Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 33
Lilja Dóra var óskabarn. Öll stórfjölskyldan beið þess með mikilli eftirvæntingu að hún kæmi í þennan heim, heitust var þó þrá foreldranna eftir henni. Hún var umvafin kærleika og ástúð margra. Yndislega falleg stúlka með sterka persónueiginleika frá fyrsta degi. Natni foreldranna og umhyggjusemi var einstök og endurspeglaðist í öruggri ungri stúlku sem var að stíga sín fyrstu skref í lífinu. Lilja Dóra bjó yfir mikilli kímnigáfu og ein- beittum vilja. Hún sýndi skýrt hvað hún vildi og fylgdi því eftir með hegðun sinni og staðföstu augnaráði. Kraftur, lífsgleði og ákveðni einkenndi hana. Lilja Dóra vildi hafa mikið fyrir stafni, lét minniháttar hindranir ekki slá sig út af laginu heldur stefndi á þann stað eða þann hlut sem hún ætlaði að ná. Foreldrar hennar sköpuðu henni tilfinningalegt öryggi, gáfu henni jákvæða athygli og byggðu hana þannig upp sem sterkan einstak- ling. Það vakti athygli hve vel var að henni búið á allan hátt, hversu fallega hún var klædd, hvernig hlustað var eftir hennar þörfum og henni gefið rými til að kanna heiminn. Vegna þessa at- lætis fengu persónueiginleikar hennar að njóta sín. Lilja Dóra var nýlega byrjuð á leikskóla og þar naut hún sín vel, enda fé- lagslynd og sjálfsörugg. Lilja Dóra var gleðigjafi og við eigum ótal fallegar minningar um hana. Minning fallegrar stúlku með sterkan persónuleika lifir með okkur. Liljur hvítar í ljósum draumi lyfta móti geislunum brá; í glugganum mínum þær ungar anga sem elskunnar sæla þrá. Ég sit og horfi á sumarljómann, er svífur um loftin blá, og hugsa um augu, er á mig litu með undrun og bæn og þrá. (Hulda.) Elsku hjartans Ástþór og Svana, megi Guð styrkja ykkur og stórfjölskylduna á þessum erfiðu tímum. Sigríður Hulda og fjölskylda. Elsku litla Lilja Dóra. Ljúfa brosmilda Lilja Dóra. Það er engin sanngirni í þessu lífi, að hrifsa þig svona skyndilega burt frá öllum sem elska þig. Þitt stutta líf skilur eftir svo ógnar- stórt skarð í hjörtum okkar allra. Þín verður svo sárt saknað, elsku Lilja Dóra. Ég hefði getað svarið ég sá í andrá þig og í einni svipan þín angan nærði mig. Þá hvíslað var í húmið ég heyrði róminn þinn. Ég verð ætíð hjá þér vinur minn. Og þín ég verð að eilífu. Og ég mun varða þína leið hvert sem þú ferð. Ef ég ætti eina ósk ég myndi óska mér að fengi ég að sjá þig brosa á ný. Eitt andartak á ný í örmum þér á andartaki horfin varstu mér. Ó hve sárt ég sakna ég sé ekkert né skil. Ég vil ei aftur vakna né vera lengur til samt í huga geymi ljóðið þitt og lag af öllu hjarta þakka sérhvern dag. (H.Ö.B.) Elsku Lilja Dóra, þú getur verið stolt af foreldrum þínum, þau standa sig svo ótrúlega, ótrúlega vel í sinni miklu sorg. Við munum alltaf gera okkar besta til að styðja þau og styrkja. Elskum þig, litla stelpu- skott. Sigríður og Pétur Bergmann, Hafdís Tinna og Berglind Elly. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 ✝ Hulda MargrétÞorgeirsdóttir fæddist að Austur- haga í Aðaldal 16. júní 1923. Hún lést á Droplaugarstöð- um 20. mars 2013. Foreldrar henn- ar voru Þorgeir Kristjánsson, f. 12.10. 1895, d. 7.2. 1975 og k.h. Sigfríður Gyða Hallgrímsdóttir, f. 3.12. 1894, d. 24.11. 