Morgunblaðið - 27.03.2013, Side 36

Morgunblaðið - 27.03.2013, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 ✝ Þorvarður G.Haraldsson fæddist í Reykjavík 24. mars 1943. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi föstudaginn 15. mars 2013. For- eldrar hans voru Haraldur Þorvarð- arson, f. 2. febrúar 1918, d. 5. júní 1998, og Sigurbjörg Kristín Valdimarsdóttir, f. 12. janúar 1925, d. 30. september 1971. Fósturforeldrar frá þriggja mánaða aldri voru föðurafi, Þorvarður Einarsson, f. 21. apríl 1885, d. 9. september 1960, og seinni kona hans Elínbjörg Jón- asdóttir, f. 10. maí 1889, d. 5. júlí 1980. Hinn 24. júní 1967 kvæntist Þorvarður Svanhildi Árnadótt- ur, f. 22. júní 1949. Börn Þor- varðar og Svanhildar eru Arnar Smári, f. 1966, maki hans er Kristín Hildur Thorarensen, f. 1967, börn Andri Freyr, f. 1993, d. 1999, Egill Þorri, f. 1995, og bæ sem Þorvarður byggði að miklu leyti sjálfur, þar sem þau hafa búið í rúmlega 40 ár. Þorvarður fór á samning 16 ára gamall og lærði dúklagn- ingar og veggfóðrun. Hann lærði hjá Einari Þorvarðarsyni dúklagningameistara og starf- aði svo fyrstu árin hjá Ólafi Ólafssyni dúklagningameistara en hóf að starfa sjálfstætt um 25 ára aldur og starfaði þannig alla tíð. Á fyrstu starfsárum sínum vann hann við dúklagningar og veggfóðrun á heimilum og op- inberum byggingum. Á rúmlega tíu ára tímabili starfaði hann að mestu leyti við dúklagningu og innréttingu breyttra bíla, sjúkra- og lögreglubifreiða og rútubifreiða. Hann var mjög eft- irsóttur í þá vinnu vegna vand- virkni sinnar. Á seinni árum starfaði hann við dúk- og flísa- lagnir í heimahúsum og fyrir- tækjum, ásamt því að vinna við dúklagningu og innréttingu langferðabifreiða hjá Reyni Jó- hannssyni í Lambhaga. Hann hafði gaman af hvers konar handverki og lék allt í hönd- unum á honum. Þorvarður var hæfileikaríkur í sínu fagi, góður handverksmaður og naut virð- ingar innan sinnar fagstéttar. Útför Þorvarðar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 27. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Elvar Orri, f. 2002. Sævar Freyr, f. 1968, maki hans er Guðríður Ingunn Kristjánsdóttir, f. 1968, börn Fannar, f. 1991, Arnór Freyr, f. 1993, Svanhildur, f. 1997, og Árný Margrét, f. 2001. Elínbjörg Katrín, f. 1970, maki hennar er Hinrik Rúnar Haraldsson, f. 1966, börn Gróa, f. 2002, Elín, f. 2008, og Þorvarður, f. 2009. Sig- urbjörg Kristín, f. 1975, barn Bjartey, f. 2012. Haraldur Árni, f. 1981, maki hans er Harpa Dögg Vífilsdóttir, f. 1982, barn Andri, f. 2011. Þorvarður ólst upp í Stykkis- hólmi, eyjunum Rifgirðingum austan Stykkishólms og bænum Jónsnesi vestan Stykkishólms, til 16 ára aldurs en fluttist þá til Reykjavíkur. Þorvarður kynnt- ist Svanhildi 21 árs gamall og hófu þau búskap í Kópavogi árið 1965. Árið 1972 fluttu þau í sitt eigið hús í Grenilundi 4 í Garða- Hjartkær vinur og eiginmaður, svo veikur, sagði hann við mig: „Það er svo vont að fara frá þér, ég hefði viljað að ég ætti tíu ár í við- bót með þér.