Morgunblaðið - 08.03.2013, Page 38

Morgunblaðið - 08.03.2013, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Ætli þetta verði ekki á svipuðu róli og í fyrra, kannski á milli 70 og 80 myndir,“ segir Brynja Dögg Frið- riksdóttir, dagskrárstjóri hátíðar- innar Reykjavík Shorts & Docs Festival sem haldin verður í 11. sinn í Bíó Paradís 9.-16. maí 2013. Met hefur verið slegið í innsend- um stutt- og heimildarmyndum í ár en alls bárust 370 slíkar myndir frá 61 landi. Í fyrra var áherslum há- tíðarinnar breytt og 75 stutt- og heimildarmyndir sýndar. -Hvernig breyttuð þið hátíðinni? „Við breyttum henni þannig að við ákváðum að reyna að gera hana meira alþjóðlega. Fá fleiri erlenda gesti til landsins, bæði kvikmynda- gerðarfólk og fólk sem vinnur við dagskrárstjórn á kvikmyndahátíð- um. Fram að því að við tókum við þá var hátíðin minni í sniðum og ekki hefur verið tekið á móti inn- sendum myndum,“ segir Brynja Dögg. Hún segir yfirgnæfandi meirihluta myndanna sem sendar voru inn koma erlendis frá. „Ég kann ekki skýringar á því en við höfum fengið þó nokkrar ís- lenskar stuttmyndir en það er ekki mikið af íslenskum heimildar- myndum sem við höfum fengið,“ segir hún. Góð kynning helsta ástæðan -Hvað skýrir svona mikinn áhuga á hátíðinni? „Við fórum á Sheffield-heimildar- myndahátíðina á Bretlandi og hún er mjög stór. Þar vorum við með „Icelandic delegation“-partí þar sem við vorum að kynna hátíðina og íslenska kvikmyndagerð. Svo var okkur boðið á Zubroffka-hátíðina í Póllandi. Það er rosalega mikill áhugi í Póllandi á íslenskri menn- ingu finnst mér. Bæði kvikmynda- gerð og tónlist. Þar sem hátíðin er haldin búa álíka margir í bænum eins og á öllu Íslandi. Það vekur svo mikla furðu allur þessi hæfileiki á Íslandi miðað við höfðatölu. Það var alveg pakkfullt á sýningu á ís- lenskum stuttmyndum í Póllandi. Ég fór líka á tvær hátíðir í Noregi – í Bergen í október og Tromsö í janúar. Það er mjög margt áhuga- vert að gerast í norrænni heimild- armyndagerð. Það er ánægjulegt að sjá að við erum að fá svolítið af þeim myndum sendar á hátíðina.“ -Hver verða hlutföllin á milli stuttmynda og heimildarmynda? „Það verður nokkuð jafnt hlutfall á milli stuttmynda og heimildar- mynda. Stuttmyndirnar eru allar um eða innan við hálftími að lengd en við tökum á móti heimild- armyndum í öllum lengdum. Þetta geta líka verið stuttar heimildar- myndir.“ Mest frá Póllandi og Ítalíu Brynja segir myndirnar koma hvaðanæva en mest þó úr Evrópu. -Sýnist þér meira koma frá einu landi en öðru? „Við höfum ekki tekið það saman en það er slatti frá Póllandi og frá Norðurlöndum. Þetta kvisast ein- hvern veginn út. Þetta er mikið til netinu að þakka og að við höfum verið dugleg að kynna hátíðina á öðrum erlend- um kvikmyndahátíðum. Svo held ég að það skipti líka máli að Ísland er frekar „inn“ á meðal ákveðins hóps af ungu fólki. Ég held einnig að fólk sé almennt áhugasamt um að fá myndinar sínar sýndar.“ -Hvenær verður ákveðið hvaða myndir verða sýndar? „Við förum að kynna fyrstu myndina í næstu viku og svo ætti þetta að liggja fyrir um mánaða- mótin.“ Allar stutt- og heimildarmyndir á hátíðinni eru textaðar á ensku og sama á við um íslenskar myndir. Flestir ættu því að geta notið þess sem er að gerast í heiminum í stutt- og heimildarmyndagerð í dag. Morgunblaðið/Styrmir Kári Hátíð Heather Millard, stjórnandi Reykjavík Shorts & Docs og Brynja Dögg Friðriksdóttir, dagskrár- og kynningarstjóri hátíðarinnar. 370 myndir frá 61 landi  Munu velja milli 70 og 80 myndir á Reykjavík Shorts & Docs í ár  Hlutfall milli heimildarmynda og stuttmynda verður svipað  Gríðarlegur áhugi í Póllandi á íslenskri kvikmyndagerð www.shortsdocsfest.com/ Íslenskir kvikmyndagerðarmenn munu í samstarfi við Kvikmynda- miðstöð Íslands bjóða upp á ókeypis sýningar á íslenskum kvikmyndum víða um land helgina 22.-24. mars, í tilefni af hækkun framlaga í Kvik- myndasjóð Íslands. Tilkynning þess efnis var send fjölmiðlum í gær og segir í henni að fjölbreytt úrval ís- lenskra kvikmynda verði í boði og að í einhverjum tilfellum verði leik- stjórar eða aðrir aðstandendur við- staddir sýningar á myndunum og svari spurningum áhorfenda að þeim loknum. Alls verði haldnar sýningar á 20 stöðum og þar af tveimur í Reykjavík, þ.e. Há- skólabíói og Bíó Paradís. Sýningar- staðir hafi verið valdir í samráði við menningarfulltrúa hvers lands- hluta og einnig eftir aðstöðu til sýn- ingahalds. Sýningarstaðir, aðrir en Reykjavík, eru Akranes, Ólafsvík, Hvammstangi, Sauðárkrókur, Blönduós, Ísafjörður, Patreks- fjörður, Ólafsfjörður, Akureyri, Laugar, Raufarhöfn, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustur, Hvolsvöllur og Vestmannaeyjar. Dagskrá kvikmyndahelgarinnar má nálgast er nær dregur á heima- síðu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands: www.kvikmyndamidstod.is. Íslensk Þetta reddast er sýnd um þessar mundir í Sambíóunum. Landsmönnum boðið í bíó 22.-24. mars www.gilbert.is 1919 Flugmannaúr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.