Morgunblaðið - 27.03.2013, Page 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
✝ Erla GuðbjörgEinarsdóttir
fæddist í Reykjavík
16. júní 1933. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 21. mars
2013.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún Jó-
hanna Einarsdótt-
ir, f. 5.12. 1904, d.
8.6. 1982 og Einar
Oddur Kristjánsson, skipstjóri,
f. 23.12. 1895, d. 29.6. 1941.
Hálfsystkini Erlu eru Unnur
Hafdís Einarsdóttir, f. 21.2.
1930, d. 1.10.2005 og Atli Örn
ur Örn, f. 25.10. 1976. Guðrún
er gift Gunnari Jensen, f. 19.10.
1954. Börn þeirra eru: Sig-
urður, f. 29.11. 1978, Gunnar
Ægir, f. 8.4. 1982 og Svava, f.
5.9. 1985. 2) Einar Oddur, f.
14.5. 1959. 3) Sigurður Óli, f.
1.6. 1968, kvæntur Björgu
Harðardóttur, f. 29.4. 1968.
Börn þeirra eru: Oddur, f.
21.11. 1990 og Elísabet, f. 5.9.
1994. Langömmubörn Erlu eru
átta talsins.
Erla stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík.
Hún var ritari hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og starfaði
sem sjálfboðaliði hjá Kvenna-
deild Rauða kross Íslands frá
stofnun deildarinnar. Erla
starfaði síðar sem ritari hjá
Vita- og hafnamálastofnun.
Útför Erlu fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag, 27. mars 2013,
og hefst athöfnin kl. 13.
Einarsson f.
7.5.1939.
Erla giftist 9.4.
1954 Ólafi Sigurðs-
syni, f. 24.5. 1932.
Foreldrar hans
voru Guðrún Svein-
björg Árnadóttir, f.
23.11. 1905, d. 29.1.
1999 og Sigurður
Ólafsson, f. 12.1.
1901, d. 27.10.
1969.
Börn Erlu og Ólafs eru: 1)
Guðrún Hanna, f. 14.6. 1955,
giftist Ásmundi Jónssyni, f.
15.3. 1955. Þau skildu. Sonur
Guðrúnar og Ásmundar er Ólaf-
Elsku amma.
Það er skrýtin tilfinning að
vera hérna í Bandaríkjunum og
skrifa um þig minningargrein og
erfitt til þess að hugsa að eiga
aldrei aftur eftir að kíkja í heim-
sókn til þín í Skógarselið.
Við þekkjum það betur núna,
þegar við búum erlendis, hvað
það eru mikil forréttindi að hafa
alist upp á Íslandi, nálægt ömm-
um og öfum. Þegar við vorum las-
in varstu alltaf boðin og búin að
passa okkur og leyfðir okkur að
gista hvenær sem við þurftum
eða vildum. Þú hugsaðir alltaf um
alla í kringum þig áður en þú
hugsaðir um sjálfan þig og hafðir
alltaf tíma til að hlusta og hugga.
Þú komst líka stundum í heim-
sókn til okkar eftir að við fluttum
út. Fyrst til Bretlands og síðan til
Bandaríkjanna. Okkur er minn-
isstætt þegar þú þurftir að fram-
lengja heimsóknina í september
2001, vegna atburðanna sem áttu
stað í New York. Við höfðum ekk-
ert á móti því að fá lengri tíma
með ömmu en mikið varstu fegin
að komast aftur heim til afa, sem
beið eftir þér heima.
Það var alltaf skilningur á okk-
ar sjónarmiðum og skoðunum
hvort sem um var að ræða áhuga-
mál, skóla, vini eða matvendi.
Alltaf tókstu afstöðu með okkur.
Við vottum afa Óla okkur
dýpstu samúð á þessum erfiðu
tímum.
Oddur og Elísabet.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund þá rifjast upp minningarn-
ar. Við Erla kynnumst fyrir um
það bil 60 árum. Þar sem unn-
ustar okkar voru æskuvinir, sem
síðar urðu eiginmenn okkar,
tókst góður vinskapur hjá okkur.
Við höfum gengið ævigönguna
alla tíð saman síðan með góðum
samskiptum fram á þennan dag.
