Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Humarhúsið 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 Þegar njóta á kvöldsins... www.nortek.is Sími 455 2000 Nortek sérhæfir sig í öryggislausnum sem þú getur treyst hvort heldur er að degi eða nóttu, miklir möguleikar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki. Meira en 16 ára reynsla í sölu og þjónustu á öryggiskerfum. Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is FYRIRTÆKJAÖRYGGI • Aðgangsstýring • Brunakerfi • Myndavélakerfi • Innbrotakerfi • Slökkvikerfi / Slökkvitæki • Öryggisgirðingar / Hlið / Bómur • Áfengismælar / fíkniefnapróf Í aðdraganda kosn- inganna 2003, lét höf- uðsmiður kenninga og stefnu Sjálfstæð- isflokksins, Hannes Hólmsteinn Giss- urarson, í ljós það við- horf sitt í Kast- ljósþætti RÚV eða á öðrum sambærilegum vettvangi, þegar m.a. var til umræðu svo- nefndur öryrkjadóm- ur Hæstaréttar, að sér væri einkar hlýtt til öryrkja og að sér fyndist það sjálfsagt að bæta kjör þeirra, ef einhver afgangur yrði. Í Kast- ljósþætti við upphaf kosningabar- áttu skömmu síðar, féllu þeir báðir, formennirnir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson, í þá gryfju, að enduróma efnislega ummæli Hann- esar Hólmsteins. Á liðnum góðæristíma 2003-2007 voru mörg gullin tækifæri fyrir stjórnvöld til að láta athafnir fylgja orðum, en það var ekki gert. Þess í stað var þeim sem mest máttu sín hyglað óspart. Í tilvitnaðri afstöðu Hannesar Hólmsteins og stjórnmálaforingj- anna tveggja fólst hugsunarháttur, sem ekki fellur að þjóðarsálinni. Ummælin virtust endurspegla það viðhorf þeirra allra, að þessir hópar manna væru ölmusuþegar og afæt- ur í samfélagi okkar. Fyrst skyldi tryggja að aðrir hópar hefðu alls- nægtir áður en litið yrði til þeirra, sem minna máttu sín vegna örorku eða öldrunar. Íslendingar eru hins vegar vanir því, að mæta fúslega bág- indum samborgaranna með aðstoð, hvort sem einhver afgangur er eða ekki, þegar aðrir hafi kýlt vömb sína. Þeir sem hugsa eins og ég hef að framan rakið og taka við stjórnartaumunum nú í vor, þurfa að gera sér grein fyrir því, að þótt öryrkjar og aldraðir geti ekki innt af hendi vinnu- framlag í þágu lands og þjóðar, eru þeir engu að síður sameigendur okkar að landinu með öllum þeim ríkulegu gögnum og gæðum, sem því fylgja. Þeir eiga því þegar af þeirri ástæðu skýlausa kröfu til þess að fá í öllu falli greiddan út sinn hluta í arði af þessum eignum, þótt þeir geti ekki látið í té vinnu- framlag sitt. Að auki hefur svo hið opinbera lögbundnar framfærsluskyldur gagnvart þeim, sem ekki hafa í sig og á. Velvild í garð öryrkja, ef einhver afgangur verður Eftir Björn Ólaf Hallgrímsson Björn Ólafur Hallgrímsson »…þótt öryrkjar og aldraðir geti ekki innt af hendi vinnu- framlag í þágu lands og þjóðar, eru þeir engu að síður sameigendur okk- ar að landinu… Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Annað slagið gýs upp sú umræða hvort Andrés önd og allur hans ættbogi – marg- breytilegur sem hann er – séu varasamar fí- gúrur, í uppeldislegum skilningi. Mig rámar í að einhverju sinni hafi verið sett út á viðvar- andi nærbuxnaleysi Andrésar sjálfs, í ann- an tíma voru gerðar at- hugasemdir við að fjölskyldulífi per- sóna í Andabæ væri ábótavant svo ekki sé talað um reiðuleysið á Rip, Rap og Rup. Ég hef alltaf gefið skít í ofan- greindar athugasemdir en nú er svo komið að mér þykir ástæða til að staldra við og hugsa um hvort allur þessi vaður af Andrésar andar- blöðum á ýmsum þjóðtungum inni á hverju heimili hafi kannski ekki ver- ið eins meinhollur og ég alltaf hélt. Það eru þó ekki félagslegir þættir (nema að hluta til) sem ég tel að hafi skaðað hluta þessarar þjóðar – það