Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Byggingav
örur - byg
gingatækn
i
I I
Gylfaflöt 3 | 112 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is Ármúla 38 | Sími 588 5011 | Opið: virka daga 11-18, laugard. 12-14
MEÐ FJARSTÝRINGU
Verð nú 39.990,-
Verð áður 64.500,-
Verð nú 39.990,-
Verð áður 64.500,-
MEÐ FJARSTÝRINGU
fermingargjöfin...
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ráðamenn í Norður-Kóreu búa sig
undir stríð gegn Bandaríkjamönnum
og Suður-Kóreumönnum og hafa
gefið stórskotaliði og eldflaugasveit-
um fyrirskipanir um að undirbúa
árásir á meginland Bandaríkjanna,
Havaí-eyjaklasann og eyna Guam,
austur af Japan. Eyjan er eign
Bandaríkjamanna sem hafa þar her-
bækistöð.
Í yfirlýsingu frá yfirstjórn
norðurkóreska hersins er öllum her-
mönnum sagt að búa sig undir átök.
Bandaríkjamenn hafa hátt í 30 þús-
und manna herlið í S-Kóreu. Þarlend
stjórnvöld segjast ekki hafa orðið
vör við neitt sem bendi til þess að
árás sé yfirvofandi af hendi norðan-
manna. Flestir sérfræðingar segja
að N-Kóreumenn eigi enn langt í
land með að smíða eldflaug sem
hægt væri að skjóta yfir til megin-
lands Bandaríkjanna. En þeir ráða
yfir nokkrum kjarnorkusprengjum.
Mikil spenna á
Kóreuskaganum
Fyrir skömmu sögðust N-Kór-
eumenn hafa sagt einhliða upp
vopnahléssamningi sem batt enda á
Kóreustríðið 1953, endanlegur frið-
arsamningur hefur aldrei verið gerð-
ur eftir það. Oft hefur komið til
mannskæðra átaka eftir 1953 milli
Kóreuríkjanna tveggja. Norðan-
menn ráða yfir fjórða fjölmennasta
herafla heims þótt efnahagur lands-
manna sé í skelfilegu ástandi og ríkið
þurfi árlega á að halda matargjöfum
frá öðrum löndum.
Bandaríkin og Suður-Kórea
gerðu nýlega með sér nýjan varn-
arsáttmála, herir þjóðanna munu
bregðast sameiginlega við hafi N-
Kóreumenn í hótunum. Fyrir
skömmu hófust sameiginlegar her-
æfingar ríkjanna og munu þær
standa fram í lok apríl.
AFP
Hetjur Park Geun-Hye, forseti S-
Kóreu, hyllir minningu fallinna.
N-Kórea hótar árás
Segjast geta skotið langdrægum eldflaugum sínum á
Havaí-eyjaklasann og alla leið til meginlands Bandaríkjanna
Lögreglan í
Bretlandi segir
að skoðun á líki
rússneska auð-
kýfingsins Borís
Beresovskís
bendi til þess að
hann hafi hengt
sig. Beresovskí,
sem var harður
andstæðingur Vladímírs Pútíns
Rússlandsforseta og fékk pólitískt
hæli í Bretlandi 2003, fannst látinn
á laugardag í húsi sínu í Ascot.
Að sögn lögreglu munu líða vikur
áður en endanlegar niðurstöður
rannsókna fást. Gerðar voru nokkr-
ar tilraunir til að myrða Beresovskí
og talið er víst að útsendarar frá
Moskvu hafi myrt aðra andstæð-
inga Pútíns. kjon@mbl.is
BRETLAND
Beresovskí talinn
hafa hengt sig
Bókstafstrúaðir gyðingar í Jerúsalem brenna sýrð
brauð við upphaf átta daga páskahátíðar á mánudags-
kvöld. Á hátíðinni borða gyðingar aðeins ósýrð brauð,
þ.e. brauð án gers og minnast brottfararinnar frá
Egyptalandi fyrir um 3.500 árum og þjáninga forfeðr-
anna í 40 ár í eyðimörkinni.
AFP
Páskahátíð gyðinga í Jerúsalem