Morgunblaðið - 27.03.2013, Side 18

Morgunblaðið - 27.03.2013, Side 18
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Þegar þýski sakamálasérfræðing- urinn Karl Schütz kom óvænt að rannsókn Guðmunar- og Geirfinns- málsins í júlí árið 1976 var breytt um yfirheyrsluaðferð yfir hinum grunuðu. Aðferðin sem beitt var það- an í frá var kölluð „indíánaaðferðin“, að því er fram kemur í skýrslu starfs- hópsins um þessi umfangsmestu sakamál Íslandssögunnar. Með aðkomu Schütz urðu breyt- ingar á rannsókninni. Í skýrslunni segir að rannsóknin hafi verið komin í ógöngur eftir að fjórir menn höfðu setið saklausir í gæsluvarðhaldi og dómsmálaráðuneytið þrýst á um niðurstöðu í rannsóknina með ráðn- ingu Schütz, án þess að fyrir liggi að þrýst hafi verið á um tiltekna nið- urstöðu. Erfitt að halda lygaþræði Í skýrslu starfshópsins segir að í nokkrum skýrslum málsins sé tekið fram að „indíánaaðferðinni“ hafi ver- ið beitt við yfirheyrsluna. Í viðtölum við rannsakendur á þessum árum kom í ljós að þeir sem unnu í rann- sóknarnefndinni mundu eftir þessari yfirheyrsluaðferð sem Karl Schütz hefði kennt rannsóknarlög- reglumönnum. Í viðtölum við þá rannsakendur sem þekktu indíánaaðferðina kom fram að um væri að ræða skírskotun til amerískra vestra, segir í skýrslu starfshópsins, þegar „vagnalest væri stillt upp í hring og indíánarnir væru á þeysireið fyrir utan skotlínuna.“ Með vísun til þessa væri nafnið á yfirheyrslutækninni komið. Sólar- hringurinn (tímaröð atburða) hefði verið samlíking við þann hring sem indíánarnir riðu. Hugmyndafræði yfirheyrslutækninnar væri sú að spyrja ekki um atvik í tímaröð. Það væri gert í þeim tilgangi að sá sem sætti yfirheyrslu ætti erfitt með að átta sig á atburðarás vegna þeirra spurninga sem viðkomandi væri spurður. Í skýrslunni segir að Schütz hafi skipað fyrir um beitingu þessarar að- ferðar við einstakar yfirheyrslur, spurningar ættu að vera fáar og flokkaðar. Flokkunin ætti að vera eftir því hvort spurningin væri byggð á lygi, byggð á staðreyndum eða helmingslíkur væru á að spurning byggðist á lygi eða staðreyndum. Þessum spurningum ætti að blanda saman og nota indíánaaðferð. Var því haldið fram að sá sem lenti í svona yfirheyrslu ætti mjög erfitt með að halda lygaþræði. Virkar best á greinda Einn rannsakenda sagði Schütz hafa sagt við sig að þegar fyrstu yfir- heyrslu yfir sakborningi væri lokið þar sem indíánaaðferð hefði verið beitt ætti yfirheyrandinn að hafa það sterkt á tilfinningunni hvort um sek- an eða saklausan mann væri að ræða. „Annar lýsti aðferðinni þannig að farið væri í kringum það atriði sem leitað væri að en ekki skyldi spyrja um það strax, heldur að reyna að fylla upp í myndina. Um árangur yfirheyrsluaðferðarinnar voru menn ekki sammála. Einn sagði að aðferðin virkaði best á greinda sakborninga sem ætluðu sér að ljúga að yfir- heyranda en ekki á einstaklinga sem væru ekki skýrir í hugsun,“ segir í skýrslu starfshópsins. Svo sennilegt að nálgast vissu Schütz gerði dómsmálaráðherra reglulega grein fyrir gangi rannsókn- arinnar og í sinni síðustu skýrslu, í janúar 1977, bókaði hann nokkur at- riði sem gætu styrkt játningar í Geir- finnsmálinu, að fenginni frekari at- hugun. Alls voru þetta um 24 atriði sem voru könnuð sérstaklega. Í lokaskýrslu rannsóknarnefnd- arinnar er vísað til þessara rann- sókna og þær taldar styrkja játning- arnar. Að vísu hafi þær ekki alltaf staðfest þær en „þó ekki leitt