eru hinar efnahagslegu rang- hugmyndir sem ég hef áhyggjur af. Ég held þær eigi upptök sín í pen- ingatanknum hans Jóakims frænda. Tanki sem er alltaf útbelgdur af gulli og seðlum án þess að nokkrar skýr- ingar séu gefnar á því hvaðan allt það fjármagn kemur. Margur sýnir nú einkenni þess- arar efnahagslegu Andabæjarveilu þegar gefið er í skyn – og því reynd- ar blákalt haldið fram – að frá Evr- ópusambandinu sé gríðarlegra efna- hagsumbóta að vænta; taki menn sig til og gangi í þann félagskap. Aldrei er útskýrt hvaðan þessi meinti efnahagslegi ávinningur eigi að koma, hver hafi búið hann til í upphafi eða frá hverjum það gull sem á að rétta við efna- hag Íslands sé komið. Það er eðlilegt að er- indrekar ESB á Íslandi láti þessu öllu ósvarað – því útkoman er svo ljót. Það er bara þrá- stagast á því að þarna sé einhver svona tank- ur og gott ef ekki laus- ar einhverjar húsvarðarstöður við hann – og hefur þá afætueðlið borið frummyndina ofurliði því vitaskuld raðar Jóakim frændi ekki svo frek- lega á garðann. Eða hvaðan er hún annars komin sú hugmynd að niðri í Brussel sé ein- hver gámur fullur af peningum sem standi Íslendingum til boða að ganga í – og jafnvel synda í – svo far- ið sé að dæmi Jóakims? Hvernig fær fólk það til að ganga upp að það sé rétt að þiggja peninga úr ein- hverjum tanki útí Brussel sem í er safnað meðal fátækustu sálna álf- unnar? Hvernig dettur mönnum í hug að vilja seilast í fjármuni sem eru skafnir af framfærslufé fátækra Grikkja, Ítala, Portúgala, Spánverja og Kýpurbúa? Hvernig fá menn það út að það sé siðlegt að taka við slíku gulli? Fé það sem Evrópusambandið sýslar með er skattfé, það eru tollar og gjöld, það eru allar mögulegar og ómögulegar tíundir hirtar jafnt af ríkum sem fátækum með öllum þeim vélabrögðum sem aðeins geta náð sér á strik þegar taka höndum sam- an alheimskapítal og bírókratar a la Frans Kafka. Öll siðleg sjónarmið benda til þess að rétt sé að halda sig frá þeim ósköpum. Allar sögulegar staðreyndir sýna að það er rétt að forðast svoleiðis samkrull. Það er rangt að fara með betlistaf að þeim, sem hafa stolið af öðrum, til að fá hjá þeim skotsilfur og er þá sama hvort það er til gæluverkefna eða þjóðþrifa framkvæmda. Það ber vott um afsiðun þjóðarinnar ef hún hefur áhuga á því að seilast í það fé sem hirt hefur verið með harðræði af fátæku fólki. Svo fátæku að það á vart til hnífs og skeiðar, fátæku í löndum þar sem velferðarkerfið hef- ur aldrei verið neitt í líkingu við það sem við þekkjum hér, fátæku fólki í löndum, þar sem þó það brothætta velferðarkerfi sem fyrir var, er hrunið! Ég segi NEI! Það er ljóst að nærbuxnaleysi Andrésar andar er hjóm eitt miðað við það siðlega andvaraleysi sem haldið er að þjóðinni af þeim sem ekki opna munninn án þess að mæra peningatankinn í Brussel. Uppeldið á Rip, Rap og Rup er til fyrirmyndar miðað við þau uppeldislegu gildi sem boða að rétt sé að seilast í þann tank. Og Andrés önd er, þrátt fyrir allt og allt, til mikilla muna uppbyggilegra lesefni en áróðurinn sem hingað streymir í gegnum Evrópustofu. Regnboginn, framboð gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu segir NEI! Við minnum á að í peninga- tanknum í Brussel er illa fengið fé, blóðpeningar – við kærum okkur ekki um þá, ekki handa okkur og ekki handa börnunum okkar. Peningatankurinn hans Jóakims frænda – í Brussel Eftir Guðmund S. Brynjólfsson »Hvaðan er hún ann- ars komin sú hug- mynd að niðri í Brussel sé einhver gámur fullur af peningum sem standi Íslendingum til boða að ganga í – og jafnvel synda í? Guðmundur S. Brynjólfsson Höfundur er rithöfundur og skipar 2. sæti J-lista Regnbogans í Suðurkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.