Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 22
VIÐTAL Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Formlegu ferli við hlutafjáraukningu MP banka hefur verið frestað til vors en áfram er stefnt að því að henni verði lokið um mitt ár. Upphaflega átti ferlið að hefjast í janúar en vegna mögulegra stórra fjárfestingarverk- efna bankans var ákveðið að bíða með hlutafjáraukningu þar til línur tækju að skýrast. Stjórn bankans hefur heimild til að auka hlutafé um tvo milljarða króna til að takast á við hraðan vöxt. Fyrir liggur staðfesting á þátttöku frá nokkrum af stærstu hluthöfum bankans. Þetta segir Sig- urður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, í samtali við Morgunblaðið. „Góður vöxtur“ MP banki birti ársuppgjör í gær og segist Sigurður Atli fagna því að tek- ist hafi að snúa rekstri bankans í hagnað úr tapi á fyrsta heila starfs- árinu eftir að nýir hluthafar tóku við. „Það er góður vöxtur hjá öllum svið- um og okkur hefur gengið vel að afla nýrra viðskiptavina,“ segir í hann. Bankinn hagnaðist um 251 milljón króna árið 2012 samanborið við 484 milljóna króna tap árið 2011. Í apríl 2011 lögðu yfir 40 innlendir og er- lendir fjárfestar MP banka til 5,5 milljarða króna í nýtt hlutafé með Skúla Mogensen fjárfesti fremstan í flokki og ný stjórn tók við. Stjórnendur bankans urðu að bíta í það súra epli að færa niður lán um 558 milljónir króna á síðasta ári. Ef horft er fram hjá sértækum afskrift- um og sköttum hagnaðist hann um 742 milljónir króna. Á móti kemur að bankinn hagnaðist um 150 milljónir króna vegna sölu á hlut sínum í upp- lýsingatæknifyrirtækinu Teris til Reiknistofu bankanna. Vaxandi markaðir Hann segir að ef bankinn ætli að halda áfram að vaxa hratt með útlán- um, en útlán rúmlega tvöfölduðust í 28 milljarða milli ára, verði bankinn að auka hlutafé. „Ýmis önnur svið bankans, eins og t.d. fjárfestinga- bankastarfsemi og eignastýring kalla ekki á mikla eiginfjárbindingu,“ segir Sigurður Atli. Þar séu vaxtartæki- færi og sá markaður fari vaxandi. Hann segir að þar hafi bankinn góða markaðshlutdeild. Aftur á móti sé út- lánamarkaðurinn staðnaður. Hann segir að stefnan sé að halda áfram að vaxa með sama hætti og byggja upp öflugan banka með traust og gott lánasafn með góðan hóp viðskipta- vina. Bankinn tók nokkrum breytingum á síðasta ári, stofnað var eignaleigu- fyrirtækið Lykill og ýmsir innviðir voru styrktir. Aðspurður hvort bank- inn sé í raun kominn í endanlega mynd segir Sigurður Atli að stjórn- endur og hluthafar MP Banka hafi mikinn áhuga á að taka þátt í þeim breytingum sem munu eiga sér stað á íslenskum fjármálamarkaði, er þá bæði horft til breytingar á eignar- haldi og skipulagi fjármálakerfisins. „Við erum því ekki komin á endastöð heldur lít ég svo á að við séum rétt að byrja. Aftur á móti virkar viðskipta- líkanið afar vel fyrir reksturinn eins og hann er í dag, og þar liggja líka góð vaxtartækifæri,“ segir hann. Tekur miklum breytingum MP banki byggist á fjórum sviðum: fjárfestingarbankasviði, eignastýr- ingarsviði, viðskiptabankasviði og eignaleigusviði. Bankinn byggir af- komu sína hlutfallslega meira á þókn- anatekjum og hlutfallslega minna á vaxtatekjum en stóru viðskiptabank- arnir þrír. Kostnaðarhlutfallið var 88% á síðasta ársfjórðungi á meðan stjórnendur hefðbundinna viðskipta- banka kjósa að hafa það um 50%. Sig- urður Atli segir að stjórnendur bank- ans horfi lítið til þessa hlutfalls, bankinn sé nokkuð lítill og sé að taka miklum breytingar. Skynsamlegra sé að horfa á hinar raunverulegu tölur, hverju reksturinn sé að skila. Þegar fram í sækir vill að hann sjá kostn- aðarhlutfallið á bilinu 60-80%, líkt og venjan sé hjá bönkum af svipaðri gerð. Morgunblaðið/Golli Blásið til sóknar „Ég lít svo á að við séum rétt að byrja,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka.  „Það er góður vöxtur hjá öllum sviðum og okkur hefur gengið vel að afla nýrra viðskiptavina“ Formlegu ferli við hlutafjár- aukningu MP frestað til vors 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 www.gilbert.is Verðbólgutölurnar nú ættu að falla Seðlabankamönnum vel í geð. Við vaxtaákvörðunina í síðustu viku var óhagstæð verðbólgumæling í febr- úar nánast einu mótrökin gegn því að halda vöxtum óbreyttum. Seðlabankinn spáði 3,5% verð- bólgu í febrúarmánuði sl. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar sagði við síðustu vaxtaákvörðun að ef verðbólga hjaðnaði hægar en áð- ur var spáð þyrfti að draga úr slaka peningastefnunnar, það er hækka nafnvexti, fyrr en ella. Verðbólgumælingin núna eykur hins vegar líkur á að verðbólga á 2. ársfjórðungi reynist nálægt þeim 3,5% sem Seðlabankinn spáði í febr- úar síðastliðnum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka í gær sem telur að Seðlabankamenn muni anda léttar yfir þessum frétt- um. Jafnframt segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka að verð- bólgumælingin nú styrki þá trú að stýrivextir Seðlabankans muni haldast óbreyttir út árið. Líkur á óbreyttum stýrivöxtum aukast  Verðbólgumæling nálægt spá SÍ Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Verðbólgumæling nú sýnir að líkur á óbreyttum stýrivöxtum út árið hafa aukist. Bankinn spáði 3,5% verðbólgu í febrúarmánuði. 251 milljón króna er hagnaður MP banka árið 2012 samanborið við 484 milljóna króna tap árið 2011. 118% er aukning hreinna rekstrartekna á milli ára og námu þær 3.995 milljónum króna árið 2012. 109% er útlánaaukning milli ára. Útlán námu 28 milljörðum króna 2012. ‹ VAXANDI BANKI › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.