Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Dansverkið Coming Up ersamstarf tveggja dans-ara innan Hreyfiþróun-arsamsteypunnar,
Katrínar Gunnarsdóttur og Mel-
korku Sigríðar Magnúsdóttur.
Efni verksins er sköpun dans-
verks með fullkomnum hápunkti;
hinu ógleymanlega augnabliki.
Verkið er tilraun til þess að snúa
út úr hefðbundinni uppbyggingu
dansverks. Það er sett saman úr
mörgum ólíkum þáttum eða til-
raunum til að finna hinn full-
komna hápunkt, en hápunktinn er
hvergi að finna.
Umfjöllunarefnið er sjálfur
miðillinn, dansinn innan leikhúss-
ins, sviðið og umgjörðin. Það sem
vanalega er falið er dregið upp á
yfirborðið og er mikilvægt í sýn-
ingunni. Það má nefna að lím-
bandið sem notað er til þess að
merkja staðsetningar á dans-
dúknum er notað sem rauður
þráður í gegnum alla sýninguna.
Verkið er þannig rammað inn
með hvítum dansdúknum sem
fyllist táknum og ummerkjum
sýningarinnar sjálfrar. Sviðs-
myndin er þannig mynduð úr
sjálfum sviðsdúknum sem vana-
lega er reynt að beina athyglinni
frá. En á dúknum var lítill flötur
þar sem öllum sviðsmunum verks-
ins var safnað saman á einn stað.
Þessi uppsetning hentaði hug-
myndafræði verksins mjög vel.
Fjölbreyttur hljóðheimur verksins
studdi mjög vel við það sem var
að gerast á sviðinu hverju sinni
og öll hljóð höfðu tilgang. Dans-
ararnir spiluðu sjálfir á hljóðfæri
auk þess sem tónlist og önnur
hljóð hljómuðu úr hljóðkerfi leik-
hússins.
Í verkinu fólst mikil sjálfs-
skoðun listamannanna sem skilaði
sér þó ekki að öllu leyti til áhorf-
andans, þess sem verkið var upp-
haflega gert fyrir. Þannig leið
áhorfendum kannski dálítið eins
og að þeir væru fluga á vegg.
Þessi nálgun var áhugaverð að
vissu leyti en áhorfendur gátu þó
fengið það á tilfinninguna að verk-
ið hefði fyrst og fremst verið gert
sem rannsókn eða tilraun lista-
mannanna sjálfra, fyrir þá sjálfa,
og þannig hefðu áhorfendurnir
gleymst í asanum. Til að mynda
gáfu dansararnir mjög misvísandi
skilaboð. Á köflum var erfitt að
átta sig á því hvort um leik væri
að ræða eða alvöru af hálfu dans-
aranna þar sem Katrín kom fram
sem dansarinn sem var að meina
það sem hún gerði þegar Mel-
korka sýndi mikinn leik í svip-
brigðum, rak út úr sér tunguna og
brosti. Þessi misvísandi skilaboð í
tjáningu dansaranna gerðu áhorf-
endur óörugga í skilningi sínum á
því sem fór fram.
Dansararnir eru leitandi frá
upphafi til enda, ekki er að finna
neitt einstakt upphaf né endi, það
er enginn hefðbundinn þráður sem
stefnir að einum hápunkti sam-
kvæmt viðteknum formúlum. Ein
uppbygging tekur við af annarri
og sumt er betra en annað. Sviðið
er vel nýtt og það vantar ekkert
upp á tilraunina. En það hefði þó
þurft fleiri hápunkta, fleiri eft-
irminnileg augnablik. Nokkrar til-
raunir báru af öðrum, þá má nefna
Edward Grieg-senurnar sem voru
frábærar. Þær voru bæði fyndnar
og vel unnar auk þess sem þær
dýpkuðu hugmyndafræði verksins,
þar sem listdansinn var borinn
saman við ólíkar tónlistarstefnur á
sannfærandi hátt.
Í heild var verkið nokkuð gott
og það skilur töluvert eftir sig, en
það voru fullmargir bláþræðir í
framvindu verksins.
Morgunblaðið/Ásdís
Sjálfsskoðun „Í verkinu fólst mikil sjálfsskoðun listamannanna sem skilaði
sér þó ekki að öllu leyti til áhorfandans,“ segir m.a. í dómnum.
Tilraun til að finna hinn
fullkomna hápunkt
Coming Up bbbmn
Coming Up eftir Katrínu Gunnarsdóttur
og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur úr Ís-
lensku Hreyfiþróunarsamsteypunni.
