Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 52
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 86. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Óvissustig vegna Heklu
2. „Ekkert hjarta“ í Sævari
3. Keppandi í Survivor lést við tökur
4. Létust er þeir lentu á jörðinni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Húsfyllir var þegar rithöfundarnir
Auður Ava Ólafsdóttir og Sjón lásu
upp úr verkum sínum, Afleggjaranum
og Argóarflísinni, á Passa Porta-
bókmenntahátíðinni í Brussel. Fyrr um
daginn veitti Sjón, sem var hér áður
fyrr félagi í súrrealistahópnum
Medúsu, leiðsögn um safn myndlistar-
mannsins René Margritte í borginni.
Morgunblaðið/Valdís Thor.
Fjöldi gesta hlýddi
á Auði Övu og Sjón
Tölvuleikjafram-
leiðandinn CCP
hefur tilkynnt um
nýja viðbót við
tölvuleik sinn EVE
Online. Útgáfan
nefnist Odyssey
og gefur spilurum
leiksins aukin
tækifæri til að kanna leyndardóma
leikjaheimsins. Tölvuleikurinn verður
sífellt betur kynntur og er spilaður af
rúmlega hálfri milljón manna.
Nýir heimar opnast
spilurum EVE Online
Myndlistar-
konan Ólöf Dóm-
hildur Jóhanns-
dóttir ætlar að
selja hár sitt til að
fjármagna næstu
sýningu. Hún
hyggst gera ljós-
myndaverk þar
sem sést hvar
hárið er klippt af og selt og rennur
andvirðið í prentun ljósmyndanna.
Áhugasamir geta boðið í hár Ólafar á
vefnum bland.is. en í gær var hæsta
boð 60.000 kr.
Selur hárið til að
kosta listsýningu
Á fimmtudag (skírdag) Fremur hæg suðaustanátt. Léttskýjað
nyrðra og eystra, en skýjað sunnan- og vestanlands og skúrir eða
él, einkum við ströndina. Hiti víða 2-7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 3-10 m/s. Víða él, en skúrir með
suðurströndinni. Hiti 0 til 7 stig að deginum, mildast suðvestan-
lands, en frost 0 til 7 stig á norðaustanverðu landinu.
VEÐUR
Finnur Ingi Stefánsson úr
Val er leikmaður 21. og síð-
ustu umferðar N1-deildar
karla í handboltanum.
Hann er á leið með Vals-
mönnum í umspil um sæti
í deildinni og byrjar þar á
að mæta bróður sínum og
uppeldisfélaginu. „Það
verður sérstakt en gaman
og ég hlakka til,“ segir
Finnur Ingi. Úrvalslið 21.
umferðar er í blaðinu í
dag. »2-3
Mætir bróður
sínum í umspilinu
Eiður Smári Guðjohnsen og Ólafur
Ingi Skúlason eru að hefja úrslita-
keppni um belgíska meistaratitilinn í
knattspyrnu með liðum sínum. Eiður
segir sitt lið stefna á Meistaradeild-
arsæti og Ólafur vonast
líka eftir góðu gengi
en hann skrifaði
undir nýjan samning
í gær. »1
Eiður og Ólafur stefna
á Meistaradeildina
Í kvöld ræðst hvort það verður
Skautafélag Akureyrar eða Björn-
inn sem hampar Íslandsbikarnum í
íshokkíi karla en þau mætast í
oddaleik í Skautahöllinni á Ak-
ureyri. Tómas Tjörvi Ómarsson,
leikmaður SR, telur að heimavöll-
urinn sé ekki úrslitaatriði í einvígi
liðanna og möguleikar liðanna séu
hnífjafnir fyrir úrslitaleikinn. »3
Telur heimavöllinn
ekki ráða úrslitum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Að takast á við þetta verkefni
hafði blundað í mér lengi. Ætli það
hafi ekki verið; umfangið, stærðin
og dýpt verksins sem heillaði
mig,“ segir Sigurður Skúlason,
leikari sem flytur Passíusálma
Hallgríms Péturssonar í fimmta
og síðasta sinn í Hallgrímskirkju í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd,
föstudaginn langa. Þegar hlé verða
gerð á lestrinum mun Gunnar
Kvaran sellóleikari flytja tónlist
eftir Johann Sebastian Bach.
