði er ávísun á leiðindi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert með ýmsar vangaveltur í sambandi við ákveðna samstarfsmenn þína. Kannski af því að tilgangur þinn er sá að gera eins vel og þú getur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hættu að velta þér upp úr mistök- unum. Ef þú veist ekki hvað gera skal, reyndu þá að hjálpa öðrum með því að hjálpa sjálf- um/sjálfri þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Finnist þér að gengið hafi verið á rétt þinn skaltu sýna festu og rétta þinn hlut. Fyrr eða síðar kemur þinn tími, vertu bara þolinmóð/ur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú virðist ekki ráða við aðstæður lengur, en það er enn tími til að snúa hlut- unum við. Farðu varlega og mundu að sak- laust daður getur alltaf þróast upp í eitthvað alvarlegra. Erlingur Sigtryggsson heyrði afótíðinni á höfuðborgarsvæð- inu þar sem tugir bíla lentu í árekstri: Mjög er dauflegt mörgum hjá í myrkum hríðardeginum. Helst er að menn hittist á Hafnarfjarðarveginum. Davíð Hjálmar Haraldsson sá í fjölmiðlum lýsingar á óveðrinu syðra: Í Öræfum er ofsinn slíkur að upp í móti hrekjast fljót og við bæinn Freysnes fýkur fleiri tonna hnullungsgrjót. Ágúst Marinósson tók þessum orðum með gát: Held að sögur Davíð drýgi um djöfulgang og skrýtin fljót. Held að það sé haugalygi að hafi fokið hnullungsgrjót. Þegar þeir sem voru með „hungruð börn í bílum“ voru beðn- ir um að hringja í Neyðarlínuna varð Davíð Hjálmari að orði: Sonur minn er sver og býsna langur, svið hann fékk um klukkan eitt og lax. Um nónbil hann að nýju virtist svang- ur, í neyðarlínuna því hringdi strax. Og hann bætti við „vegna yfir- vofandi hungurdauða blessaðra barnanna“: Flestir þurfa af föstum vana fisk og brauð og nautalund, enda hefðu beðið bana börnin öll á klukkustund. En áður hafði gustað um Norð- lendinga eins og ráða má af vísu Bjarna Stefáns Konráðssonar: Nú er ólmur norðanfjandi, nægan hefur kost. Norðan tólf á Norðurlandi og níu gráðu frost. Höskuldur Jónsson orti hring- hendu um skjól mannanna: Hríðin fléttar freragrund, frostið sléttar tjarnir, mér þó létta líf um stund, lopavettlingarnir. Þó að ýmislegt gangi á, þá er lífið ljúft hjá Pétri Stefánssyni: Klárað hef ég kvöldverðinn, kvalinn ligg í fleti. Úttroðinn er magi minn af meyru bolaketi. Etið hef ég á mig gat af úrvals nautalundum. Gráðugur í góðan mat get ég verið stundum. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af hnullungsgrjóti og myrkum hríðardegi Í klípu „MÉR LÍÐUR BARA ÞOKKALEGA. ÉG VAR SAMT AÐ VONA AÐ ÉG NÆÐI BETRI ÁRANGRI EN ÞAÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HEYRÐI ÉG RÉTT? VARSTU AÐ GAGNRÝNA MIG FYRIR AÐ VERA BÚINN AÐ BÆTA Á MIG?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem þið eruð saman. MIÐAR ÞAÐ ER EKKI HOLLT FYRIR KETTI AÐ BORÐA MANNAMAT. HELDUR EKKI FYRIR ÞIG AÐ MÓTMÆLA KJÖTÆTU. HVAÐ ER AÐ GERAST? HELGA ER AÐ RUKKA INN FYRIR FÓLK SEM VILL HORFA Á HRÓLF. NÚ? HVAÐ GERIR HANN? BORÐAR. Skömmu áður en óveður skall á ínorðausturhluta Bandaríkjanna í liðnum mánuði var sett út- göngubann í Boston til þess að menn gætu beitt snjóruðningstækjum sem best. Um leið og byrjaði að snjóa voru tækin komin á hraðbrautir og stofnbrautir og hreinsun stóð yfir þar til úrkomunni linnti. Brautirnar voru því auðar þegar almennri um- ferð var hleypt á þær á ný. x x x Víkverja varð hugsað til skipulags-ins vestra þegar hann var á leið til vinnu í fyrradag í strætisvagni sem komst hvorki lönd né strönd. Strætisvagnar komust ekki leiðar sinnar vegna illa útbúinna smábíla sem sátu fastir hér og þar og stjórn- endur snjóruðningstækja gátu illa sinnt störfum sínum vegna þessa. x x x Í Morgunblaðinu í gær kom fram aðþótt samgöngur hafi farið úr skorðum vegna veðurs hafi börn al- mennt verið send í skóla. Þar hafi upplausnarástand skapast þegar starfsfólk hafi ekki getað mætt vegna áhrifa veðursins á samgöngur. Í sumum tilfellum hafi verið óskað eft- ir því að börnin yrðu sótt en al- mannavernd sendi frá sér tilkynn- ingu um að börnin yrðu ekki send heim. Svo virðist sem algjört stjórn- leysi hafi ríkt. x x x Margir Íslendingar virðast eigaerfitt með að fara að reglum þegar umferð er annars vegar. Þeir vilja ráða því hvar, hvernig og hve- nær þeir aka ökutækjum, hvar og hvenær þeir tala í farsíma sinn í bíln- um, hvar og hvenær þeir reykja síg- arettu sína í ökutækinu, hvar og hve- nær þeir fá sér næringu í bílnum, hvar og hvenær þeir snyrta sig í far- artækinu. x x x Það er liðin tíð að jeppakarlar getireynt tækin í snjónum í höfuð- borginni. Ekki endilega vegna ófærð- arinnar heldur frekar vegna illa útbúinna bíla, sem hindra ekki aðeins nauðsynlegar samgöngur heldur koma í veg fyrir að hjálpartæki kom- ist leiðar sinnar. víkverji@mbl.is Víkverji En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (Jóhannesarguðspjall 17:3)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.