1972, þau slitu sam- vistum 1937. Systkini Huldu voru: Drengur, f. 6.1. 1916 sem lést í frumbernsku, Helga, f. 21.5. 1917, d. 30.7. 1985, gift Ásgeiri Kröyer, f. 1914, d. 1997 og Óli Geir, f. 10.8. 1926, d. 23.9. 2010, kvæntur Ásu Gunnar Ómar dótturina Sal- óme Huld, f. 24.4. 1982, maður hennar er Sigurður Þór Har- aldsson, f. 24.3. 1979, börn þeirra eru Emilía Sól Guð- mundsdóttir, f. 24.8. 2003, Pat- rekur Þór Guðmundsson, f. 8.8. 2005 og Hildur Þórey Sig- urðardóttir, f. 29.3. 2012. Hulda ólst upp með for- eldrum sínum fyrst í Austur- haga til 1927 að þau fluttu til Húsavíkur og fengu leigt í gamla prestsetrinu Húsavík og bjuggu þar á móti þremur prestum til ársins 1935 að þau fluttu til Siglufjarðar. Megnið af starfsævinni vann Hulda ut- an heimilis, m.a. var hún kokk- ur á Hótel Bifröst í Norður- árdal. Hún vann hjá Osta- og smjörsölunni, Sælgætisgerð- inni í Rauðagerði, eldhúsi Landspítalans v/Hringbraut og eldhúsi Íslandsbanka í Lækj- argötu. Útför Huldu fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 27. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Hafdísi Þórarins- dóttur, f. 1928, d. 2003. Hulda giftist 6.11. 1944 Gunnari Guðjónsyni, húsa- smið frá Nes- kaupsstað, f. 4.9. 1918, d. 25.7. 2009, þau slitu samvist- um 1983. Einka- sonur þeirra er Gunnar Ómar, f. 14.9. 1957, sambýliskona hans er Bjarndís Arnardóttir, f. 30.9. 1965, dóttir þeirra er Ísa- bella Margrét, f. 28.6. 2006. Fyrir átti Bjarndís dótturina Júlíönu Björt Ívarsdóttur, f. 12.4. 1992. Með fyrri konu sinni Guðlaugu Steindórs- dóttur, f. 1.6. 1961, eignaðist Elsku amma mín, hvað ég á eftir að sakna þín rosalega mikið. Þú varst alltaf svo góð við mig og kenndir mér svo margt skemmti- legt sem ég gleymi aldrei, eins t.d. að spila á spil, en þú spilaðir svo oft við mig veiðimann, uppá- haldsspilið mitt og stundum ól- sen ólsen og Svarta pétur. Þú kenndir mér líka á peningana í fínu buddunni þinni og litaðir með mér í litabókinni eða punt- aðir dúkkurnar með mér. Amma mín, þú hafðir alltaf tíma til þess að gera eitthvað skemmtilegt með mér meðan þú varst hraust og því mun ég aldrei gleyma. Þú laumaðir líka oft að mér pening- um sem ég setti í baukinn minn eða keypti mér eitthvað fallegt. Mér fannst líka mjög gaman að fá þig í pítsu á föstudögum eða fara í pönnukökur til þín í Furu- gerði með pabba og mömmu. Það voru sko bestu pönnukökur í heimi amma. Elsku amma mín, mikið vildi ég fá að hafa þig lengur og ég veit að þú hefðir miklu frekar viljað vera engill á jörðinni hjá mér heldur en ósýnilegur engill uppi hjá Guði. Þín Ísabella Margrét. Nú er Hulda mín farin. Ég minnist þessarar frábæru konu sem varð kjölfesta í lífi mínu frá því ég var 9 mánaða gömul. Móð- ir mín, Helga Níelsdóttir ljós- móðir, réði Huldu þá 19 ára gamla sem húshjálp og barn- fóstru fyrir mig og 10 ára systur mína. Hulda kom til Reykjavíkur frá Siglufirði þar sem hún ólst upp. Fljótt komu fram hennar einstöku hæfileikar til húshalds, matreiðslu og svo var hún mjög barngóð. Hún dvaldi á Miklu- brautinni í 7 ár, hélt heimili og annaðist okkur systur. Þá varð ég að kveðja Huldu mömmu eins og ég kallaði hana þegar hún hélt til Neskaupstaðar með eiginmanni sínum, Gunnari Guðjónssyni. Þau bjuggu í Nes- kaupstað í 5 ár