„Það er einstakt að flytja þenn-
an klassíska skáldskap þarna þar
sem andi Hallgríms svífur yfir
vötnum,“ segir Sigurður og bætir
við að lesturinn sé mjög krefjandi
en gefandi í senn. Galdurinn í
flutningi sé fólginn í því að huga
vel að jafnvægi, milli forms og inn-
taks sálmanna. Skáldagáfa Hall-
gríms heillaði Sigurð sem segir að
dýrmætt hafi verið að fá innsýn í
hugarheim sanntrúaðs manns sem
bjó yfir jafn heitri og djúpri til-
finningu í garð Jesú Krists.
„Söknuðurinn er strax hafinn.
Þeir eiga eftir að lifa með mér það
sem eftir er. Þegar þessi maður,
staða hans í heiminum og heit trú
fléttast saman í eitt þá verður til
eitthvað alveg stórkostlegt,“ segir
Sigurður um meistaraverkið, Pass-
íusálmana.
Viðeigandi staður
„Þetta var hugmynd Sigurðar,
og að sjálfsögðu tók ég vel í hana,“
segir séra Kristinn Jens Sigþórs-
son, sóknarprestur í Hall-
grímskirkju í Saurbæ. Hann
bætir við að haft hafi verið
á orði að það þætti viðeig-
andi að lesa Passíusálmana
þarna þar sem þeir eru ort-
ir. „Þetta er orðinn
ómissandi liður í
páskahaldinu,“ segir Kristinn en
töluvert stór hópur komi árlega og
hlýði á lesturinn í Hallgríms-
kirkju.
Þrátt fyrir að Sigurður Skúlason
lesi upp Passíusálmana í fimmta
og síðasta sinn á föstudaginn
munu aðrir taka við keflinu á
næsta ári. Að undirlagi Steinunnar
Jóhannesdóttur rithöfundar munu
þrjár konur skiptast á og lesa upp
Passíusálmana. Á föstudaginn
langa verður svokölluð píslarganga
frá Leirárkirkju og að Hallgríms-
kirkju í Saurbæ. Gönguleiðin er
um 16 km og tekur um fjóra
klukkutíma. Göngugarparnir munu
ná að mæta tímanlega til að hlýða
á lestur Passíusálmanna sem hefst
um klukkan hálftvö.
Einstakur skáldskapur
Les Passíusálm-
ana þar sem þeir
voru ortir
Ljósmynd/Dröfn Guðmundsdóttir
Passíusálmar Sigurður Skúlason mun flytja í fimmta og síðasta skipti Passíusálmana eftir Hallgrím Pétursson í
Hallgrímskirkju á Hvalfjarðarströnd föstudaginn langa, einnig mun Gunnar Kvaran sellóleikari flytja tónlist.
Hallgrímur Pétursson (1614-
1674) er þekktasta trúarskáld Ís-
lendinga. Hann varð prestur á
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd árið
1651 og fluttist þangað ásamt
konu sinni Guðríði Símonar-
dóttur. Passíusálmarnir eru
ortir þar og er kirkjan sem
þar er kennd við hann. Pass-
íusálmarnir eru verk sem
hefur fylgt þjóðinni í gegn-
um aldirnar. Þeir hafa
verið gefnir oftar út á íslensku
en nokkurt annað rit eða rúm-
lega áttatíu sinnum og verið
þýddir á fjölmörg erlend tungu-
mál.
Passíusálmarnir eru lesnir í
kirkjum víða um land á föstudag-
inn langa. Þeir eru fimmtíu tals-
ins og hver og einn er ætlaður til
flutnings á virkum degi á níu
vikna föstunni eða þannig að
lestri þeirra er lokið í dymbilviku.
Ritið sem er oftast útgefið
PASSÍUSÁLMARNIR EFTIR HALLGRÍM PÉTURSSON
Hallgrímur Pétursson