Erla var búin að ganga í gegn-
um mikil veikindi á æskuárum
sínum og hún missti föður sinn
aðeins átta ára. Það hefur verið
mikið áfall fyrir svo unga stúlku.
En hún bar það nú ekki utan á
sér. Hún geislaði af hamingju
þegar hún giftist Ólafi Sigurðs-
syni og ákveðin í að njóta lífsins.
Þau eignuðust fallegt heimili og
eignuðust síðan eina stúlku og
tvo drengi, falleg og vel gefin
börn.
Við fórum í okkar fyrsta ferða-
lag saman þegar Guðrún móðir
Erlu bauð okkur að fara í siglingu
með MS. Kötlu sem var að fara til
Kaupmannahafnar. Þar vorum
við í tvær vikur. Nýlega vorum
við að rifja það upp að þetta var í
eina skiptið sem við höfðum farið
til Kaupmannahafnar, það var ár-
ið 1957.
Erla var vel gefin kona, ein-
stakur fagurkeri, snillingur í
krossgátum, alltaf vel til höfð og
heimilið hennar var alltaf til
sóma. Svo var hún trygg vinum
sínum og gjafmild, hlúði vel að
fjölskyldunni og frændfólki sínu.
Það var henni mikil gæfa að eiga
systur, Unni H. Einarsdóttur,
þær voru samfeðra og var mikill
systrakærleikur á milli þeirra frá
fyrstu tíð. Börn Unnar voru Erlu
mjög kær og dvöldu þau oft hjá
henni og fjölskyldunni, þegar þau
voru á landinu hér á árum áður.
Hún bar mikla umhyggju fyrir
systur sinni í hennar veikindum
fram á síðasta dag.
Frá upphafi kynna okkar vor-
um við alltaf í nánu sambandi
með reglulegu millibili. Þegar
þau flytja í Skógarsel þá fundum
við glöggt hvað þau voru ánægð
með að vera komin þangað. Eftir
að hafa búið í stórum glæsilegum
húsum voru þau alsæl að vera
komin í litla sæta húsið sem er
glæsilegt og þægilegt í alla staði.
Enginn getur nokkurn tíma
vitað hvað tekur við, sem betur
fer. Stuttu eftir að þau eru búin
að koma sér vel fyrir þá veikist
Óli maðurinn hennar.
Við hjónin komum reglulega til
þeirra þegar Óli var ekki í dag-
vistun. Erla var alltaf með upp-
dekkað borð og búin að kaupa
uppáhaldsköku Kristins manns-
ins míns og það var ljóst að þau
nutu þess að eiga þessar stundir
með okkur og við höfðum gaman
af að rifja upp gamlar minningar,
skoða myndir af fallegu börnun-
um þeirra og nýjustu afkomend-
um þeirra sem þau voru svo stolt
af. Við erum þakklát fyrir að hafa
átt þessar stundir með þeim.
Erla var dugleg að hugsa um
heimilið og veika manninn sinn.
Ákveðin að standa á meðan kraft-
ar leyfðu og að halda áfram með
sinni reisn og æðruleysi. En hún
fór á undan okkur í ferðalagið
sem bíður okkar allra. Bæn mín
er sú að blessun Guðs umvefji
börnin hennar og eiginmann og
aðra ástvini.
Blessuð sé minning mætrar og
göfugrar konu.
Súsanna Kristinsdóttir.
Í dag kveðjum við okkar kæru
vinkonu, hana Erlu, eftir 60 ára
kynni með þessum sálmi:
Hver sól er rís brátt síga tekur,
og sérhver dagur líður hjá.
Hin fögru blóm sem vorið vekur,
þau visna haustdegi á.
Svo breytist allt og hverfist hér,
en Herrann einn hinn sami er.
Elsku Óli og fjölskylda.
Með innilegri samúðarkveðju,
Nanna, Ingvar og Birna.
Erla Guðbjörg
Einarsdóttir
✝ Páll SigurvinGuðmundsson
fæddist á Hamri,
Barðaströnd, 7.
maí 1944. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni
19. mars 2013.
Foreldrar hans
voru Ólöf Páls-
dóttir, f. 1905, d.
1955 og Guðmund-
ur Jónsson, f. 1894,
d. 1969. Systkini hans: Haukur
Breiðfjörð Guðmundsson, f.
1919, Jónas Guðmundsson, f.
