Morgunblaðið - 27.03.2013, Page 44

Morgunblaðið - 27.03.2013, Page 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hlutirnir ganga ekki sérstaklega smurt í dag. Taktu því með þolinmæði og brosi á vör. Sestu niður, búðu til óskalista og láttu hann síðan verða að veruleika. 20. apríl - 20. maí  Naut Persónutöfrarnir hafa aukist svo að fólk getur ekki að því gert að segja já við jafnvel þínum brjáluðustu hugmyndum. Leystu eigin vandamál áður en þú fæst við vanda annarra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú vekur athygli annarra og finnst notalegt að láta hana leika um þig. Njóttu þess með þeim sem hafa stutt þig og lagt hönd á plóg. Dyttaðu að heima og lagfærðu það sem bilað er. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að geysast fram með einhverjum bægslagangi. Eftir öll þau grettistök sem þú hefur lyft í lífinu, er ekki nema von að leitað sé til þín. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert of auðmjúkur í samskiptum við þína nánustu og þyrftir að vera fastari fyrir. Gleymdu þó ekki að líta inn á við og ekki eyða tíma í að kvarta. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert óvenjutilfinninganæm/ur og gerir því óvenjumiklar kröfur til annarra í dag. Gefðu þér tíma til þess að hlusta á einhvern sem þarf á því að halda, líklega vinkonu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlut- unum og dettur auðveldlega í dagdrauma. Leitaðu þér ráðgjafar í fjármálum og ekki taka neinar afdrifaríkar ákvarðanir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er kominn tími til þess að þú brjótir af þér hlekki vanans og bryddir upp á einhverjum nýjungum. Sýndu þolinmæði því viðkomandi er bara sendiboði. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér finnst þú þurfa að gera eitt- hvað en getur ekki nákvæmlega fest fingur á hvað það er. Líttu á þetta sem tækifæri til sjálfsskoðunar og til að íhuga hluti sem þú lít- ur yfirleitt framhjá. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhver gæti gefið þér góð ráð varðandi fjármálin í dag. En í raun og veru eru þau hvorki einföld né auðveld. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Horfur fyrir ferðaáætlanir eru ekki sérlega góðar núna. Ef einhver vandamál koma upp er best að ræða við viðkomandi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur margt betra við tímann að gera en sitja og finna upp á verkefnum. Leit- aðu þér samstarfsmanna áður en þú lendir í ógöngum. Steinunn P. Hafstað birti vísu áhverjum degi á fésbókarsíðu sinni í febrúar. Það er siður sem fleiri mættu taka upp til eft- irbreytni. Í síðustu færslunni, 28. febrúar, skrifaði hún: „Mér heyrist nú, að sumum finn- ist upphefð í að taka í höndina á frægri manneskju – tala nú ekki um ef nándin er meiri, og hvort sem menn tala nú opinskátt um það eða undir rós, þá rata svona ævintýri í fjölmiðla fyrr eða síðar. Hverjum er ekki sama, mundi nú einhver segja, en ef hundur á í hlut fara nú kannske að renna tvær grímur á suma. Ég man ekki betur en ég hafi lof- að, að upp mundi renna ljós fyrir dyggum lesendum pistla minna í lok mánaðarins, að hundalíf væri kannske þess virði að lifa því og því læt ég ykkur nú um að dæma, hvort satt er, um leið og ég kveð með þessum orðum: Fallegur er feldur hans, flestum líka reistari, oft mér býður upp í dans, enda salsameistari. Heldur vil ég hundalíf, en heiðríkju og tómlæti. Með hund í bandi sæl ég svíf – hann sómir sér í hásæti! Takk fyrir allt! Ég fullyrði, að þrátt fyrir að sumir hafi haft gam- an af þessari tilraun minni til að lífga aðeins uppá heldur dapra FB, þá hef ég örugglega skemmt mér mest og best yfir þessum skrifum!