Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Jón Bjarnason, alþingismaður og
fyrrverandi sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, leiðir lista Regn-
bogans – framboðs fyrir sjálfstæði
Íslands og sjálfbæra þróun í Norð-
vesturkjördæmi.
Regnboginn býður fram undir
listabókstafnum J.
Fyrstu fimm sæti listans skipa:
1. sæti: Jón Bjarnason, alþingis-
maður og fyrrv. sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
2. sæti: Arnþrúður Heimisdóttir,
tamningakona og kennari, Lang-
húsum, Fljótum.
3. sæti: Barbara Ósk Guðbjarts-
dóttir, tónlistarmaður og bóndi,
Miðhúsum, Strandabyggð.
4. sæti: Gísli Árnason framhalds-
skólakennari, Sauðárkróki.
5. sæti: Sigurður Oddur Ragn-
arsson ferðaþjónustubóndi, Odds-
stöðum Borgarfirði.
Jón leiðir
Regnbog-
ann í NV-
kjördæmi
Býður fram undir
listabókstafnum J
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rekstrarhalli Íbúðalánasjóðs var 7.856 milljónir í fyrra
en 986 milljónir árið á undan. Þetta kemur fram í árs-
reikningi sjóðsins fyrir árið 2012 sem birtur var í gær.
Þar kemur fram að eigið fé í árslok 2012 hafi verið 14,7
milljarðar króna. Þar er tekið tillit til stofnfjár upp á 13
milljarða sem sjóðurinn fær í formi ríkisskuldabréfa. Til
samanburðar nam eigið fé 9,55 milljörðum í árslok 2011.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 3,2% en var 2,3% í upphafi
árs. Langtímamarkmið sjóðsins er þó að hlutfallið sé yfir
5,0%.
Fram kemur að 57% lántakenda hafi nýtt sér þau
greiðsluúrræði sem í boði séu. Þar á meðal hafa 45% lán-
takenda nýtt sér greiðslujöfnun. Þá segir að 1,3% heimila
séu með lán sín í frystingu, um 1% lántakenda hafi lengt
lán sín og um 6% fengið afskrift veðkrafna umfram 110%
verðmæti eignar.
Hreinar vaxtatekjur sjóðsins námu 2,5 milljörðum í
fyrra, 0,2 milljörðum minna en árið 2011. Leigutekjur
íbúða í eigu sjóðsins jukust um 429,5 milljónir milli ára.
Sjóðurinn leysti til sín 743 íbúðir í fyrra og seldi 125
íbúðir. Í eigu sjóðsins voru 2.224 íbúðir í lok árs 2012 og
hafði fjölgað um 618 á árinu. Um 42% þeirra eru í útleigu.
Bókfært virði þessara eigna í lok árs 2012 er 30,3 millj-
arðar króna. ipg@mbl.is
7,9 milljarða halli á sjóðnum
Morgunblaðið/Kristinn
Tap Íbúðalánasjóður átti 2.224 íbúðir í árslok 2012. 42% eru í útleigu.
Eigið fé 14,7 milljarðar í árslok Eiginfjárhlutfall er 3,2%
en markmiðið 5% 57% lántakenda nýtt sér greiðsluúrræði
Tveir íslenskir flugmenn björguðu
dönskum hermönnum á Grænlandi
um síðustu helgi eftir að þeir lentu í
snjóflóði. Hermennirnir voru í Sirius-
hundasleðasveitinni, sem heldur uppi
gæslu á norðausturhluta Grænlands
og höfðu fest sleða sinn í gili. Í kjöl-
farið féll snjóflóð, átta af tólf sleða-
hundum drápust og nokkuð af búnaði
hermannanna skemmdist. Þeir gátu
ekki haldið för sinni áfram og kölluðu
því eftir hjálp.
Í frétt á fréttavefnum N4 segir að
beiðnin hafi borist flugmönnum flug-
félagsins Norlandia, sem er starfrækt
á Akureyri, um sexleytið á föstudags-
kvöldið.
Langan tíma tekur að komast á
þessar slóðir, en snjóflóðið féll um 550
kílómetra vestur af Station Nord,
sem er her- og rannsóknarstöð nyrst
á Grænlandi. Íslensku flugmennirnir,
þeir Ragnar Magnússon, flugstjóri og
Eggert Sæmundsson flugmaður voru
komnir til hermannanna um klukkan
níu á laugardagskvöldið.
Björguðu her-
mönnum sem
voru í háska
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
•
13
10
22
yfir páskana!
Skíða- og brettaskólinn verður opinn alla páskana í Bláfjöllum
Gleðilega páska!
6.000 kr. á manninn (5.000 fyrir systkini). Matur í hádeginu er innifalinn.
Skíðaskólinn byrjar kl. 11.00 alla dagana og brettaskólinn kl. 10.30.
Námskeiðið stendur yfir í 4 tíma með matarpásu í hádeginu.
Renndu þér
skidasvaedi.isUpplýsingasími 530 3000
Mintan 20
13
fer fram lau
gardaginn
30. mars fr
á 14.30–1
7.00
Meiriháttar
brettasess
ion
Vegleg ver
ðlaun í boð
i!
Veitingar fy
rir alla.
Séra Pálmi verður með sína árlegu Bláfjallamessu kl. 13.00 á páskadag.