Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 19

Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is A Ð A L F U N D U R C C P h f . Aðalfundur CCP hf., kt. 450697-3469, verður haldinn 11. apríl 2013 á skrifstofu félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 10.00. D A G S K R Á : Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins Undir dagskrárliðnum “breytingar á samþykktum” verður tekin fyrir eftirfarandi tillaga: Stjórn félagsins er heimilt að ákveða hækkun hlutafjár um allt að kr. 2.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta, í einu lagi eða í áföngum. Heimildin gildir til 11. apríl 2018 og fellur niður þann dag að því leyti sem hún hefur ekki þegar verið nýtt. Heimild þessa má einungis nota í tengslum við efndir kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins, dótturfyrirtækja eða fyrirtækja innan sömu fyrirtækjasam- stæðu. Hluthafar hafa ekki forgangsrétt til áskriftar að hlutum sem gefnir eru út samkvæmt heimild þessari. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá þeim degi sem þeir eru afhentir starfsmanni skv. skilmálum kaupréttarsamnings. Allar aðrar og núverandi heimildir stjórnar til þess að hækka hlutafé félagsins, og taldar eru upp í gr. 2.02- 2.05 í samþykktum félagsins, eru afturkallaðar og ógildar. Undir dagskrárliðnum “ Önnur mál, sem löglega eru upp borin“ verður tekin fyrir eftirfarandi tillaga: Uppfærð kaupréttaráætlun fyrir félagið verður kynnt og lögð fyrir fundinn til samþykktar. Uppfærða áætlunin var áður samþykkt af stjórn félagsins og er ætlað að koma í staðinn fyrir útrunnin og úrelt ákvæði sem varða kaupréttarsamninga félagsins. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn CCP hf. skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Dagskrá, endanlegar tillögur, ársreikningur félagsins, nýja kaupréttaráætlunin og samantekt um efni hennar munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis frá og með 4. apríl 2013, 7 dögum fyrir aðalfundinn. Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku. Reykjavík 27. mars 2013 Stjórn CCP hf. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Starfshópurinn um Guðmundar- og Geirfinnsmál fjallar í skýrslu sinni m.a. um þær rannsóknir sem fram fóru á sínum tíma á ásökunum sak- borninga um harðræði fangavarða og lögreglu í Síðumúlafangelsinu. Fékk starfshópurinn í sinni vinnu ábend- ingar og las gögn um atvik sem benda til þess „að fangar hafi verið beittir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í Síðumúlafangelsi á tímum rannsóknar Guðmundar- og Geir- finnsmála,“ eins og segir í skýrsl- unni. Tvær rannsóknir á harðræðinu fóru fram. Sú fyrri var gerð af sett- um sakadómara haustið 1976, eftir að Sævar Marinó Ciesielski og annar fangi höfðu skrifað og sent bréf á milli fangaklefa, þar sem kvartað var undan aðbúnaði í fangelsinu og and- legu og líkamlegu harðræði sem fangar væru beittir. Eftir rannsókn og yfirheyrslur þótti ákæruvaldinu ekki efni til frekari aðgerða í málinu. Starfshópurinn segir þá rannsókn hins vegar sýna athyglisverðar upp- lýsingar um samskipti við Sævar og viðhorf forstöðumanns Síðumúla- fangelsisins til fanga. Hafði komið fram í framburði forstöðumannsins að undanfarin misseri hefði verið ástæða til að „herða agann“ í fangels- inu vegna fanga sem sátu þar inni vegna manndráps- og fíkniefnamála. Sló Sævar kinnhest Önnur rannsókn á harðræði í fang- elsinu fór í gang haustið 1979 hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, RLR, að kröfu Sævars. Ásakanir um harð- ræði fangavarða voru rannsakaðar, sem og á slæmum aðbúnaði í fangels- inu. Samkvæmt dómi Hæstaréttar þóttu gögn rannsóknar RLR ekki sanna annað en að forstöðumaður fangelsins hefði lostið Sævar kinn- hest. Neituðu fangaverðir og rann- sóknarmenn öllum ásökunum. Starfshópurinn segir ýmis gögn málsins sýna fram á ábendingar um ómannúðlega og vanvirðandi með- ferð á föngum, m.a. að slökkvari í klefa Sævars hafi verið óvirkur og ekki hægt að slökkva ljósin. Starfs- hópurinn átti samtal við fyrrverandi fangavörð sem varð eitt sinni vitni að því að skapaður var hávaði gagngert til að valda ónæði og halda vöku fyrir Sævari. Einnig sýndu yfirheyrslu- skýrslur að yfirfangavörður hefði á einni næturvaktinni gefið þau skila- boð að halda ætti Sævari og Tryggva Rúnari Leifssyni vakandi um nótt- ina. Var límd grisja fyrir munn Tryggva og fest með heftiplástri. Þá sýna skráningar í fangelsisdag- bækur að sakborningar nutu ekki alltaf daglegrar útivistar, eins og þeir áttu rétt á. Harðræði Sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmáli voru vistaðir í Síðumúlafangelsinu. Þar fóru fram yfirheyrslur lögreglu og fangavarða. Meðferð á föngum talin ómannúðleg Rakið fyrir Hæstarétti » Verjendur sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmáli röktu í málflutningi sínum fyrir Hæstarétti ásakanir um harð- ræðið. » Þannig sagði Jón Oddsson, verjandi Sævars, fyrir Hæsta- rétti að umbjóðandi sinn hefði verið hafður í hand- og fót- járnum í Síðumúlafangelsinu, haldið vakandi á nóttunni og verið sleginn í andlitið.  Sakborningar kvörtuðu undan harðræði í Síðu- múlafangelsi Fyrrverandi fangi í Síðu- múlafang- elsi hafði frumkvæði að sam- skiptum við starfshóp- inn. Mað- urinn skrif- aðist á við Sævar Cie- sielski er þeir voru báðir í fang- elsinu. Upp komst um bréfa- skriftirnar og í kjölfarið sættu þeir Sævar harðræði af hálfu fangavarða, m.a. með svoköll- uðum strekkingum. Lýsti mað- urinn þeim þannig að hann hefði verið lagður á gólfið og festur með hand- og fótajárnum milli borðfótar og rúmfótar sem fastir voru við gólfið. Voru beittir strekkingum SAKBORNINGAR Sævar Marinó Ciesielski

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.