en þá komu þau aftur til Reykjavíkur og leigðu íbúð af móður minni á Miklu- braut 1. Gunnar fékk vinnu hjá Sambandinu og hóf að byggja húsið að Tunguvegi 17 sem þau fluttu í tveimur árum seinna. Það var allt byggt í frítíma þeirra og stóð Hulda ávallt sem klettur við hlið mannsins síns. Stuttu eftir að Hulda og Gunnar fluttu á Tunguveginn eignuðust þau Gunnar Ómar og var það mikil hamingja í þeirra lífi þar sem þau voru bæði ein- staklega barngóð. Leiðir þeirra Huldu og Gunn- ars skiljast þegar Hulda er sex- tug. Þá voru tengdaforeldrar mínir að flytja að Hringbraut 28 og það var laus íbúð í húsinu. Hulda flutti inn og bjó þar næstu 20 árin í frábæru sambýli með Sigrúnu tengdamóður minni og Siggu systur hennar. Hulda tók bílpróf og reyndist þeim systrum á Hringbrautinni ómetanleg hjálp í alla staði þegar þurfti á bílferðum að halda. Seinni árin varð ég daglegur gestur á Hring- brautinni hjá þeim Huldu og Siggu. Ég var að vinna í næsta nágrenni og var eiginlega í fæði hjá þeim til skiptis. Eftir að Sigga lést flutti Hulda í Furu- gerði 1 og tókst að gera íbúðina sína hlýlega og vistlega. Það var alltaf gestkvæmt hjá Huldu enda ávallt tekið vel á móti gestum. Ég var alltaf velkomin á hennar heimili og það var alltaf jafn notalegt þegar við borðuðum saman. Alla tíð var Hulda mér innan handar og var hjálpsemi henni ávallt í blóð borin. Hún var mikil handavinnukona og svo vandvirk að allt varð að listaverkum í hennar höndum. Síðustu tvö árin voru Huldu erfið vegna veikinda en aldrei kvartaði hún. Það var alltaf sama æðruleysið sem einkenndi hana Huldu mína fram á hennar síð- asta dag. Ég á henni svo margt að þakka að það verður ekki upp- talið hér. Hulda var mér eins og móðir og lifir áfram í minningu minni um ókomna tíð. Ég votta Ómari, Salome og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Edda Níels. Frábær kona er fallin frá. Við systur kveðjum hana Huldu okk- ar með sorg í hjarta. Þó við séum ekki skyldar Huldu hefur hún alltaf verið hluti af okkar fjöl- skyldu. Í okkar uppvexti voru aldrei fjölskylduboð án Huldu og Gunna. Það var mikil gæfa fyrir okkur systur ansi ungar að árum þegar Hulda vann í sælgætis- gerðinni Mónu og með afmæl- isgjöfunum fylgdi óvæntur glaðningur í nammipoka. Þegar maður er 7 ára þá er það nóg til setja fólk í dýrlingatölu. Hulda var alltaf ein af fjölskyldunni. Í jólaboðunum á Miklubrautinni, hjá Helgu ömmu stjórnaði hún laufabrauðsbakstri eins og henni einni var lagið. Hulda var komin vel yfir áttrætt þegar hún tók seinast þátt í laufabrauðinu með okkur og fannst henni mamma ekki ennþá fletja nógu þunnt út. Enda Hulda með eindæmum vandvirk kona og kröfuhörð á að allt væri vel gert. Hún var frá- bær hannyrðakona og við systur nutum góðs af gjafmildi hennar og eigum frábærlega vel gerða jóladúka eftir hana. Þegar hún flutti á Hringbraut- ina ásamt Sigrúnu ömmu og Siggu frænku þá fórum við alltaf í heimsókn á allar hæðir. Maður mátti til að kíkja á allar döm- urnar og var Hulda aldrei und- anskilin. Meðan amma og Sigga lifðu þá var aldrei bara einni þeirra boðið í mat, þær voru allt- af þrjár og við kölluðum þær hina heilögu þrenningu. Hulda var einstaklega góð kona og hafði góða nærveru. Eft- ir að ég, Sigrún, flutti