Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 20
Við komum tvisvar til þrisvar í viku og höfum gertundanfarin ár. Þetta þróast í það að vera meiri ogmeiri keppni,“ segir Kristján M. Hjaltested semspilar skvass í hádeginu í Veggsporti.
Fjölmargir spila skvass hér á landi og alltaf bætist í
fjöldann enda íþróttin gríðarlega hröð og skemmtileg. Flest-
ir spila í Veggsporti en vellir hér á landi eru alls 10 talsins
þar af fjórir í Veggsporti. Sporthúsið er með einn völl og
einn er á Akureyri. „Við erum fimm eða sex manna magas-
ín og róterum leikjum okkar á milli. Það eru margir mis-
góðir og sumir komnir lengra en aðrir og við fáum stund-
um að fara í salinn til alvöru leikmanna. Maður vill spila við
þá sem betri eru til að læra og verða betri.“
Keppnisskapið aldrei langt undan
Kristján var í hand- og fótbolta í gamla daga og segir að
sportið sé frábært til að taka við af því. Hraðinn sé mikill,
spilarar séu alltaf mjög nálægt og stuðið mikið inni á vell-
inum. „Ég þekki alveg keppnisíþróttir og það er alltaf gam-
an að skora stig og nudda andstæðingnum upp úr því þó
það sé allt gert í gamni.“
Þeir félagar hafa verið í hádeginu í skvassi í nokkur ár og
eru ekkert á leiðinni að hætta. „Við komum úr ólíkum átt-
um en hittumst þarna í hádeginu til að reyna að halda kíló-
unum frá okkur. Kostirnir eru margir við sportið. Maður
fer alltaf brosandi þaðan út og hlakkar til að mæta á ný.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KÍKT Í SKVASS Í VEGGSPORTI
Stuðsport
með spaða
Í SKVASSI ER HRAÐINN MIKILL OG STUÐIÐ
SÖMULEIÐIS. KRISTJÁN HJALTESTED ER
EINN AF ÞEIM SEM STUNDAR SKVASS OG
HEFUR GERT Í MÖRG ÁR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Kristján í gula bolnum
ásamt Grímkatli Sigþórs-
syni rétt fyrir leik. *Heilsa og hreyfingMataræði skiptir sköpum fyrir þá sem vilja tileinka sér heilbrigðan lífsstíl og hollustu »22
Skvass er spaðaíþrótt sem líkist badmintoni og tennis. Andstætt við þess-
ar íþróttir eru andstæðingarnir ekki hvor sínum megin við net heldur
hreyfa leikmennirnir sig hvor í kringum annan. Stig er hægt að fá í hverri
uppgjöf og skiptir ekki máli hvor aðilinn gefur upp. Boltinn má einungis
skoppa einu sinni í gólfið. Spilað er upp í 11 stig í hverri lotu og er spilað
best af 5 lotum. Allir boltar í leik eiga að lenda í framveggnum. Boltinn má
lenda í bakveggnum og hliðarveggnum áður en hann lendir í framveggnum,
nema í uppgjöf. Ef staðan er 10-10 þá er spilað þar til annar leikmaður nær
2 stigum meira en hinn og vinnur því leikinn. Útbúnaður er bara spaði og
bolti og góða skapið.
Tíu skvassvellir eru á landinu. Fjórir í Veggsporti, einn í Sporthúsinu,
tveir í fyrirtækinu Marel, einn í Samskipum, einn í MH og einn í Vaxtarækt-
inni á Akureyri.
SKVASS ER EINFÖLD ÍÞRÓTT
Fáar reglur og lítill útbúnaður
Skvass er bæði
fyrir karla og
konur.
Skvassboltar
duga lengi og
kosta lítið. Hér
er einn með
einni blárri
doppu sem þýð-
ir hraður bolti.
Ódýrt að byrja í skvassi
Það þarf ekki mikið til að prófa skvass. Byrjunarkostnaðurinn
er lítill enda þarf bara spaða, bolta og góða skó sem flestir
eiga.
Hægt er að leigja spaða til að byrja með til að athuga hvort
skvass sé fyrir þig og kostar það 450 krónur í Veggsporti.
Góður skvassspaði kostar í kringum 20 þúsund krónur en
hægt er að fá fína byrjendaspaða niður í sex þúsund krónur.
Best er þó að fá leiðbeiningar frá fagfólki í greininni þegar
velja á spaða. Það margborgar sig því skvassspaði og skvass-
spaði er ekki það sama. Þá kosta boltar lítið og duga fyrir
byrjendur í mörg ár.
Skvass er frekar einfaldur leik-
ur. Boltinn má skoppa einu
sinni, hann verður að fara í
framvegginn og ekki í línurnar.