“ Ég er svo góðu vön því Væi gerði allt fyrir mig. Mamma sagði alltaf við mig þegar ég var ung hvað ég væri heppin. Það er erfitt að horfa á vorið fram- undan og hafa hann ekki hjá mér þegar ég horfi á laukana koma upp í garðinum. Hann var mikill dundari og vildi hafa allt hreint og fínt. En hjá mér munu hlutirnir breytast og nýir hlutir gerast. Einhvern veginn fær maður styrk. Við ferðuðumst síðari ár til út- landa. Margar góðar ferðir voru farnar með Hópferðamiðstöðinni, þær voru yndislegar og nutum við þeirra mjög og eignuðumst góða vini. Ætlun okkar var að fara í eina svona ferð í haust en vegna veikinda minna frestuðum við henni og ætluðum okkur að fara nú í mars. Sú ferð var ekki farin vegna veikinda hans. Við ferðuð- umst einnig mikið innanlands þar sem tvö börn okkar og barnabörn búa á Vestfjörðum, ferðum okkar þangað fjölgaði með árunum. Það var yndislegt, börnin voru dugleg að fara með okkur um allt. Síðasta ferðalag okkar saman var haust- ferð til Þingvalla í september síð- astliðnum með rekstrardeild Ís- landsbanka þar sem ég vinn. Bæði ég og Væi viljum þakka öllum samstarfsmönnum mínum fyrir góðan styrk sem þau hafa veitt mér og skilning. Ég minnist þess þegar við fór- um vestur í dagsferð upp í Drápu- hlíðarfjall á Snæfellsnesi með nesti og bakpoka og gengum upp hlíðina og tíndum smásteina sem við ætluðum í kringum arininn í bústaðnum. En ég er mikið nátt- úrubarn og hann var alltaf til í það sem ég gerði enda áttum við góðar minningar um Drápuhlíðarfjallið. Síðan varð listaverk úr þessum steinum, lakkað og rammað inn í viðinn kringum arininn. Þegar við ferðuðumst sáum við ýmislegt úti í náttúrunni. Eins og margt annað áttum við mikla sam- leið saman í að búa til og skapa. Hann tók þátt í öllum hannyrðum og föndri með mér, vildi fylgjast með hvað væri verið að gera. Hann aðstoðaði með margt sem ég þurfti að gera, skera niður leð- ur og spjöld, sníða gardínur eða einhverja aðra vitleysu sem mér datt í hug eins og að mála hús á steina sem ég tíndi í fjörunni. Heimilið hjá okkur var okkar, þar má sjá mörg handverk eftir Væja. Væi leitaði aldrei til annarra um hjálp, í uppeldinu var svo ríkt að bjarga sér sjálfur. Við áttum svo mikið eftir að gera, ferðast meira. Sú hugsun var alltaf hjá okkur að eiga fyrir hlutunum. En við erum rík og eigum stóra fjöl- skyldu. Í huganum ertu ekki far- inn frá mér. Það er svo margt sem minnir mig á þig sem gleymist ekki. Nú ertu farinn og þér líður vel, eftir stutt veikindi, þessi hrausti Hólmari. Þín eiginkona, Svanhildur (Svana). Elsku pabbi, tengdapabbi og afi. Þegar ég var lítil stelpa fannst mér best í heimi að skríða upp í rúm til þín og kúra hjá þér. Mig langaði oft að gera það núna í veik- indunum þínum en ég er víst orðin of stór. Dætur mínar, Gróa og El- ín, tóku við af mér. Þér fannst allt- af gott þegar við vorum í heim- sókn í Grenó og þær komu upp í til afa og kúrðu hjá þér á morgnana. Ef þú vaknaðir á undan þeim varstu fljótur að hoppa upp í rúm og bíða eftir að þær kæmu að kúra. Þú hefur kennt mér margt og mikið í gegnum tíðina og er ég hreykin af því að hafa lært svona margt af þér. Þú varst líka lista- maður í höndunum. Þegar ég var lítil man ég líka eftir því þegar þú fórst með mér að kaupa fyrstu skólatöskuna. Hvað ég var montin með hana enda var hún appelsínu- gul. Þú keyptir líka handa mér fyrstu vínilplötuna mína, Hrekkjusvín, og kann ég hana enn þann dag í dag utan að. Þegar ég keypti mína fyrstu íbúð varst þú mættur að gera hana fína og dytta að. Þú sagðir líka oft að það kæmist nú varla