Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 6
Einn af helstu dönsurumBolsjoí-ballettsins í Moskvu,Pavel Dmítrisjenkó, var á
fimmtudag ákærður fyrir að skipu-
leggja árás á Sergei Filín, stjórn-
anda ballettsins. Hann var sár fyrir
hönd eiginkonu sinnar og fannst
Filín hafa heft frama hennar við
ballettinn. Tveir aðrir voru einnig
ákærðir, árásarmaðurinn og öku-
maður hans.
Árásin átti sér stað skömmu fyrir
miðnætti 17. janúar. Filín var að
koma heim til sín eftir hátíðarsýn-
ingu og var kominn að dyrunum
þegar hann heyrði nafn sitt hrópað.
Filín sneri sér við og sá grímu-
klæddan mann fyrir framan sig með
aðra hönd fyrir aftan bak.
Óttaðist tilræði
Stjórnandi Bolsjoi-ballettsins hafði
óttast tilræði um nokkurt skeið og
var viss um að nú væri úti um sig.
Filín reyndi að flýja, en grímu-
klæddi maðurinn var snöggur og
tókst að sprauta framan í hann
brennisteinssýru. Bílastæðavörður
hljóp til Filíns og reyndi að þvo sýr-
una framan úr honum með snjó, en
hún hafði þegar brennt sig í andlit
hans og augu. Filín er nú kominn
undir læknishendur í Þýskalandi
þar sem verið er að reyna að bjarga
sjón hans og útliti.
Dmítrisjenkó, sem hefur sérhæft
sig í að leika óþokka og varmenni,
játar að hafa fyrirskipað árásina, en
neitar að hafa skipulagt notkun
sýru. „Ég vildi ekki skaða hann,“
sagði Dmitrísjenkó fyrir rétti fyrr í
vikunni þar sem hann sat fölur og
fár í búri í dómsalnum. Hann við-
urkenndi hins vegar að hann hefði
reiðst vegna hegðunar Filíns í starfi
listræns stjórnanda og hefur komið
fram að ágreiningur þeirra hafi snú-
ist um það að Filín neitaði að leyfa
rúmlega tvítugri eiginkonu Dmítr-
isjenkós, Ansjelínu Vorontsovu, að
dansa aðalhlutverkið í Svanavatninu.
Hinn meinti árásarmaður heitir
Júrí Sarútskí og bílstjórinn, sem
liggur undir grun, heitir Andrei
Lípatov. Allir þrír eru nú í gæslu-
varðhaldi.
„Ég sagði Júrí Sarútskí frá ref-
skákinni í Bolsjoí-leikhúsinu, brot-
unum, sem þar voru framin, og
spillingunni,“ sagði Filín í réttinum.
„Þá lagði hann til: „Ég skal lemja
hann.“ Og ég samþykkti það … Það
eina sem ég viðurkenni er að ég
hringdi í hann. Hann bað mig að
segja sér hvenær Filín færi úr leik-
húsinu. Ég sagði honum það, ég
játa það alfarið … En ég gat ekki
trúað því að þessi náungi, sem
bauðst til að berja hann, hefði notað
sýru. Ég var í losti.“
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013
HEIMURINN
VENESÚELA
CARACAS Hugo Chavez, forseti
Venesúela, lést eftir langt stríð við
krabbamein. Hann var vinstrisinni
og vandaði Bandaríkjamönnum ekki
kveðjurnar í ræðum sínum. Chavez
hafði gegnt embættinu í rúm 14 ár. Nicolas
Maduro, sem situr tímabundið á stóli forseta,
lýsti yfir sjö daga þjóðarsorg. Boða á til nýrra
kosninga innan 30 daga.
LETTLAND
RIGA Lettar sóttu formlega um að verða
átjánda landið á evrusvæðinu. Lettar voru fyrstir
þjóða í Evrópusambandinu til að sækja um
aðstoð frá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
2009. Nú er þar mesti hagvöxtur í Evrópu-
sambandinu. Andris Vilks, fjármálaráðherra landsins, sagði
umsóknina sögulega.
KENÝA
NAÍRÓBÍ Fyrstu niðurstöður forsetakosninganna í Kenýa bentu til þess
að Uhuru Kenyatta, sonur fyrsta forseta landsins eftir að það fékk sjálf-
stæði, hefði forustu á Raila Odinga. Fái hvorugur þeirra meirihluta verður
kosið á ný á milli þeirra, sennilega 11. apríl. Þegar kosið var 2008 braust út
alda ofbeldis, en að þessu sinni hafa kosningarnar farið friðsamlega fram.
