Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaVísitala íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu fer hækkandi þótt heldur hafi hægt á frá því fyrir ári
Framundan eru gleðilegir fermingardagar en
þá má skipuleggja þannig að dagurinn verði
sem best heppnaður án þess að setja þurfi
daginn á raðgreiðslur. Þar gildir; margt smátt
gerir eitt stórt. Í stórum fjölskyldum sér-
staklega getur munað miklu ef fjölskyldu-
meðlimir leggjast á eitt og safna heimabakstri
saman á veisluborðið.
Eitt sem benda má önnum köfnum for-
eldrum, ömmum og öfum á er að heilmikið
af veisluveitingum má frysta og vinna sér
þannig í haginn. Á það síður en svo bara við
um kökur. Brauðrétti sem hita á seinna má
setja með öllu tilheyrandi; majónesi, smur-
osti og osti, inn í frysti. Þá má líka setja í ofn-
inn frosna en hita bara við vægan hita.
Hagsýnar húsmæður og -feður sem hafa
fermingarveisluna fyrripart dags hafa mörg
hver útbúið súpuveislu með kransaköku í
eftirrétt. Góð fiskisúpa er til dæmis kjörin og
skynsamleg leið til að halda góða veislu. Og
heimabakað brauð með, að sjálfsögðu búið
til með góðum fyrirvara og fryst.
GÓÐUR EN EKKI OF DÝR MATUR
Að mörgu að huga
fyrir fermingar
Frysta má brauðrétti sem hita á síðar. Það spar-
ar fyrirhöfn síðustu dagana fyrir fermingu.
Það kennir margra grasa á vefnum
www.vertuaverdi.is sem ASÍ heldur
úti en þar eru neytendur hvattir til
að koma með ábendingar um verð-
breytingar í verslunum með því að
senda inn skilaboð eða myndir á
vefinn.
Fjöldi fólks hefur brugðist við og
margar ábendingar eru komnar
inn. Þannig bendir einn neytandinn
á að heimilisbrauð í Bónus hafi
hækkað um nærri 10% milli mán-
aða og að Nóatún sé búið að
hækka jarðarberja-LGG um 15%
síðan í fyrra.
Þá hafi Krónan hækkað ávextina í
ávaxtamarkaðnum um tíu krónur,
úr 39 krónum stykkið í 49 krónur,
en ef keyptir eru 10 ávextir saman
fást þeir á 390 krónur eða 39 krón-
ur stykkið.
Þá segir á vefnum að hjóna-
bandssæla frá Myllunni, keypt í
Hagkaupum, hafi hækkað úr 799
krónum fyrir þremur vikum í 879
krónur á föstudag. Kaupandinn var
lítt hrifinn af þessari hækkun.
Sömuleiðis er hægt að láta vita af
því sem vel er gert og vekja athygli
á verðlækkunum.
Aurapúkinn
Morgunblaðið/Golli
hratt og það gerði fyrir ári.
Fimm manna fjölskylda í gamla
Vesturbænum, sem var í hópi nokk-
urra bjóðenda í áðurnefnda eign og
Sunnudagsblað Morgunblaðsins
ræddi við, kveðst hafa leitað að
réttu eigninni um langt skeið án
árangurs. Húsnæði í þeirra stærð-
H
æð og ris í gamla Vestur-
bænum sem nýverið var
auglýst til sölu á 46
milljónir seldist innan
fárra daga á 50 milljónir króna, eða
fjórum milljónum hærra en ásett
verð, og voru nokkrir um hituna.
Yfirboð voru algeng fyrir hrun og
þóttu ekkert tiltökumál, en sjaldnar
heyrist af þeim núorðið.
„Almennt er þetta nú ekki lýs-
andi fyrir það sem er að gerast á
markaðnum. En það er alltaf ein og
ein eign, helst í Vesturbænum og
miðbænum, sem fer á yfirverði. En
þetta eru undantekningartilfelli,“
segir Kristín Ólafsdóttir, sölufulltrúi
hjá Remax Alpha.
