Morgunblaðið - 27.03.2013, Page 38

Morgunblaðið - 27.03.2013, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Raðauglýsingar 569 1100 Tilkynningar Tillaga að breytingum á Stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs auglýsir hér með, skv. 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007 og í samræmi við 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, tillögu að breytingum á Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð ásamt umhverfisskýrslu fyrir breytingarnar. Tillagan er unnin í samræmi við 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð og byggir á tillögum að breytingum unnum af svæðisráðum fjögurra rekstrarsvæða þjóðgarðsins og á samráði við fjölmarga aðila. Stjórnunar- og verndaráætlunin er stefnumótandi áætlun um stjórnun, skipulag, náttúruvernd og aðra landnotkun í þjóðgarðinum. Um er að ræða fyrstu breytingu á Stjórnunar- og verndaráætlun frá því að hún var staðfest af umhverfisráðherra hinn 28. febrúar 2011. Breytingin felur í sér stækkun vestursvæðis þjóðgarðsins auk breytinga á vegum og ákvæðum um hefðbundna landnýtingu, tjöldun, hjólreiðar og fleira. Hluti breytinganna varðar atriði sem bundin eru í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008 m.s.br. og því gert ráð fyrir að henni sé breytt til samræmis. Tillagan er kynnt með eftirfarandi gögnum:  Stjórnunar- og verndaráætlun með öllum breytingum, sem lagðar eru til frá staðfestri útgáfu, skýrt auðkenndum.  Stjórnunar- og verndaráætlun í breyttri mynd samkvæmt tillögunni, aðeins birt á vef Vatnajökulsþjóðgarðs.  Greinargerð um breytingar samkvæmt tillögunni ásamt umhverfismati áætlunarinnar.  Uppfærður skýringaruppdráttur. Ofangreind gögn má sjá á vefnum www.vatnajokulsthjodgardur.is Gögnin munu liggja frammi til sýnis, á opnunartíma, á eftirfarandi stöðum, frá og með 27. mars til og með 10. maí 2013: á starfsstöðvum þjóðgarðsvarða í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Skaftafelli og á Kirkjubæjarklaustri, á skrifstofu Vatnajökulsþjóðgarðs, Klapparstíg 25-27, 4. hæð, Reykjavík, hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, og á skrifstofum Þingeyjarsveitar, Skútustaðahrepps, Norðurþings, Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps, Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Skaftárhrepps og Ásahrepps. Allir sem hagsmuna eiga að gæta og aðrir sem áhuga hafa, eru hvattir til að kynna sér tillögugögnin og senda athugasemdir og ábendingar. Síðasti skiladagur athugasemda er 9. maí 2013. Athugasemdum skal skilað skriflega til Vatnajökulsþjóðgarðs, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík, eða í tölvupósti á netfangið sogv@vjp.is, með nafni, kennitölu og heimilisfangi viðkomandi. Að loknum athugasemdafresti gengur stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs frá endanlegri tillögu að breytingu á Stjórnunar- og verndaráætlun, til staðfestingar umhverfis- og auðlindaráðherra. 27.3. 2013, Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs. BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071 Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingum á deiliskipulagi í Reykjavík. Grandavegur 44. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Lýsisreits vegna lóðar nr. 44 við Grandaveg. Í breytingunni felst heimild til að byggja fjölbýlishús með allt að 144 íbúðum. Á nyrðri hluta verði heimilt að byggja sex til níu hæða byggingu og á syðri hluta, tveggja til fjögurra hæða byggingu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Rauðarárholt, Brautarholt 7. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Rauðarárholt v/ lóðarinnar nr. 7 við Brautarholt. Í breytingunni felst að horfið er frá atvinnustarfsemi/ stofnun á lóðinni nr. 7 við Brautarholt, en þess í stað rísi á lóðinni byggingar sem hýsi litlar íbúðir / einingar fyrir stúdenta. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 27. mars 2013 til og með 13. maí 2013. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðunni, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega, til umhverfis – og skipulagsviðs, b.t. skipulagsfulltrúa, eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 13. maí 2013. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 27.mars 2013 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagssvið fasteignir Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bókhald Bókhald, launavinnsla, stofnun fyrirtækja og framtöl fyrir einstakl- inga og fyrirtæki. Sanngjarnt verð. Fyrirtæki og samningar ehf. Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík. S. 552 6688. Ýmislegt Plastmódel til samsetningar í miklu úrvali. Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is Finnið okkur á facebook. Teg. ACTIVE með spöngum fæst í 30-38 D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr. 9.750. Teg. ACTIVE - án spanga fæst í 32- 40 D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr. 9.750. Teg. 4457 - mjúkur, saumlaus í 75-90 B,C,D skálum á kr. 5.800. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, laugard. kl. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Teg. 11152 - mjög haldgóður í 75-95 D,E skálum á kr. 5.800.Atvinnublað alla sunnudaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Gisting Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri orlofshús við Akureyri og öll með heitum potti. orlofshus.is Leó 897 5300 Glæsilegir í íþróttirnar Fellihýsi Til sölu Palomino Colt fellihýsi 9 fet, árgerð 2005. Upplýsingar í síma: 699-8006. Hjólbarðar 33” Dick Cebek Radial til sölu 33x12,50R,17 lítið slitin, fyrir sanngjarnt verð. Uppl. S. 899 0675

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.