1939, Garðar Auðberg Jak-
obsson, f. 1928, d.
1940, Þorbjörg
Jakobsdóttir, f.
1931, d. 1995, Páll
Jakobsson, f.
1933. Páll Sig-
urvin eignaðist
einn son, Ólaf
Ágúst Pálsson, f.
1967, sambýlis-
kona hans er
Anna Þórð-
ardóttir Bach-
mann, f. 1976.
Páll Sigurvin verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu í
dag, 27. mars 2013, kl. 11.
Þegar endar æviskeið
er sem vinir finni,
það gerðist margt á lífsins leið,
sem lifir í minningunni.
(Stefán Ragnar Björnsson.)
Ég kynntist Sigurvin fyrir 14
árum þegar ég keypti hesthús í
Fjárborg. Kunningsskapurinn
var lítill í upphafi en þegar ég tók
upp fjárbúskap jókst hann enda
var hann alltaf tilbúinn að hjálpa
okkur sem minna kunnum. Sig-
urvin ólst upp á bænum Hamri á
Barðaströnd en þar var fjárbú,
hann fluttist síðan til Patreks-
fjarðar og loks til Reykjavíkur
fyrir rúmum 40 árum. Uppvaxt-
arárin höfðu greinilega mótað
Sigurvin þannig að fljótlega eftir
komuna til Reykjavíkur keypti
hann fjárhús í Fjárborg og hóf
þar fjárbúskap. Hann var alltaf
einn af áhugasömustu félögum
Fjáreigendafélagsins og hafði
óbilandi áhuga á sauðfjárhaldi í
Reykjavík. Fé Sigurvins var ætt-
að af Ströndunum og var hann
alla tíð með fallegt fé. Því bera
vitni öll verðlaunin sem hann
fékk á árlegum hrútasýningum
félagsins og lagði hann metnað
sinn í að gera vel. Það er ekki
langt síðan Sigurvin greindist
með krabbamein en þótt hann
væri orðinn inniliggjandi á Land-
spítalanum var engan bilbug á
honum að finna. Í haust mætti
Sigurvin í Fossvallarétt og á
hrútasýningu Fjáreigendafélags
Reykjavíkur. Hann hafði keypt
sér kynbótahrút og aðspurður af
hverju hann mætti ekki með
hann á sýninguna þá sagðist
hann vilja leyfa einhverjum öðr-
um að vinna. Sigurvin sinnti ýms-
um störfum fyrir Fjáreigendafé-
lagið á með heilsan leyfði. Hann
var safngæslumaður, fór í útrétt-
ir og sundurdrátt í Húsmúlarétt
enda var hann með eindæmum
fjárglöggur og þekkti fé úr Fjár-
borg án þess að þurfa að skoða
markið. Félagar Fjáreigendafé-
lags Reykjavíkur kveðja með
söknuði mætan félaga og vottum
við fjölskyldu hans og vinum inni-
lega samúð okkar. Blessuð sé
minning Sigurvins.
Árni Ingason, formaður Fjár-
eigendafélags Reykjavíkur.
Við Sigurvin gengum hratt yf-
ir hjarnið, örlítill skafrenningur,
komið fram yfir veturnætur, og
enn var fjár von úr afrétti Sel-
tjarnarneshrepps hins forna. Við
höfðum verið keyrðir upp í
Sauðadali í Ölfusafrétti, þetta var
eftirleit og eftir að komið var vel
niður í Bolöldur, í okkar eigin af-
rétti, var haldið í norður með
stefnu á austanvert Lyklafell.
Fáeinar kindur komu í leitirnar,
haldið var niður Fóelluvötn, suð-
ur í Lakheiði og þaðan beint nið-
ur í Fossvallarétt þar sem félagar
úr Fjárborg tók á móti okkur.
Þar hittumst við Sigurvin reynd-
ar í tvennum réttum á hverju
hausti og að sjálfsögðu í göngun-
um. Þá vorum við skilamenn fyrir
Kópavog og Reykjavík í Hús-
múlarétt neðan Kolviðarhóls um
áratuga skeið og á hverju hausti
vorum við í hópi þeirra tóm-
stundafjárbænda úr Reykjavík
sem framvísuðu fé í sláturhúsi,
lengst af á Selfossi. Alltaf var
Sigurvin sami góði félaginn,
traustur, röskur og hjálpsamur
en þar að auki mjög glöggur og
snjall fjármaður. Leitaði gjarnan
álits hjá honum þegar ég var að
velja lambhrúta. Það er gott að
eiga svona minningar.