Velta í viðskiptum með íbúðar-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu hef-
ur aukist undanfarið. Veltan með
íbúðarhúsnæði var 13,9 milljarðar
króna í febrúar síðastliðnum, sem er
32,2% meiri velta en í febrúar 2012
samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Ís-
lands. Eins og bent var á í Morgun-
korni Íslandsbanka í vikunni hefur
veltan síðustu sex mánuði verið
26,3% meiri en hún var á sama
tímabili fyrir ári. Á sama tíma hafi
dregið úr verðhækkunum á íbúðar-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Verð hækkar áfram, en ekki eins
arflokki, 5-6 herbergja í vesturborg-
inni, vanti hreinlega á skrá.
Að sögn Kristínar er þetta ekki
óalgeng staða. „Að mínu mati er
gríðarleg vöntun á íbúðarhúsnæði,
þótt það hljómi ótrúlega þegar fólk
sér á mbl.is allan þann fjölda eigna
sem er á skrá. En ég myndi halda
að það væri ekki nema einn þriðji af
því sem eru eignir frá fólki sem er
raunverulega í söluhugleiðingum.“
Meirihluta eigna á skrá segir hún
vera frá fólki sem sé að kanna mál-
in án þess að vera endilega alvara
með því að selja, nema það fái afar
hátt verð. Framboðið sé því ekki
eins mikið og ætla mætti miðað við
fjölda skráninga á fasteignavefi.
Mörg dæmi séu um fjölskyldur
sem eru búnar að sprengja utan af
sér húsnæði. „Við komum inn á
heimili þar sem er fólk með þrjú
börn sem er enn í fyrstu íbúðinni
sem það keypti kannski fyrir ára-
tug,“ segir Kristín.
Morgunblaðið/ÞÖK
VERÐVÍSITALA ÍBÚÐARHÚSNÆÐIS HÆKKAR
Margir í fasteignaleit
Verðvísitala íbúðahúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu jan. 2010 – jan. 2013
Heimild: Þjóðskrá Íslands
360
350
340
330
320
310
300
290
280
Janúar 2010 Janúar 2013
Margir leita hentugra fasteigna og dæmi eru um fimm manna fjölskyldur sem hafa ekki getað hreyft sig úr sinni fyrstu íbúð. Jafnvel þótt fólk vilji kaupa er ekki víst
að rétta eignin sé í boði. Lítið er um stærri eignir í Vesturbænum norðan Hringbrautar. Eitthvað er um að eignir fari á yfirverði.
VELTA Í VIÐSKIPTUM MEÐ ÍBÚÐARHÚSNÆÐI HEFUR AUKIST UNDANFARNAR VIKUR EN HELDUR DREGUR ÚR VERÐ-
HÆKKUNUM. EIGN SEM AUGLÝST VAR NÝVERIÐ Á 46 MILLJÓNIR FÓR Á 50 MILLJÓNIR. YFIRBOÐ ERU ÞÓ ÓALGENG.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Þeir sem hyggjast fljúga innanlands geta spar-
að töluverðar fjárhæðir ef þeir hafa vaðið
fyrir neðan sig og panta flug tímanlega. Hjón
sem ætla í helgarferð til höfuborgarinnar
gætu leyft sér ýmislegt í borginni, sem þau
hefðu hugsanlega annars ekki ráð á, fyrir
mismuninn á hæsta og lægsta fargjaldi.
Nefna má sem dæmi, að hæsta verð fyrir
flug frá Akureyri til Reykjavíkur föstudaginn
22. mars nk. skv. vefsíðu Flugfélags Íslands í
gær er 19.790 krónur en það lægsta 8.790.
Sá sem pantaði í gær og vildi fara til baka
sunnudaginn 24. mars gat fengið farmiðann
norður fyrir minnst 9.140 kr. en mest gat sá
hinn sami borgað 20.140 kr.
Flug fram og til baka fyrir einn getur því
kostað 39.930 kr. en lægsta gjaldið var
17.930 kr. Fyrir mismuninn – 22.000 kr. –
væri t.d. hægt að fara út að borða á mjög
góðum veitingastað og í leikhús. Eða, fyrir
44.000 kr. sem hjón spara með því að panta
snemma, væri kannski hægt að kaupa fallega
flík handa konunni. skapti@mbl.is
INNANLANDSFLUG
Pantið flug tím-
anlega og sparið
Það er alltaf gaman að koma heim og e.t.v.
skemmtilegra en ella ef farmiðinn var ódýr.
Morgunblaðið/Kristján