Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Meistarakokkurinn Hrefna Rósa Sætran er mikið fyrir að bjóða vinum og fjölskyldu í mat »32
Uppskrift fyrir fjóra
400 g saltfiskur
100 g valhnetur
salt
pipar
ĺímónubörkur
stjörnuanís
kóríanderfræ
2 rauðrófur
Aðferð 100 g saltfiskur, steikt-
ur á pönnu þar til hann er orð-
inn alveg skrælþurr, valhnetur
ristaðar á pönnu og saxaðar
niður. Salt, pipar og límónu-
berki bætt við og öllu blandað
saman.
300 g saltfiskur soðinn í vatni
með stjörnuanís, svörtum
piparkornum og kóríanderfræj-
um. Passa að sjóða fiskinn ekki
of lengi. 2 rauðrófur eru bak-
aðar í ofni í um klukkutíma,
látnar kólna örlítið, flysjaðar,
skornar í bita og svo er límóna
kreist yfir.
Salat
lollo rosso
klettasalat
lambhagasalat
ólífuolía
Aðferð Lollo rosso, klettasal-
ati og lambhagasalati er velt
upp úr smáólífuolíu.
Kryddjurtamæjónes
100 ml bragðlítil olía
dill
1 eggjarauða
sítrónusafi
salt
Aðferð Dill, klettasalat og af-
gangar af kryddjurtum sett sam-
an í blandara og látið malla þar
í um 10 mínútur. Látið kólna.
1 eggjarauða er hrærð út og
olíunni bætt smám saman út í.
Innan skamms byrjar blandan
að þykkna. Bætið kryddblönd-
unni við mæjónesið og sítrónu-
safa og salti eftir smekk . Setjið
í sprautubrúsa.
Sítrónuolía (dressing)
börkur af einni sítrónu
safi úr einni sítrónu
salt af hnífsoddi
bragðlítil olía
Aðferð Hitað í potti á mjög
vægum hita í nokkrar mínútur
og svo sigtað og kælt.
Setjið salatið á fjóra diska,
raðið rauðrófunum á salatið,
setjið sítrónuolíu á, sprautið
nokkrum vænum kryddjurta-
mæjóneshrúgum á salatið og
rífið saltfiskinn niður í flögur og
setjið ofan á. Endið á því að
setja mylsnuna á toppinn og
skreytið með dilltoppum og
söxuðum graslauk.
Þetta salat er brakandi ferskt
og ríkt af sítrus. Mjög gott sem
forréttur eða léttur hádegis-
verður. Það má mjög gjarnan
bera fram með því nýbakað
brauð með smjöri. Gangi ykkur
vel og verði ykkur að góðu.
E
ftir sigur í sjónvarpskokkakeppni var
áhugakokkinum Gunnari Helga Guðjóns-
syni boðið að reiða fram gestamatseðil á
Nauthóli. Gestir staðarins geta pantað
af seðlinum þessa helgi og verður boðið upp á
fjóra rétti. „Hér verða tveir réttir í hverjum
flokki, tveir forréttir, tveir aðal- og tveir eftir-
réttir. Ég reyndi aðeins að vinna í anda staðar-
ins og vera trúr sjálfum mér. Það passaði vel
saman,“ segir Gunnar Helgi sem var meira en
til í að deila uppskrift að saltfiski með lesendum.
Gunnar Helgi er myndlistarmaður að mennt
og vann í þónokkur ár við að setja upp listsýn-
ingar. „Svo ákvað ég að breyta til og fékk mik-
inn kaffiáhuga. Langaði að prófa það og fór að
vinna á Kaffismiðju Íslands. Er búinn að kanna
kaffiheima og það var mjög lærdómsríkt og
bragðlaukarnir eru komir í góða æfingu,“ segir
Gunnar sem laumueldaði lengi og hefur verið
annálaður kokkur í mörg ár.
Hann tók þátt í Masterchef þar sem hann
stefndi að sigri. Var ekkert að fara í felur með
það. „Ég var mjög glaður að vinna og það var
nokkuð óvænt því mér fannst margir keppendur
mjög góðir. Ég bjóst ekkert við að vinna en ég
ætlaði mér það samt sem áður.“ Gunnar Helgi brosir út að eyrum þessa dagana.
Ljósmynd/ozzo.is/Óli Haukur Mýrdal
GUNNAR HELGI GUÐJÓNSSON, SIGURVEGARI MASTERCHEF
Saltfiskurinn úr
úrslitaþættinum
GUNNAR HELGI GUÐJÓNSSON, SIGURVEGARI Í ÍSLENSKU ÚTGÁFUNNI AF
MASTERCHEF, DEILIR SIGURUPPSKRIFT SINNI AÐ SALTFISKI MEÐ LESENDUM
SUNNUDAGSBLAÐS MORGUNBLAÐSINS.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Saltfisksalat með rauðrófum