KÍNA
PEKING Kínverjar
fóru í desember fram
úr Bandaríkjamönnum í
olíuinnflutningi og flytja
nú mest allra ríkja inn
af olíu í heiminum. Innflutningur
Bandaríkjamanna fór niður í 5,98
milljónir tunna á dag og hefur ekki
verið minni síðan í febrúar 1992.
Innflutningur Kína fór í 6,12 millj-
ónir tunna. Ástæðan er vaxandi
framleiðsla á olíu í Bandaríkjunum,
einkum úr leirsteini.
Bolsjoí-ballettinn er stærsti dans-
flokkur heims. Við hann eru 240
dansarar. Dönsurum, sem komast í
þann hóp, standa allar dyr opnar.
Samkeppnin innan dyra er gríð-
arlega hörð og ferill dansarans að-
eins í kringum tuttugu ár þannig að
tíminn er naumur. Hinn listræni
stjórnandi ræður því hver fær feit-
ustu bitana í „stríðinu um hlut-
verkin“ eins og það er kallað. Í
huga margra dansara er hann óvin-
urinn.
Gennadíj Janín varð stjórnandi
Bolsjoí 2009. Árið 2011 voru myndir
af honum settar á netið og sendar í
tölvupósti á 3.847 viðtakendur. Þar
sást Janín eiga mök við karlmenn.
Samkynhneigð er litin hornauga í
Rússlandi og hann hrökklaðist frá.
Filín tók við stöðu listræns stjórn-
anda í mars 2011 og hafði á prjón-
unum að nútímavæða dagskrána.
Vildu að Pútín viki Filín
Slíkar hugmyndir falla ekki í frjóan
jarðveg hjá þeim, sem vilja fara
troðnar slóðir og helst hafa mætur
á Svanavatninu og Hnotubrjótnum.
Þeir líta á nýjabrum sem óæskileg
vestræn áhrif. Nikolaí Siskaridse er
dansari við Bolsjoí-ballettinn og
helsti andstæðingur Filíns. Í nóv-
ember skrifuðu bandamenn hans,
leikarar og listamenn, opið bréf til
Vladimírs Pútíns forseta og kröfðust
þess að hann setti Filín af með til-
skipun og skipaði Siskaridse í stað-
inn.
Það var kannski ekki að furða að
samsæriskenningar beindust að
Siskaridse þegar árásin var gerð.
Einnig veltu menn vöngum yfir því
hvort svartamarkaðsbrask með
miða og spilling innan ballettsins
væri ástæðan og mafían hefði verið
á bak við tilræðið. Fæstir áttu hins
vegar von á að þessi glæpur myndi
nokkru sinni upplýsast.
Sýruárás
hefnd vegna
eiginkonu
Í JANÚAR VAR SÝRU SKVETT Á STJÓRNANDA BOLSJOÍ-
BALLETTSINS. SAMSÆRISKENNINGAR SPRUTTU UPP OG
MENNTAMÁLARÁÐHERRA LANDSINS TALAÐI UM TILRÆÐI
VIÐ RÚSSNESKA ÞJÓÐARSÁL. NÚ ER TILRÆÐIÐ UPPLÝST.
Galína Stepanenkó í hlutverki Odette og Sergei Filín í hlutverki Siegfrieds í Svanavatninu á sviði Bolsjoí-leikhússins 2001.
AFP
* Lífið er barátta – að berjast er að lifa.Húðflúr á líkama Pavels Dmítrisjenkós, aðaldansara við Bolsjoí-ballettinn, sem skipulagði árásina á Sergei Filín, stjórnanda ballettsins.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
Bolsjoí-leikhúsið er frá tímum Rússa-
keisara. Það var reist í lok 18. aldar og
hefur margsinnis verið endurreist eftir
bruna og gert upp. Leikhúsið átti að
vera minnisvarði um mátt Rómanov-
ættarinnar.
Eftir byltinguna 1917 héldu komm-
únistar flokksþing í byggingunni. Örn
keisarafjölskyldunnar var fjarlægður af
tjaldinu fyrir sviðinu og hamar og sigð
komu í staðinn. Þar voru einnig sýn-
ingar og er hermt að einræðisherrann
Jósef Stalín, sem hafði dálæti á óperum
og ballett, hafi látið grafa leynigöng úr Kreml í Bolsjoí-leikhúsið til
að komast beint í stúkuna sína. Bolsjoí merkir stór eða mikill.
Jósef
Stalín
BOLSJOÍ-LEIKHÚSIÐ