meira dót þarna inn, þig hlyti nú samt að vanta kertastjaka. Þú gerðir mikið grín að dótinu mínu og komst oft í kaffi til mín þar sem þú spurðir hvort það væri ekki pláss fyrir eina hillu í viðbót í stof- unni. Í veikindunum sagði ég þér svo frá því að ég væri farin að safna kertastjökum, þú sprakkst úr hlátri og sagðir að ég væri nú löngu byrjuð á því. Þér fannst líka tilkomumikið að ég gæti lýst upp heilt sjávarþorp með kertunum því Hinni sagði þér eitt sinn að það sæist ekki þegar það yrði raf- magnslaust á Flateyri því það væri svo mikið af kertastjökum. Þegar Hinni minn kom í fjöl- skylduna tókstu honum vel og vor- uð þið góðir vinir. 17. ágúst 2002 eignumst við svo Gróu eða ís- bjarnarstelpuna hans afa. Þið vor- uð alltaf miklir vinir og töluðuð mikið saman í síma enda áttuð þið mörg leyndarmál saman. Hinn 7.7. ’07 giftum við Hinni okkur og varst þú svo stoltur af því að ganga með mér inn kirkju- gólfið. Þú varst jafnframt hrædd- ur að labba með mér inn og fannst mér það frekar fyndið þegar ég þurfti að toga í þig til að þú myndir ekki hlaupa með mig inn í kirkju. Um kvöldið klikkaðir þú ekki á að dansa við mig flottasta dansinn þinn, yndislegt. 17. mars 2008 átti ég svo Elínu og var hún skírð á 65 ára afmæl- isdaginn þinn. Ári seinna eða 6. febrúar 2009 kom nafni þinn í heiminn, Þorvarður. Það er ekki nóg með að hann beri nafnið þitt heldur er hann sko líka með skap- ið hans afa. Ég og Hinni skírðum öll okkar börn heima hjá ykkur mömmu með mikilli hjálp frá fjöl- skyldunni og fannst okkur alltaf vænt um það. Elsku pabbi, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og fjöl- skylduna mína. Við munum sakna þín mikið en við ætlum að tala mikið um þínar skemmtilegu minningar og elskum þig mikið. Takk fyrir allar góðu stundirnar með okkur. Þín dóttir, Elínbjörg Katrín og fjölskylda. Elsku pabbi, þú kenndir mér svo margt. Þú lést mig alltaf fara vel með peningana mína, lést mig vinna inn fyrir öllu og þjálfaðir mig upp í að vera handlaginn og hugsa vel um hlutina mína. Þegar ég var að alast upp áleit ég uppeld- ið mitt vera strangt og á köflum ósanngjarnt en ég sé í dag að það var boðskapur með þessu öllu saman. Í dag nota ég sömu form- úlu og þú notaðir á strákinn minn, formúlu sem virkar. Það á sko ekki að taka það sem sjálfsögðum hlut að eiga jafn góðan pabba og þú varst. Við áttum margt sameiginlegt. Við elskuðum báðir að ferðast. Við höfðum líka báðir mikinn áhuga fyrir tækjum og tólum. Við gátum smitað hvor annan af dellunni. Hvern hefði grunað að þú værir kominn með snjallsíma, iPod, iPad og iMac einungis ári eftir að þú lærðir fyrst á tölvu? Það þurfti ekkert að eiga réttu græjurnar, það þurfti að eiga flottustu græj- urnar. Þessu ætla ég að halda áfram og nota þig sem afsökun, pabbi valdi alltaf það flottasta. Hver á jafn svalan pabba og ég þegar ég stend 15 ára á ferðalagi með ykkur mömmu í Glasgow og þú splæsir á mig fyrsta bjórnum mínum? Eða hver á jafn rosalega flottan pabba sem lætur ekki segja sér það tvisvar þegar hann er beðinn um að fara yfir 200 km hraða á autobananum í Þýska- landi? Við vorum alltaf miklir félagar. Þegar ég svo eignaðist Andra kom fljótt í ljós að þið Andri voruð bestu vinir. Þú gafst Andra svo mikið og hann talar stanslaust um þig. Strætóinn