í Garða- bæinn ásamt manni mínum liðu varla þau áramót að Hulda kæmi ekki til okkar. Hún var okkur alltaf eins og besta amma og við söknum hennar sárt. Elsku Ómar, Salome og fjöl- skylda, við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigrún og Helga Bergsteinsdætur. Horf́ég um heiðríkt kvöld himins í geim, stjarnanna bjarta blik bendir mér heim, þangað sem eilíf er ::alsæla búin mér:: alsæla mér. (sr. Sigurður Jónsson í Lundi) Hún er sem óðast að hverfa kynslóðin sem upplifði allar breytingarnar í íslensku þjóðlífi á öldinni sem leið. Í þeim hópi var Hulda Þorgeirsdóttir. Hún ólst upp við kröpp kjör kreppu- áranna, fyrst á Húsavík, en svo á Siglufirði. Snemma þurfti hún að taka til hendinni t.d. við barna- gæslu, síldarsöltun, aðstoð í mat- sölu og sokkaviðgerðir hjá efna- meiri Siglfirðingum. Á stríðsárunum lá leið Huldu til Reykjavíkur þar sem hún bjó upp frá því að undanskildum fáum árum sem þau hjónin bjuggu í Neskaupstað um miðja öldina. Er til Reykjavíkur kom réðst Hulda í vist hjá Helgu Níelsdóttur ljósmóður og mynd- aðist góð vinátta við Helgu og hennar fjölskyldu. Búskap sinn byrjuðu þau Gunnar undir þaki Helgu, og aftur eftir að þau komu frá Neskaupstað og bjuggu þar uns þau fluttu í ný- byggt hús sitt að Tunguvegi 17 árið 1957. Það ár urðu þau þeirr- ar gleði aðnjótandi að fá lítinn dreng til ættleiðingar sem var þeirra eina barn. Hulda var mikil húsmóðir, gestrisin og naut þess að búa til mat og brauð helst fyrir marga, enda var hún listakokkur sem gerði einhvern besta mat og brauð sem ég hef fengið. Hún var líka mikil og flink handa- vinnukona, útsaumaðir stólar, stór mynd frá bernskuslóðum hennar í Aðaldal, púðar, dúkar og myndir bera handbragði hennar fagurt vitni. Á síðari ár- um var það hálsfestagerð, ker- amik og perlusaumaðar buddur. En jafnframt var heklað, prjónað og gert jólaföndur af ýmsum gerðum. Hulda var mikill lestrarhest- ur, ég held að hún hafi lesið flest- ar bækur sem til eru í minni eigu, til viðbótar því sem aðrir lánuðu henni. Það var ekki ósjaldan sem hún hringdi og spurði „áttu ekki eitthvað handa mér að lesa, ég er alveg allslaus“. Hún hafði líka mikla dægrastytt- ingu af að leggja kapal og hafði gaman af að spila gamla og góða vist. Vinátta Huldu og móður minnar var gömul og gróin, en þær kynntust hér í Reykjavík á fimmta áratugnum, skömmu eft- ir að faðir Huldu og amma mín rugluðu saman reytum sínum. Ég hef því alltaf litið á Huldu og systkini hennar sem hluta af móðursystkinum mínum og góða viðbót við stórfjölskylduna. Mér er í minni gleðin og til- hlökkunin þegar von var þeirra góðu gesta, Huldu, Gunnars og Ómars norður á sumrin. Hulda sem alltaf var einstaklega barn- góð hafði ótrúlega þolinmæði fyrir lítinn strák. Á árunum undir tvítugt naut ég oft gestrisni þeirra hjóna og því var alltaf tekið ljúfmannlega að skjóta skjólshúsi yfir dreng- inn, hvort sem næturnar voru ein eða fleiri. Ég man að á þessum árum sat Hulda oft við eldhús- borðið með handavinnu eða fönd- ur, þá var í uppáhaldi hjá henni að gera blómvendi úr litskrúð- ugum nælonsokkum og vír. Ennþá er einn slíkur til í stof- unni hjá mér. Nú að leiðarlokum er því margs að minnast og margt að þakka, því tómarúmið sem Hulda mín