“ Pétur Stefánsson yrkir rándýra vísu, nema réttara sé að skrifa „rándýravísu“? Köttur, refur, úlfur, örn, eiturslanga, hvalur, minkur, tígur, maður, björn, mörður, skúmur, valur. Höskuldur Búi Jónsson yrkir í til- efni af mottumars: Nú er mottan mátuleg, mættur hress og vökull, samt er hlýjan heldur treg, hakan köld sem jökull. Nokkuð hefur verið um sléttu- bönd í vísnahornum undanfarinna daga, en þau eru gædd þeirri nátt- úru að hægt er að flytja þau aftur á bak og áfram. Hólmfríður Bjart- marsdóttir, Fía á Sandi, slæst í hóp- inn: Stuðið létta viljum vér, vekjum réttan anda. Puðið netta einmitt er, aðferð sléttubanda. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af hundalífi, mottumars og rándýravísu Í klípu „REYNDIRÐU AÐ ENDURRÆSA?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ MISSTIR AF MORGUNMATNUM, HANN VAR KLUKKAN 6 Í MORGUN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að bjóða í dans. ÞÚ GETUR TEKIÐ ÞESSA HÚFU AF ÞÉR NÚNA. HÉR ER LYFSEÐILL FYRIR ÞIG, HRÓLFUR. Í AUGLÝSINGUM FYRIR LYFIÐ ER SAGT AÐ ÞÚ EIGIR AÐ TALA VIÐ LÆKNI ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR AÐ TAKA ÞAÐ. ÞVÍ MIÐUR ER LÆKNIRINN ÞINN BARA OF UPPTEKINN TIL AÐ HLUSTA. Í ágúst árið 1969 fór Alvin Lee ham-förum á gítarinn á tónlistarhátíð- inni í Woodstock í New York í laginu I’m Going Home og dáðist fólk að því hvernig fingur hans fóru eins og eld- ing um hljóðfærið. Lee var einn af þeim mörgu bresku rokktónlistar- mönnum, sem heilluðust af banda- rískri blústónlist, sem ekki var í mikl- um metum heima fyrir, og sendu hana eins og bjúgverpil aftur til baka yfir Atlantshafið. x x x Lee lést 6. mars á Spáni 68 ára aðaldri. Kunningja Víkverja þótti andlát gítarhetjunnar fara lágt. Gít- arhetjan fæddist í Nottingham á Englandi 19. desember árið 1944. 1960 stofnaði hann hljómsveitina, sem síðar varð að Ten Years After. 1962 kom hann fram í Stjörnu- klúbbnum í Hamborg ásamt félögum sínum og mun það hafa verið skömmu eftir að Bítlarnir spiluðu þar í árdaga síns ferils. Ten Years After fékk plötusamning 1967 og fyrsta platan vakti athygli og var meðal annars leikin í útvarpi í San Franc- isco sem varð til þess að hinn þekkti tónleikahaldari Bill Graham buð henni að koma í tónleikaferðalag. Frammistaða hljómsveitarinnar á Woodstock varð svo til þess að Lee varð stjarna og hljómsveitin lék á leikvöngum um allan heim. Á Wiki- pediu kemur fram að Lee hafi síðar sagt að hann hafi saknað þess að spila í litlum tónlistarsölum þar sem nándin við hlustendum væri meiri. x x x Ten Years After gerði 10 plötur, enþar kom að Lee þótti tónlist hljómsveitarinnar of poppuð og ákvað að fara sína leið eftir aðra plötu hennar. Hann átti eftir að koma víða við. Sumarið 1978 varð Alvin Lee á vegi Víkverja. Þá var hann potturinn og pannan í hljómsveitinni Ten Years Later og kom fram á úti- tónleikum í þýska bænum Ulm, sem aðallega er þekktur fyrir foldgnáa kirkjuspíru, ásamt Joan Baez, Brand X, John McLaughlin, Frank Zappa og Genesis. Hápunkturinn hjá Lee var I’m Going Home eins og við var að búast og hann hafði engu gleymt. víkverji@mbl.is Víkverji Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætl- anir sem ég hef í hyggju með yður, seg- ir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður von- arríka framtíð. (Jeremía 29:11) GJÖRIÐ SVO VEL!Hafðu það hollt í hádeginu HAFÐU SAMBAND OG FÁÐU TILBOÐ! HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og næringaríkan mat í hádegi. Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.