Dansarar: Katrín Gunnarsdóttir og Mel-
korka Sigríður Magnúsdóttir. Drama-
túrg: Símon Birgisson. Útlit sýningar:
Þyrí Huld Árnadóttir. Hljóðmynd: Bald-
vin Þór Magnússon. Lýsing: Garðar
Borgþórsson.
Frumsýning 22. mars í Tjarnarbíó.
MARGRÉT
ÁSKELSDÓTTIR
DANS
Sannkölluð kósýstemning
mun ríkja á Café Rósenberg,
þegar söngfuglarnir Krist-
jana Stefánsdóttir og Svavar
Knútur mæta hljómsveitinni
Robert the Roommate á svið-
inu í kvöld kl. 21. Meðlimir
beggja sveita munu samein-
ast og taka lög úr safni sínu,
en einnig flytja nýjar sam-
suður þar sem best er að
vænta hins óvænta. Svavar
og Kristjana eru jafnvíg á
lög Abba, Dolly Parton, Nicks Cave og Páls Ísólfssonar, auk frumsam-
inna laga og sígildra perla úr ýmsum áttum. Hljómsveitin Robert the
Roommate hefur spilað saman síðan vorið 2010 og gefur senn út sína
fyrstu plötu.
Kósýstemning á tónleikum með Svavari
Knúti og Kristjönu á Café Rósenberg
Söngfuglar Svavar Knútur og Kristjana ásamt
hljómsveitinni Robert the Roommate.
Að vestan nefnist sýning Vigdísar
Bjarnadóttur sem opnuð verður í
Gróskusalnum á Garðtorgi í dag kl.
17. Þetta er sjötta einkasýning Vig-
dísar og vísar heiti hennar til upp-
runa listakonunnar, sem er fædd og
uppalin í Ólafsvík. Guðrún hefur
stundað myndlistarnám um langt
skeið, m.a. í Myndlistaskóla Reykja-
víkur. Hún sækir sér hugmyndir í
nærumhverfi sitt á Álftanesi sem og
á Snæfellsnesi, en hún málar fugla,
fiska, fjöll og fossa. Sýningin er opin
kl. 14-18 alla páskadagana og lýkur
1. apríl.
Kríur Vigdís Bjarnadóttir málar
fugla, fiska, fjöll og fossa.
Að vestan í
Gróskusalnum
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.3:40-5:50-8-10:10
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.8-10:30
JACKTHEGIANTSLAYERVIP KL.3:10-5:30-8-10:30
THECROODS ÍSLTAL3D KL.3:40-5:50
THECROODS ÍSLTAL KL.3:40-5:50-8
DEADMANDOWN KL.5:50-8-10:20-10:40
OZ:THEGREATANDPOWERFUL2DKL. 5:20 - 8
FLIGHT KL. 10:10
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 3:40
KRINGLUNNI
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 5:50 -8 -10:10
JACKTHEGIANTSLAYER 3D KL.5:30-8-10:30
DEAD MAN DOWN KL. 8 - 10:20
OZ:GREATANDPOWERFUL3D KL.5:20
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.8-10:10
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.8-10:30
DEADMANDOWN KL.8-10:30
OZ:GREATANDPOWERFUL 3DKL.8-10:40
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.8-10:10
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.8
SNITCH KL.10:20
AKUREYRI
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 6 -8
JACKTHEGIANTSLAYER 3D KL.5:50-8-10:10
DEADMANDOWN KL.10:10
VIP
STÓRKOSTLEG ÆVINTÝRAMYND BYGGÐ
LAUSLEGA ÁÆVINTÝRINU UM JÓA OGBAUNAGRASIÐ
NICHOLAS HOULT - EWAN MCGREGOR
STANLEY TUCCI - IAN MCSHANE
88/100
CHICAGO SUN-TIMES –R.R.
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
FRÁBÆR NÝ ÍSLENSK GAMANMYND
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Heyrirðu fuglana syngja?
eða ertu að fara á mis við hljóð sem skipta miklu máli?
Komdu í
greiningu hjá
faglærðum
heyrnarfræðingi
Hugsaðu þér að þú getir auðveldlega fylgst með sérhverju samtali,
skynjað á réttan hátt hljóðin í kring um þig og getir án óþæginda verið í mjög mismunandi hávaða.
Eða með öðrum orðum getir á eðlilegan hátt hlustað á það sem þú vilt heyra.
Þetta er allt mögulegt með Verso, sem eru nýjustu og fullkomnustu heyrnartækin frá ReSound.