neitt teljandi misræmi í ljós“. Starfshópurinn, sem kynnti sína skýrslu sl. mánudag, segir eftirtekt- arvert á hve afgerandi hátt sé fjallað um framburði sakborninga í loka- skýrslu Schütz og félaga. Bendir starfshópurinn sérstaklega á eft- irfarandi tilvitnun: „Ekki eru fyrir hendi neinar skyn- samlegar ástæður til þess að efast um að verknaðurinn sjálfur og til- drög hans, eins og búið er að játa hann, sé réttur. Með tilliti til þess má líta svo á að niðurstaða rannsókn- arinnar sé svo sennileg að hún nálgist vissu.“ Breyttist með indíánaaðferð Karls Schütz  Starfshópurinn telur aðferðir þýska rannsakandans umdeilanlegar Morgunblaðið/Friðþjófur Rannsókn Frá blaðamannafundinum 2. febrúar 1977 í Sakadómi Reykja- víkur þar sem niðurstöður rannsóknar Geirfinnsmálsins voru kynntar. Við enda borðsins f.v. eru Örn Höskuldsson rannsóknarstjóri, Halldór Þor- björnsson yfirsakadómari, Karl Schütz og Pétur Eggerz túlkur. Morgunblaðið/Friðþjófur Rannsakandi Karl Schütz kynnir blaðamönnum niðurstöðuna með styttuna Leirfinn, eins og hún var jafnan kölluð, fyrir framan sig. Styttan var gerð við rannsókn Geirfinnsmálsins. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Ljótur fráMSerbragðmikill og spennandi blámygluostur. Láttuhannkomaþérá óvart ogdæmduhanneftir bragðinu. Ljótur að utan – ljúfur að innan H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 2 – 0 3 3 1 Karl Schütz var fyrrverandi starfsmaður vesturþýsku al- ríkislögregl- unnar. Eftir ábendingu frá ráðuneytisstjóra í innanríkisráðu- neyti Vestur- Þýskalands var Schütz boðið hingað til lands af Ólafi Jóhann- essyni, þáverandi dómsmálaráð- herra, til að aðstoða lögregluna við rannsókn Guðmundar- og Geir- finnsmáls. Schütz var hér á landi í nokkra mánuði 1976-1977, var fyrst feng- inn til ráðgjafar við svonefnda rannsóknarnefnd Reykjavíkur en stjórnaði síðan rannsókninni og yf- irheyrslum yfir sakborningum um tíma. Fór hann af landi brott í byrj- un febrúar 1977, eftir að hafa kynnt lokaskýrslu rannsóknarnefnd- arinnar sem hann stýrði. Á fundi með blaðamönnum 2. febrúar sagði Schütz m.a.: „Þar sem lík Geirfinns Einarssonar hefur enn ekki fundist er lausnin ekki fullkomin. En það liggur fyrir játning. […] Frá okkar bæjardyrum séð er ekki um nokk- urn vafa að ræða, við teljum það al- gjörlega öruggt að þetta fólk sé þarna að segja rétt frá.“ Fyrst fenginn til ráð- gjafar að beiðni dómsmálaráðherra Ólafur Jóhannesson Karl Schütz sagði á blaða- mannafundinum fræga að hann hefði unnið með lögreglumönnum víða um Evrópu en á fáum stöð- um kynnst „jafn duglegum og samviskusömum rannsóknarlög- reglumönnum og hér, og örugglega aldrei kynnst jafn lágt launuðum lögreglumönnum,“ eins og segir í frásögn Sigtryggs Sigtryggssonar blaðamanns í Morgunblaðinu 3. febrúar 1977. Í bréfi til dómsmálaráðherra í október 1976, sem bað Schütz um tillögur um endurskipulagningu lögreglunnar á Íslandi, segir hann bráðnauðsynlegt að þjálfa rann- sóknarlögreglumenn í öflun sönn- unargagna. Segir Schütz skorta á sérþekkingu margra lögreglu- manna á sviði yfirheyrslutækni, svo mjög að „sæmilega greindir brota- menn losna fljótt við hina eðlilegu óvissukennd og uppnám og dæmið snýst við,“ eins og segir í bréfi Schütz til Ólafs Jóhannessonar. Lögreglan lágt laun- uð, skorti sérþekk- ingu en var dugleg Lögregluvörður við þinghúsið 1976. Guðmundar- og Geirfinnsmál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.