Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013
Það erum við sjálf sem velj-um okkur viðhorf,“ segirRagnhildur Þórarinsdóttir
sem í viðtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins ræðir opinskátt
um brjóstakrabbamein og lýsir
því hvernig hún fór að sjá heiminn
með nýjum gleraugum í kjölfar
krabbans.
Þegar sjúkdómar berja að dyr-
um er mikilvægt að muna að við
getum valið okkur viðhorf, þó að
við veljum ekki sjúkdóminn. Við
getum líka valið hvaða áskoranir
við tökumst á við, hvort við eltum
drauma okkar eða gerum það sem
við höldum að við eigum að gera
eða að aðrir vilji að við gerum.
Í blaðinu segir Erla Tryggva-
dóttir frá sjö ára göngu sinni með
ógreind sjúkdómseinkenni sem í
ljós kom að stöfuðu af sjúkdómn-
um endómetríósu. Í mörg ár var
hún þreytt, lasin og með mikla
verki án þess að læknar gætu fært
neinar skýringar á ástandinu.
Hún vill opna umræðuna og
hvetja konur til að taka ekki
verkjum, þreytu og orkuleysi sem
eðlilegum hlut heldur leita sér að-
stoðar og gefast ekki upp fyrr en
skýring er fundin. Erla er fædd á
alþjóðlegum baráttudegi kvenna
og er þakklát fyrir að eiga sterkar
konur að baki sér.
Söngkonan Hera Björk Þór-
hallsdóttir er ein af þeim sem elta
sína drauma hvert sem er. Hún
segir frá ævintýrum sínum í Síle.
Stelpurnar í hljómsveitinni
Angist völdu sjálfar sig þegar þær
ákváðu að segja bless við staðal-
ímyndir og stofna hljómsveit sem
spilar dauðarokk af hörðustu
gerð. Þær spila ánægjunnar
vegna og fá útrás í rokkinu.
Á þessum síðustu og verstu tím-
um (tímum skapabarmaaðgerða!)
er gott að geta horft til kvenfyr-
irmynda sem velja sér jákvæð við-
horf og eflast við hverja raun. Við
megum alveg velja okkur sjálf(ar).
RABBIÐ
Veljum okkur sjálf(ar)
Eyrún Magnúsdóttir
Um síðustu helgi var greint frá því í fréttum að bílaframleiðandinn Mini og samtök sem vinna gegn illri meðferð á dýrum; SPCA, Society for the Preven-
tion of Cruelty to Animals, ynnu saman að áhugaverðu verkefni. Tilgangur verkefnisins er að sýna að hundar séu gáfuð dýr og að enginn ætti að fara illa
með þá. Myndband þar sem hundurinn Porter keyrir Mini á lokuðu svæði hefur verið birt en þjálfari gengur með bifreiðinni og gefur skipanir.
Um svipað leyti var þessi hvutti í miðbænum svolítið rogginn með sig þar sem hann gægðist út um bílstjórarúðuna. Kannski hafði hann frétt af afrek-
um Porters. julia@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
KYNNIR SÉR MÁLIN
ÞAÐ VAR LÍKT OG HVUTTI ÞESSI SEM RÚNTAÐI NIÐUR LAUGAVEGINN Í VIKUNNI HEFÐI FRÉTT AF
FÉLAGA SÍNUM PORTER NOKKRUM SEM FÉKK AÐ SITJA VIÐ STÝRI MINI-BIFREIÐAR FYRIR STUTTU.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Minningar-
tónleikar um Önnu Pál-
ínu Árnadóttur.
Hvar? Salurinn.
Hvenær? Lau. kl. 20.30.
Nánar: Þennan dag
verða 50 ár liðin frá fæð-
ingu Önnu Pálínu sem lést 2004. Fjöldi
tónlistarmanna flytur lögin sem hún söng
og kynnt verður heimildarmynd um gerð
síðustu plötu Önnu Pálínu.
Lög Önnu Pálínu
Hvað: Kaffibrúsa-
karlarnir.
Hvar: Austurbæ,
Snorrabraut.
Hvenær: Laug-
ardag 9.mars kl.20.
Nánar: Kaffibrúsakarlarnir ásamt
gestaleikurunum Helgu Brögu og Lalla
töframanni. Miðar á www.midi.is.
Kaffibrúsakarlar
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað: Hitchcock-hátíð.
Hvar: Bíó Paradís.
Hvenær: Laugard. og sunnud. kl. 20.
Nánar: Vertigo verður sýnd á laugar-
dagskvöld og Psycho á sunnudagskvöld.
Kvikmyndaveisla
Hvað? Hið rómaða
Austfirðingaball.
Hvar? Spot.
Hvenær? Laugardag
kl. 23.59.
Nánar: Magni Ás-
geirsson og fleiri
Austfirðingar leika. Sérstakur gestur frá
Suðurlandi, Ingó veðurguð.
Veisla fyrir augu og eyru
Hvað? Bikarúrslit handbolta.
Hvar? Laugardalshöll.
Hvenær? Lau. og sun. frá kl. 13.30.
Nánar: Undanúrslit kvenna laugardag,
úrslitaleikir karla og kvenna sunnudag.
Úrslitastund runnin upp
Hvað: Tónleikar með Leaves.
Hvar: Ellefunni við Laugaveg.
Hvenær: Laugardagskvöld kl. 21.
Nánar: Hljómsveitin er að ljúka við
sína fjórðu plötu og kynnir nýtt efni.
Laufin hristast
* Forsíðumyndina tók Ómar Óskarsson.