sefur hann enn með, tveimur vikum eftir að hann fékk hann. Ég þarf að passa vel uppá að kenna Andra að smíða og mála, eða að kenna honum allt það sem afi hefði kennt honum í bíl- skúrnum. Andri var nú þegar byrjaður að suða um að fá að fara út í skúr. Þér til heiðurs ætla ég að hlaupa maraþon í sumar og styrkja Krabbameinsfélagið. Þú varst búinn að lofa mér því að sparka í rassgatið á mér síðustu metrana gegn því að ég myndi prófa að hlaupa úr Jónsnesi í Hólminn eins og þú talaðir svo oft um að þú hafir gert. Það er mikill söknuður af þér pabbi. Þrátt fyrir að þú sért farinn á betri stað heldur þú áfram að vera mér góð fyrirmynd. Ég ætla að nota þín trix til að verða jafn góður pabbi og þú varst. Við ætl- um að gera okkar besta til að Andri litli muni sem mest eftir afa Væja. Hvíldu í friði. Þinn sonur, Árni Þorvarðarson. Elsku pabbi, tengdapabbi og afi, takk fyrir allt saman. Það er sárt að sjá á eftir þér og mikill söknuður. Þakklæti er okkur í huga fyrir þann tíma sem þú lifðir með okkur og fyrir þau áhrif sem þú hafðir á okkur. Elsku pabbi, þú kenndir mér margt sem ég tileinka mér í dag. Þú kenndir mér að vera hjartahlýr og góður, með faðmlögum, snert- ingu, hlýju og væntumþykju, frá því að ég var barn, sem er mér af- ar dýrmætt. Þolinmæði og vand- virkni, að gefast ekki upp heldur að gefa mér tíma til að gera hlut- ina vel. Snyrtimennsku, að ganga vel um með virðingu fyrir hlutum og umhverfi. Einnig kurteisi og virðingu í framkomu við aðra. Það litla sem ég starfaði með þér í þínu fagi á unglingsárum mínum var mér einnig lærdómsríkt og dýr- mætt. Elsku tengdapabbi, í hjarta mínu geymi ég margar góðar minningar um þig. Frá þeim degi að ég kom í fjölskylduna hefur þú reynst mér vel og hefur samband okkar einkennst af hlýju, vænt- umþykju og gagnkvæmri virð- ingu. Þú varst einstaklega traust- ur og góður maður. Fjölskylda þín skipti þig öllu máli og var þér annt um velferð allra. Þú gladdist yfir sérhverju barnabarni og nutu þau mikillar ástúðar og vináttu frá þér. Minning þín lifir með okkur dag hvern vegna þinna góðu verka og hjartahlýju. Þú varst yndislegur og góður afi. Tókst okkur strákana í fangið nýfædda, gekkst með okkur um gólf, huggaðir og sýndir okkur umhverfið, klappaðir á bakið og knúsaðir. Það voru margar stund- irnar sem við undum okkur í bíl- skúrnum hjá þér við að smíða eða annað. Það var alltaf gaman með þér og ömmu í sumarbústaðnum. Í einni ferðinni þangað fékkst þú indjánanafnið Fljúgandi örn, sem við strákarnir snérum út úr og sögðum Fljúgandi önd, sem okkur öllum fannst voða fyndið. Við fór- um í indjánaleiðangur þar sem við lögðumst á magann á árbakkann og drukkum vatn úr ánni. Við bræðurnir vorum oft í hlutverka- leikjum og smíðaðir þú nokkur sverðin fyrir okkur sem bardaga- kappa eða prinsa. Ekki má gleyma köðlunum sem hver og einn okkar bræðra fékk og voru mikið notaðir í sumarbústaðnum. Þú kenndir okkur að draga fána að hún, sigldir með okkur á bátn- um þínum, fórst með okkur í fjöru- ferðir og gerðir svo ótalmargt fleira skemmtilegt með okkur, sem við munum minnast. Við fjölskyldan erum þakklát fyrir þær mörgu skemmtilegu samverustundir sem við áttum með þér og mömmu/ömmu í sum- arbústaðnum og við minnumst þeirra oft. Þar höfðum við það oft notalegt saman. Það var