Morgunblaðið - 27.03.2013, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 27.03.2013, Qupperneq 17
BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Friðrik Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Skjásins, telur að samkomulag 365 miðla við ensku Úrvalsdeildina (FA Premier League) um að borga aðeins fyrir hvert ár fyrir sig af útsending- arréttinum, án bankaábyrgðar né fyrirframgreiðslu, af enska bolt- anum næstu þrjú árin brjóti gegn skilmálum út- boðsins um út- sendingarréttinn. Í viðtali sem birtist á við- skiptasíðum Morgunblaðsins þann 1. mars sl. segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, að hann hafi gengið frá sérstökum samn- ingi við ensku Úrvalsdeildina um að ef enski boltinn yrði áfram hjá 365 miðlum þá yrði greiðslufyrir- komulagið með sama hætti og áður, þ.e. að 365 greiði einungis fyrir hvert ár fyrir sig. Þrír möguleikar í boði Að sögn Friðriks kváðu útboðs- skilmálarnir, sem áttu að gilda um alla, á um þrjá kosti varðandi greiðslur. Í fyrsta lagi ábyrgð móð- urfélags, í öðru lagi bankaábyrgð frá fjármálastofnun með starfsemi í Bretlandi og í þriðja lagi að greiða allt að 50-60% af heildargreiðslunni fyrirfram áður en fyrsta tímabilið hefst. Þá bendir hann á að tveir fyrrnefndu kostirnir séu varla raun- hæfir fyrir íslensk fyrirtæki eins og ástandið er í dag, því sitji sá þriðji eftir. „Munurinn á því að borga jafnt og þétt yfir þriggja ára tímabil og að borga 60% fyrirfram getur verið alveg um milljón dollarar,“ segir Friðrik og bætir við að sá sem fengi að borga fyrir réttinn í jöfnum greiðslum gæti því greitt um milljón dollurum meira en annars en samt verið jafn vel settur. Friðrik sendi inn kvörtun til ensku Úrvalsdeildarinnar í kjölfar fyrrnefnds viðtals við Ara Edwald. „Efnislega sögðu þeir tvennt. Í fyrsta lagi að þeir hefðu hafnað boði frá 365 miðlum um greiðslufyrir- komulag, síðan samið við þá um fyr- irkomulag sem þeir gætu ekki sagt mér hvað væri. Í öðru lagi höfnuðu þeir algjörlega að útboðsferlið hefði verið gallað,“ segir Friðrik um svar deildarinnar við kvörtun sinni og bætir við: „Ef maður reynir að af- kóða þessi skilaboð þá er erfitt að átta sig á því hvað gæti hafa verið verra tilboð en að borga jafnt og þétt yfir þrjú ár, ef þeir viðurkenna að hafa hafnað tilboði frá 365 miðl- um.“ Telur að Ari segi rangt frá Þá bendir Friðrik á að ef menn trúi því að skilmálar útboðsins hafi ekki verið brotnir þá sé eina rök- rétta niðurstaðan sú að fullyrðingar Ara í fjölmiðlum séu rangar og að 365 miðlar séu í raun að borga um- talsverðar fjárhæðir fyrirfram. „Þeim [Úrvalsdeildinni] er rosalega illa við hugtakið „gallað útboðsferli“ vegna þess að þetta er Evrópuútboð og það versta sem þeir gætu lent í væri einhvers konar ágreiningur um að þeir hefðu ekki staðið rétt að málum þannig að þeir hafna því af- dráttarlaust og taka þetta greini- lega alvarlega,“ segir Friðrik en hann telur að svar Úrvalsdeild- arinnar við kvörtun hans og sömu- leiðis það hversu alvarlegum augum hún lítur þetta mál bendi til þess að Ari hafi ekki farið með rétt mál. Að sögn Friðriks er alveg ljóst að báðir aðilar, þ.e. Úrvalsdeildin og Ari, geta ekki sagt satt frá um mála- vexti. Þá sé það hvers og eins að draga sínar ályktanir. Hann tekur jafnframt fram að Skjárinn hafi ekki tekið ákvörðun um næstu skref í þessu máli. AFP Enski boltinn Framkvæmdastjóri Skjásins telur að meint samkomulag 365 og Úrvalsdeildarinnar brjóti gegn útboðsskilmálum deildarinnar. Gagnrýnir meint ójafnræði í útboði  Sendi Úrvalsdeildinni kvörtun vegna ummæla Ara Edwald Friðrik Friðriksson FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Uppselt er orðið á Laugaveginn í sumar, en fullt er í skálagistingu á þessari þekktu gönguleið milli Land- mannalauga og Þórsmerkur út sum- arið að sögn