Morgunblaðið - 27.03.2013, Side 9

Morgunblaðið - 27.03.2013, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Samruni Ufsabergs-útgerðar ehf. og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyj- um var í gær dæmdur ógildur í Hæsta- rétti Íslands. Dómurinn var fjölskip- aður og klofnaði í afstöðu sinni. Meirihlutinn tók undir málflutning Stillu útgerðar ehf., KG fiskverkunar ehf. og Guðmundar Kristjánssonar, sem eru minnihlutaeigendur í Vinnslu- stöðinni, um að samruninn stæðist ekki lög. Unnið var að samruna félaganna vorið 2011 og á hluthafafundi þá um haustið samþykkti meirihluti á hlut- hafafundi þá skilmála sem uppi voru. Með samruna átti Vinnslustöðin að inna af hendi eigin bréf í félaginu til eigenda Ufsabergs-útgerðar ehf. Þá var jafnframt samþykkt að afhenda nýtt hlutafé og borin upp tillaga um hækkun hlutafjár þar sem forgangs- réttur hluthafa til áskriftar gilti ekki. Heildarhlutafé Vinnslustöðvarinnar eftir samrunann skyldi vera tæpar 17,5 milljónir evra eða tæpir 2,8 millj- arðar króna. Minnihlutaeigendur voru ósáttir við þetta og töldu að atkvæði eigin hluta mætti ekki nota á fundin- um. Þeir stefndu því Vinnslustöðinni síðla árs 2011. Meirihluti Hæstaréttar tók undir þau sjónarmið og ógilti sam- runann. Áður hafði Héraðsdómur Suð- urlands dæmt Vinnslustöðinni í vil. Annar fundur verður boðaður Helgi Jóhannesson, lögfræðingur Vinnslustöðvarinnar, sagði í gær að boða þyrfti annan hluthafafund þar sem til stæði að staðfesta samrunann aftur og ágallar Hæstaréttar yrðu lag- færðir á þeim fundi. Stilla útgerð ehf., KG fiskverkun ehf. og Guðmundur Kristjánsson sendu í gær frá sér fréttatilkynningu þar sem segir: „Þar sem aldrei var tek- in gild ákvörðun um samruna félag- anna varð enginn samruni – bæði fé- lögin standa í dag sjálfstæð og óháð hvort öðru eftir dóm Hæstaréttar. Við þessu máttu stjórnendur Vinnslu- stöðvarinnar búast, enda var bent á ólögmæti ákvörðunarinnar áður en hún var tekin á hluthafafundi hinn 21. september 2011 og æ síðan.“ Þá segir að í lögum sé gert ráð fyrir að hægt sé að ógilda og vinda ofan af samruna félega sem þegar hafa farið fram og einnig: „Verkefni meiri- og minnihluta eigenda Vinnslustöðvar- innar hf. er nú að ná samkomulagi um hvernig undið verði ofan af því sem gert var í kjölfar hinnar ógildu ákvörð- unar, með hagsmuni Vinnslustöðvar- innar að leiðarljósi.“ Sameining Vinnslustöðvarinnar hf. og Ufsabergs-útgerðar ehf. var til- kynnt til Hlutafélagaskrár 25. septem- ber 2011 og hefur reksturinn verið í einu lagi síðan en samkvæmt dómnum standa þau þó aðskilin í dag. Ógilti samruna Ufsabergs og Vinnslustöðvar  Hæstiréttur sneri við héraðsdómnum Helgi Jóhannesson Guðmundur Kristjánsson Ferill samrunans » 10. maí 2011 var lýst yfir vilja til samruna beggja félaga. » 21. sept. 2011 var samruni samþykktur meðal hluthafa. » 25. sept. 2011 var samruni skráður hjá Hlutafélagaskrá. » 6. des. 2011 var stefna birt. » 17. ágúst 2012 féll dómur í héraðsdómi Vinnslustöð í vil. » 26. mars 2013 féll dómur í Hæstarétti sem ógilti kaupin. Hæstiréttur staðfesti í gær fjög- urra mánaða fangelsisdóm yfir rúmlega fertugum karlmanni vegna vörslu á rúmum 80 grömm- um af amfetamíni sem fundust við leit á heimili hans. Undanfarin 25 ár, eða frá árinu 1988 hefur mað- urinn hlotið 17 refsidóma og gengist undir 16 dómsáttir. Dóm- ana hefur maðurinn hlotið fyrir þjófnað, nytjastuld umferðar- lagabrot, eignaspjöll og fíkniefna- lagabrot og dómsáttirnar voru vegna áþekkra brota. Var mann- inum einnig gert að greiða mál- svarnarlaun verjanda. Hefur hlotið 17 refsi- dóma á 25 árum Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Vattjakkar í úrvali St. 36-52 Rauðir, kóngabláir, bleikir, grænir, gylltir, svartir og hvítir Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Fjölbreytt úrval af sundfatnaði „Þeir hafa ekki haft samband við okkur,“ segir Eyþór Arnalds, for- maður bæjarráðs Árborgar, um yf- irlýsingu frá Íbúðalánasjóði í gær um að allar íbúð- ir í leiguhæfu ástandi væru í útleigu. Bæj- arráðið ályktaði í síðustu viku vegna fjölda tómra íbúða í eigu sjóðsins á Selfossi. „Það vantar í yfirlýsinguna að- alatriðið. Það var talað um það fyrir átta mánuðum að þrjár íbúðablokkir yrðu seldar og þá vörpuðu menn öndinni léttar. Þetta var búið að vera tómt í tals- verðan tíma og þingmenn og sveit- arstjórnarmenn höfðu áhyggjur af þessu. Þá var því lýst yfir í fjöl- miðlum að þessar íbúðir yrðu seld- ar. En þær hafa ekki verið seldar og aldrei verið auglýstar til sölu,“ segir Eyþór. „Síðan þá sýnist mér tómum íbúðum frekar hafa fjölgað heldur en fækkað og við sjáum aldrei aug- lýsingar frá þeim um íbúðir til leigu,“ segir hann. ipg@mbl.is „Hefur fjölg- að heldur en fækkað“ Eyþór Arnalds

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.