þér og okkur öllum í fjölskyldunni mikil sorg þegar Andri Freyr lést. Í byrjun þessa árs þegar það varð ljóst að þú varst með svo illvígan sjúkdóm, sem raun bar vitni, talaðir þú um að nú myndir þú fara til Andra Freys, sem átti svo stóran stað í hjarta þínu. Æðruleysi þitt og hversu opinn þú varst í veikindum þínum kenndi okkur öllum margt og sá tími, þó stuttur væri, var okkur sérlega dýrmætur. Það hjálpaði þér og ekki síður okkur, að takast á við þá erfiðu raun að kveðjast. Takk fyrir allt saman. Smári, Kristín, Egill Þorri og Elvar Orri. Nú er elsku pabbi minn dáinn, ég fæ því vart trúað. Ég sagði við þig um daginn að þetta væri vond- ur draumur sem ég vildi vakna upp af. Ég vildi ekki trúa að þetta væri að gerast. Þegar ég var að alast upp man ég eftir því að pabbi var oftast að vinna frá átta til sjö, og mamma var heimavinnandi á þeim tíma. Við fórum allra okkar ferða á Dartinum sem enn er til, pabbi og Smári gerðu hann svo upp seinna. Þegar við systkinin fermdumst voru herbergin okkar gerð alveg rosalega fín, nýtt teppi á gólf, þilj- ur settar á veggi og strigavegg- fóður með dökkbæsuðum trélist- um á samskeytum í mínu herbergi. Svo fékk ég nýjar græj- ur frá pabba og mömmu sem var rosaleg tilhlökkun að fá, pabbi valdi þær af stakri snilld. Pabbi passaði alltaf upp á að við systk- inin fengjum allt jafnt, það var hans hjartans mál. Sem ég mun einnig hafa til hliðsjónar varðandi mín börn. Þegar ég varð 17 ára og keypti fyrsta bílinn hjálpaði pabbi mér að velja hann, þar var ekki flanað að neinu. Það var vandlega skoðað hvað hann væri mikið keyrður og hve margir eigendur. Seinna lendi ég í því að velta bílnum á Austur- landsveginum, ég kem heim um morguninn, er lengi að safna kjarki til að fara inn í herbergi til pabba og segja honum frá þessu. Ég vakti hann og sagði honum allt að létta. Hann spurði: „Slasaðist einhver?“ Ég svaraði nei, þá róaði hann mig niður og sagði: „Þetta er bara járnadrasl, allt í lagi meðan enginn slasaðist.“ Þá gat ég sofn- að rólegur. Eftir að ég eignaðist mín börn hefur pabbi alltaf verið þeim góð- ur og þau hafa margt brallað með afa sínum. Þegar við fluttum vestur á firði vorum við í góðu símasambandi, sérstaklega eftir að pabbi hætti að vinna. Þá hringdi ég oft í hann og við ræddum um pólitík, þjóð- félagsmálin og þess háttar. Síðustu ár buðum við pabba og mömmu vestur á sumrin eða um páskana, þetta voru mjög minn- isstæðar heimsóknir. Við fórum t.d. síðasta sumar með þeim út í Vigur og Svalvogahringinn og það sprakk á bílnum á besta stað. Síð- asta daginn áður en þau fóru til baka fórum við öll saman á suð- urfirðina út Ketildali og á heima- slóðir Gísla á Uppsölum. Við breiddum út teppi á eyðibýlinu og drukkum kaffi og með því. Þetta sumar hugsa ég oft um og þakka Guði fyrir að hafa átt það með honum. Seinnipartinn í haust og fram yfir jól var pabbi lasinn og hresst- ist aldrei, sama hvað læknarnir gerðu. Í byrjun janúar tilkynnti mamma mér að pabbi væri með krabbamein. Eftir það fórum við flestar helgar suður til að geta verið sem mest með honum og mömmu. Ég man eina helgina hvað hann var glaður að hafa öll barnabörnin hjá sér í einu. Hann tók súrefn- isslönguna af sér, svo hann væri ekki með hana á myndunum sem voru teknar af ykkur öllum sam- an. Á