Páls Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Ferðafélags Ís- lands. Hann segir að aldrei hafi verið bókað meira hjá félaginu og að þessi ásókn á Laugaveginn sé einnig að skila sér í fjölgun gesta í aðra skála félagsins. Skúli H. Skúlason, framkvæmda- stjóri Útivistar, tekur í svipaðan streng og Páll, en hann segir svo gott sem uppselt í bæði Bása og Fimm- vörðuháls um helgar í sumar og van- fundnar dagsetningar fyrir hópa út sumarið. Ferðafélagið rekur fimm skála á Laugavegsleiðinni; Landmanna- laugar, Hrafntinnusker, Álftavatn, Emstrur og Skagfjörðsskála í Langadal. Auk þess er sjötti skálinn í Hvanngili. Pláss er fyrir um 60 til 75 manns á hverjum stað og því má sjá að heildarfjöldi gistinátta skiptir hundruðum á degi hverjum og nokkrum tugum þúsunda yfir sum- arið. Pantað ár fram í tímann Páll segir að síðustu 4 til 5 ár hafi orðið gífurleg fjölgun og að Ferða- félagið hafi farið að sjá uppbókanir á leiðinni. Það sé einnig alltaf að fær- ast í aukana að Íslendingar skipu- leggi sínar ferðir langt fram í tímann og margir panti skála með hálfs til eins árs fyrirvara. Skúli segir einnig að bókanir séu að færast framar á árið og í haust hafi strax orðið mikið um bókanir. Vinsælustu staðir Útivistar eru Bás- ar og Fimmvörðuháls og segir hann að erfitt sé að koma að hópum þar það sem eftir er sumars, en að ein- staklingar eða fámennir hópar kom- ist þó enn að, sérstaklega á virkum dögum. Hann segir nauðsynlegt að huga að viðhaldi göngustíga á þessum svæðum. thorsteinn@mbl.is Uppselt á Lauga- veginn í sumar  Fullt í skálagistingu á gönguleiðinni Morgunblaðið/RAX Landmannalaugar Uppbókað er í skálagistingu á Laugaveginum. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín- um í gærmorgun að veita 5 milljónir króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórn- arinnar til uppbyggingar tónlistar- húss í Kulusuk á Grænlandi. Föstu- daginn 8. mars sl. brann tónlistarhús barnaskóla í Kulusuk á Grænlandi ásamt hljóðfærum og tækjabúnaði sem þar var. Starfsmenn og börnin í skólanum höfðu ásamt fjölda sjálf- boðaliða lagt mikla vinnu í að byggja upp og safna fyrir uppbyggingu hússins og aðstöðunnar í því. Börnin nýttu sér tónlistarhúsið dag hvern auk þess sem húsið þjónaði öllu sam- félaginu og þar fór fram tónlistar- kennsla, tónleikahald og almennar samkomur. Þegar eftir brunann var ákveðið að hefja vinnu við að koma aftur upp sambærilegri aðstöðu. Ríkisstjórnin vill með framlagi sínu leggja söfnuninni lið og hefur forsætisráðherra ritað formanni landstjórnarinnar á Grænlandi bréf þar sem tilkynnt er um framlagið. Styrkja tónlistar- húsið í Kulusuk „Með því að samþykkja fyrirfram fjárhagslegar tryggingar og gera þann- ig bæði Skjánum og 365 miðlum kleift að skila inn tilboðum sem uppfylla öll skilyrði, kom Úrvalsdeildin fram við Skjáinn með nákvæmlega sama hætti og hún kom fram við 365 miðla. Þá kom Úrvalsdeildin heldur ekki öðruvísi fram við Skjáinn en við evrópska útboðsþátttakendur í þeim skilningi. Þar af leiðandi var söluferlið ekki á nokkurn hátt gallað og Úr- valsdeildin hafnar öllum ásökunum um annað,“ segir deildin m.a. í svari, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, við kvörtun Friðriks. Þá kemur einnig fram í svarinu að Úrvalsdeildin hafi í rauninni hafnað upphaflegu tilboði 365 miðla en síðar meir samþykkt seinna tilboð frá fyrirtækinu um fjárhagslegar tryggingar áður en fyrsta lota uppboðsins hófst. Þá bendir Úrvalsdeildin á að hinn sérstaki samningur sem Ari Ed- wald nefndi í viðtali við Morgunblaðið sé ekki frábrugðinn þeim sérstaka samningi sem deildin hafi gert við Skjáinn, og alla aðra mögulega út- boðsþátttakendur í Evrópu, varðandi fjárhagslegar tryggingar. Segja jafnræðis hafa verið gætt ÚRVALSDEILDIN HAFNAÐI FYRRA TILBOÐI 365

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.