Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Rekstur Varðar trygginga hefur skil-
að vaxandi hagnaði síðustu fjögur ár-
in, samkvæmt því sem fram kemur í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Á árinu 2012 var félagið rekið með
513 milljóna króna hagnaði. Til
samanburðar var hagnaður 330 millj-
ónir á árinu 2011.
„Viðskiptavinum fjölgar ört, fyrir-
tækið á sóknarfæri á fyrirtækja-
markaði og glæsilegur árangur hefur
náðst í jafnrétti með jöfnu kynjahlut-
falli í framkvæmdastjórn og jöfnum
launum karla og kvenna.“
Mikil ánægja með þjónustuna
„Þróun á rekstri Varðar á liðnum
árum hefur verið ákaflega ánægjuleg.
Viðskiptavinum fjölgar ár frá ári
og félagið hefur treyst sig í sessi sem
góður valkostur við þrjú eldri félög.
Niðurstaða ánægjuvogar Capacent
og aðrar þjónustumælingar staðfesta
að viðskiptavinir eru mjög ánægðir
með þjónustu félagsins. Starfsmenn
félagsins hafa sett sér það markmið
að veita bestu þjónustuna á markaðn-
um. Til staðar er því mikill vilji til að
gera betur og betur,“ segir orðrétt í
fréttatilkynningu.
Fram kemur í tilkynningunni að á
síðasta ári hafi þær breytingar orðið á
eignarhaldi félagsins að færeyski
bankinn BankNordik hafi eignast fé-
lagið að fullu.
Bankinn eigi jafnframt og reki
tryggingafélagið Trygd í Færeyjum.
„Við höfum fundið að viðskiptavinir
okkar eru ákaflega ánægðir með fær-
eyska eignarhaldið enda eru mikil og
góð tengsl á milli þessara gömlu vina-
þjóða,“ er haft eftir Guðmundi Jó-
hanni Jónssyni, forstjóra Varðar, í til-
kynningunni.
Sókn félagsins fremur beinst að
einstaklingum en fyrirtækjum
„Staða Varðar styrktist enn frekar
á síðasta ári. Hlutdeild félagsins á
markaði hefur vaxið mjög undanfarin
ár og er nú liðlega 10% af heildar-
iðgjöldum. Á síðustu árum hefur sókn
félagsins frekar beinst að einstakling-
um og fjölskyldum, en á þeim mark-
aði er hlutdeild félagsins nú um 15%.
Hlutdeildin á fyrirtækjamarkaði er
nokkuð minni. Kannanir sýna að fé-
lagið býr yfir góðum sóknarfærum á
fyrirtækjamarkaði og hefur stefnan
þar verið sett á áframhaldandi vöxt.
Heildarfjöldi viðskiptavina er nú um
30.000,“ segir einnig í fréttatilkynn-
ingu.
Framkvæmdastjórn Varðar er
skipuð sex manns, þremur konum og
þremur körlum, en hana skipa: Guð-
mundur Jóhann Jónsson, forstjóri;
Guðrún Einarsdóttir, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs; Steinunn Hlíf
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
tjónasviðs; Harpa Víðisdóttir, mann-
auðsstjóri; Sigurður Óli Kolbeins-
son, framkvæmdastjóri vátrygg-
ingasviðs og Atli Örn Jónsson,
framkvæmdastjóri sölu- og þjón-
ustusviðs.
Vörður líftryggingar
„Áframhaldandi vöxtur er á
rekstri Varðar líftrygginga sem hef-
ur nú skilað hagnaði fjögur ár í röð.
Félagið hóf starfsemi sína á árinu
2008 og voru iðgjaldstekjur vegna
líftrygginga á síðasta ári 136 m.kr.
og hagnaður 18 m.kr. Fjöldi við-
skiptavina Varðar líftrygginga er á
fjórða þúsund. Aðalfundur Varðar
trygginga hf. og Varðar líftrygginga
hf. verður haldinn 12. apríl næst-
komandi,“ segir ennfremur í frétta-
tilkynningu frá Verði. agnes@mbl.is
Hagnaður eykst hjá
Verði tryggingum
Hlutdeild félagsins liðlega 10% af heildariðgjöldum
Morgunblaðið/Frikki
Ánægðir Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, segir viðskiptavini
Varðar trygginga ánægða með hið færeyska eignarhald á félaginu.
Hagnaður Varðar
fyrir skatt (m.kr.)
2009 2010 2011 2012
600
500
400
300
200
100
0
513
330
209
124
● Bjarni Þór Þór-
ólfsson hefur verið
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Leigufélagsins
Kletts ehf., dóttur-
félags Íbúðalána-
sjóðs. Bjarni er
með MSc-gráðu í
rekstrarhagfræði
frá Viðskiptahá-
skólanum í Kaup-
mannahöfn og BSc-gráðu í við-
skiptafræði frá Ríkisháskólanum í
Kaliforníu. Megintilgangur Kletts er að
bjóða íbúðarhúsnæði til leigu um allt
land með langtíma húsnæðisöryggi að
leiðarljósi, samkvæmt tilkynningu.
Framkvæmdastjóri
Leigufélagsins Kletts
Bjarni Þór
Þórólfsson
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+/1.23
+,+.,/
,+.-13
,+.,3+
+2.45-
+-4.0-
+.-+-+
+/0./0
+02.-,
+,5.+0
+//.5,
+,+.35
,+.5-2
,+.-,5
+2.422
+-4./2
+.-+32
+/3.-1
+02.11
,+/.300+
+,5.50
+//.//
+,,
,+.04,
,+.-/1
+2.+00
+-+.,0
+.-,41
+/3.2,
+34.,,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára
Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar
henta mér afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig
líkamanum í góðu formi þrátt fyrir gigt og fleira sem
fylgir mínum aldri. Eftir skurðaðgerð nýlega fór ég í
6 vikna geislameðferð og meðan á meðferðinni stóð
stundaði ég líkamsræktina 4x í viku. Félagsska-
purinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra starfs-
fólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt.
Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst
aldrei úr tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt
þegar mér hentar.
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins
30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
Bjóðum einnigupp á trimform
Inga Hildur Yngvadóttir - 48 ára snyrti- og
fótaaðgerðafræðingur.
Ég er búin að vera í Curves í 7 ár og líkar mjög vel ég
mæti alltaf 3 í viku. Mér finnst gott að ráða hvenær ég
kem og hversu oft . Mér finnst mikill kostur að þurfa
ekki að stilla tækin og að ég sé að taka á öllum helstu
vöðvahópum. Mér líður mjög vel á eftir og ekki er
verra að halda kílóunum í skefjum og vera styrkari og
liprari. Frábær stöð sem er bara fyrir konur og þarna er
skemmtilegt starfsfólk og mjög góður andi.
Gleðilega
páska
Vorheftið
komið út
Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og
menningu — hefur nú komið út í níu ár
í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári
— vetur, sumar, vor og haust.
Tímaritið fæst í lausasölu í helstu
bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum,
en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr.
Áskriftarsími: 698-9140.