líknardeildinni pumpaði ég margar gamlar sögur upp úr pabba, t.d. fyrstu kynni þeirra mömmu og eins fyrstu kynni við tengdaföður sinn og hvernig húsið heima í Garðabæ var hlaðið. Ég veit að heill her tekur á móti honum hinum megin, Andri Freyr, Þorvarður, Elínbjörg, Kolli og fleiri. Takk fyrir allt elsku pabbi. Sævar F. Þorvarðarson. Elsku tengdapabbi er látinn. Baráttan við krabbameinið var stutt og erfið. Eftir stendur fjöl- skyldan með tómarúm í hjartanu, þetta er allt svo óraunverulegt. Þorvarður stóð á meðan stætt var. Hann hélt húmornum og andlegri heilsu fram á síðustu stundu, þó að þrekið færi sífellt minnkandi gat hann alltaf grínast og sagt okkur sögur frá liðinni tíð. Ég minnist sérstaklega allra ferðanna okkar í sumar með Svönu og Væa, vítt og breitt um Vestfirði. Fyrir þann tíma sem við áttum saman þá er ég óendanlega þakklát. Við skoðuðum okkur um, dáðumst að náttúrunni, borðuðum nesti, spjölluðum, hlógum og höfð- um gaman. Það eru margar góðar minningar frá þessum ferðum. Elsku tengdapabbi, ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Elsku Svana, missir þinn er mikill. Guð gefi þér styrk til að takast á við söknuðinn og sorgina. Elsku Smári, Sævar, Ella, Kristín og Árni. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Guð geymi þig, elsku Þorvarður. Þín tengdadóttir, Ingunn. Elsku Væi. Það er skrítið að vera aðeins þrítug og vera að kveðja tengdapabba sinn. Það er nú pínu ósanngjarnt en hver sagði að lífið væri alltaf sanngjarnt. Við höfum verið heppin hingað til þú og ég, þú að hafa alið þennan brú- neygða stubb með stóru hendurn- ar og ég að vera svo vitlaus loksins að samþykkja að fara með honum í bíó. En gleymum því ekki að stubburinn átti að fara í lakið … hvar værum við nú án hans í dag! Þú gast alltaf hlegið að vitleys- unni í mér og tókst oft þátt í bull- inu. Daginn sem ég fékk æði fyrir að prjóna og svaf ekki í sólarhring þar sem ég þurfti að klára heilt teppi manst þú sjálfsagt alltaf. Mér fannst teppið misheppnað og áður en ég vissi af vorum við búin að kaupa flísefni, þú mættur með réttskeið á borðstofuborðið að mæla teppið út og sníða. Teppið er enn þann dag í dag skothelt. Þið Svana heimsóttuð okkur Árna til Köben árið 2007. Eftir þrjá daga þar sem var búið að rigna allan tímann og ég að missa geðheilsuna yfir því að þurfa að hafa tengdó hjá mér í þrjár vikur í viðbót bókuðum við bílferð niður til Ítalíu í góða veðrið. Við gistum í hjólhýsi ekki langt frá Gardavatni og þegar fór að líða á vikuna fór- um við hin, ég, Árni og Svana, að finna fyrir moskítóbitum. Þú hlóst mikið og sagðir að flugurnar hefðu nú aldrei bitið á hjá þér og hélst bara áfram að reykja vindil úti í garði á meðan við hin töluðum við þig í gegnum flugnanetið á hjól- hýsinu. Það er skemmst frá því að segja að þú varst hvað mest bitinn eftir ferðina, hver man ekki eftir; helvítis djöfulsins andskotans fluguhelvíti. Og þar hafiði það … Þegar Andri fæddist áttaði ég mig líka á hversu ótrúlega góður Þorvarður G. Haraldsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi (ísbjörn). Þú varst fyndinn og skemmtilegur og alltaf góð- ur við mig. Ég gat sagt þér allt og ég treysti þér alltaf. Þín besta ísbjarna-afa- stelpa. Gróa Hinriksdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.