skilur eftir sig er stórt. Kæri Ómar, Bjarndís, Ísa- bella, Salóme og fjölskylda, ég votta ykkur samúð. Sveinn Valdimar Jónasson. Hulda Margrét Þorgeirsdóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURRÓSAR GRÍMSDÓTTUR frá Búðarflöt, Álftanesi. Gunnar Sigurðsson, Jóna Guðlaugsdóttir, Hallgrímur Sigurðsson, Sólveig Einarsdóttir, Bertha María Sigurðardóttir, Róbert Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eigin- konu minnar, systur og frænku, IÐUNNAR LÚÐVÍKSDÓTTUR, Tjarnarbóli 4, Seltjarnarnesi. Megi páskahátíðin vera okkur öllum styrkur á framtíðarbraut. Sigurður B. Oddsson, Gerður Lúðvíksdóttir, Styrgerður Hanna Jóhannsdóttir. Elsku langamma mín. Ég á erfitt með að trúa að þú sért farin til himna. Allar heim- sóknirnar til ömmu í pönnukökur og síðar meir á elliheimilið sitja fast í minni mér og ég mun alltaf vera ævinlega þakklát fyrir þær stundir sem við eyddum saman. Þú komst mér alltaf til að hlæja með þínum æðislega húmor og ég fór ævinlega ánægð og södd út frá þér. Þegar við vorum fyrir norðan hringdir þú oftast einu sinni á dag til þess fyrst og fremst að athuga hvort allir væru heilir heilsu, í öðru lagi baðstu guð um að vera með okkur og í síðasta lagi að passa okkur á hættunum. Mér Elín Sæmundsdóttir ✝ Elín Sæmunds-dóttir fæddist að Árnabotnum í Helgafellssveit 13. júlí 1919. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Víðihlíð 13. mars 2013. Útför Elínar fór fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 21. mars 2013. þykir svo vænt um öll þessi símtöl og ég mun sannarlega sakna þess að heyra röddina þína. Ég man þegar þú sagðir mér að passa mig á Reykjavíkurstelpun- um og vara mig á öll- um strákunum. Ég lofa amma, ég hef sko ekki svikið þig og alltaf farið var- lega því ég vil alls ekki að þú hafir neinar áhyggjur af mér. Ég vona að þér líði vel núna með langafa og getir gert allt sem þig lystir. Takk fyrir að hafa verið stór partur í lífinu mínu og leyft mér að taka allar myndirnar af þér á símann minn þótt þú fuss- aðir og sveiaðir eftir 15 myndir í sömu heimsókninni (skiljanlega). Jólin sem við áttum með þér voru yndisleg og hápunkturinn var að fá að syngja fyrir þig á aðfanga- dag, öll uppáhaldsjólalögin þín. Ég skal alltaf syngja fyrir þig á þessum hátíðardegi þau ár sem ég á eftir lifuð. Að lokum, elsku amma, vil ég segja þér að ég gat ekki getað sleppt því að gráta þegar ég fékk tilkynninguna um að þú værir far- in okkur frá. Þú hafðir sagt mér að sleppa því að gráta þegar þú myndir deyja því það myndi ekki skipta neinu máli. Ég mun einfald- lega sakna þín of mikið, amma, og þess vegna fór ég að gráta. Ég mun aldrei gleyma þér, mín kæra, þú varst einstök. Guð blessi þig. Það má svo sem vera að vonin ein hálf veikburða sofni í dá. Finnst vera eitthvað sem íþyngir mér en svo erfitt í fjarlægð að sjá. Það gilda má einu hvort ég áleiðis fer eða staldra hér ögn við og bíð. Þótt tómið og treginn mig teymi út á veginn ég veit ég hef alla tíð … verið umvafin englum sem að vaka hjá meðan mannshjörtun hrærast þá er huggun þar að fá. Þó að vitskert sé veröld þá um veginn geng ég bein því ég er umvafin englum aldrei ein, aldrei ein. Guðný Ósk Karlsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.