Í fjárhúsunum í Fjárborg var
allt í röð og reglu, ætíð var Sig-
urvin með hugann við búskapinn
og jafnvel í haust þegar heilsan
leyfði ekki lengur þátttöku í
göngum og réttum lét hann aka
sér í réttirnar til að líta yfir hóp-
inn og hitta okkur félagana, þótt
ekki væri nema stutta stund. Það
gladdi mig mikið eftir öll þessi
góðu kynni og prýðilegt samstarf
í hvívetna.
Sigurvin kom í raðir okkar
fjáreigenda með Jónasi bróður
sínum, einnig miklum sóma-
manni, á 8. áratug liðinnar aldar.
Tengslin við átthagana, Barða-
ströndina, leyndu sér ekki. Auk
fjárbúskaparins hafði Sigurvin
mikla ánægju af hrossaeign sinni
á seinni árunum. Þann góða hirði
kveð ég nú með söknuði. Að-
standendum öllum votta ég inni-
lega samúð.
Blessuð sé minning Páls Sig-
urvins Guðmundssonar.
Ólafur R. Dýrmundsson.
Páll Sigurvin
Guðmundsson
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR HAFSTEINN KONRÁÐSSON,
skriftvélameistari /
rafeindavirkjameistari,
Sólheimum 32,
Reykjavík,
andaðist á Landakoti aðfaranótt 24. mars.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Stella Þórdís Guðjónsdóttir,
Ómar Sigurðsson, Sigurbjörg Karlsdóttir,
Bára Sigurðardóttir, Kristján O. Þorgeirsson,
Erla Sigurðardóttir, Jón Arnar Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
MANLIO CANDI,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 22. mars.
Útförin fer fram frá Aðventkirkjunni,
Ingólfsstræti 19, þriðjudaginn 2. apríl
kl. 13.00.
Sigríður Candi,
Marina Candi, Harald Ragnar Óskarsson,
Indro Candi, Heba Magnúsdóttir,
Elfa Frið Haraldsdóttir, Leó Blær Haraldsson,
Karel Candi, Markús Candi.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGTRYGGUR V. MARÍUSSON,
Aðalgötu 5,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 25. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtu-
daginn 4. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lilja Sigtryggsdóttir, Bjarni Pétursson,
Sigurður Sigtryggsson, Linda Antonsson,
Margrét Íris Sigtryggsdóttir, Gunnar Garðar Gunnarsson,
Kolbrún Sigtryggsdóttir,
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
HAUKUR STEINSSON
tannlæknir,
Skildinganesi 8,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 16. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Anna Kristjánsdóttir,
Katla Steinsson, Ársæll Þorsteinsson,
Hanna Lára Steinsson,
Kristján Jóhann Steinsson,
Haukur Þorsteinsson, Kristmann Þorsteinsson,
Andri Snær Ársælsson, Anna Sjöfn Ársælsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
RAGNAR SVAFARSSON,
Ferjubakka 4,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur þriðjudaginn 19. mars.
Útförin fer fram þriðjudaginn 2. apríl frá
Fella- og Hólakirkju kl. 13.00.
Stella Magnúsdóttir,
Svafar Ragnarsson, Svava Margrét Blöndal Ásgeirsdóttir,
Gunnar Már Ragnarsson, Hrafnhildur H. K. Friðriksdóttir,
Stefán Ragnarsson, Árný Lára Karvelsdóttir,
Pia Kousgaard,
og barnabörn.
✝
Faðir minn, afi og vinur,
GUÐMUNDUR K. MAGNÚSSON,
Víðimýri, Vesturlandsbraut,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð laugar-
daginn 16. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 9. apríl kl. 15.00.
Magnús Guðmundsson,
Emil Kári Magnússon,
Hulda Böðvarsdóttir
og aðstandendur.
✝
Útför
AÐALSTEINS KR. GUÐMUNDSSONAR,
Sléttuvegi 11
í Reykjavík,
fer fram frá kapellunni í Fossvogi í dag,
miðvikudaginn 27. mars, kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur Y. Pálmason, Jónína Líndal.