Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013
Matur og drykkir
J ú, ég get í það minnsta sagt að þegar ég er ekki ólétt er égmjög dugleg að bjóða fólki heim í mat. Jafnvel tvisvar í viku.Kærastinn minn segir stundum; „Þetta er ekki veitingastaður,
þetta er heima hjá okkur!“ segir Hrefna Rósa Sætran og hlær.
Skiljanlegt er að sambýlismaður hennar, Björn Árnason ljósmyndari,
þurfi að minna Hrefnu Rósu á það enda á hún og rekur tvo veit-
ingastaði, Grillmarkaðinn og Fiskmarkaðinn. Hrefna er komin 38
vikur á leið en fyrir eiga þau Björn hann Bertram Skugga, fimmtán
mánaða.
„Ég ákvað að bjóða upp á kjúkling og setja hann í svolítið spari-
legan búning. Það er alltaf auðvelt að fá kjúkling og svo finnst mér
lykilatriði að hafa ferskt salat með honum sem og steikta sveppi.
Það er svo mikið af skemmtilegum spírum í búðum í dag að ég
ákvað að gera einfalt en ótrúlega gott spírusalat sem ég hef mjög
reglulega með mat en truffluolíuna nota ég spari.“
Eftirrétturinn er ekki síður fallegur en girnilegur en hann
skreytti Hrefna Rósa með trufflu-karamellum auk þess sem hún
hellti rjóma og karamellu yfir kökuna. „Eftirrétturinn er mjög í
anda þeirra sem maður sér til dæmis í bandarískum matreiðsluþátt-
um í sjónvarpi. Hann er meiriháttar góður eftir kjúklinginn.“
Að lokum segir Hrefna Rósa kunna því best að undirbúa mat-
arboð það vel að hún þurfi ekki að taka á móti gestum með allt í
steik og blautt hárið. „Hafa allt inni í ísskáp tilbúið sem má geym-
ast þar.“
Frá vinstri: Gréta Halldórsdóttir, starfsmaður á Grillmarkaðinum, Guðlaugur Frímannsson, matreiðslumaður og einn af
eigendum veitingastaðarins, Hrefna Rósa Sætran, Bertram Skuggi, 15 mánaða og húsbóndinn, Björn Árnason, ljósmyndari.
HREFNA RÓSA SÆTRAN BÝÐUR HEIM
Kjúklingur
og karamella
í eftirrétt
Feðgarnir bíða eftir matnum.
* „Eftirrétturinn er mjög íanda þeirra sem maðursér til dæmis í bandarískum
matreiðsluþáttum í sjónvarpi“
HREFNA RÓSA SÆTRAN BAUÐ HEIM Í KJÚKLINGA- OG
KARAMELLUVEISLU Í SKERJAFIRÐINUM.
Texti: Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Guðlaugur og
Hrefna Rósa
steikja sveppi
og útbúa salat.
Hrefna Rósa segir kjúklinginn vera í sparibúningi.