Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 52
Þórir Guðmundsson kallar sýningu sínaÁ vettvangi vonar og verður hún opn-uð í Gerðarsafni klukkan 15 í dag, laugardag, um leið og árleg sýning Blaða- ljósmyndarafélags Íslands. Þórir segir hugsunina að baki heiti sýning- arinnar vera tvíþætta. „Annars vegar að von- in getur orðið lítil þegar veruleikinn verður skyndilega erfiður, en hún getur hins vegar glæðst þegar hjálp berst og í ljós kemur að umheiminum er ekki sama. Hitt er að aldrei er hægt að byggja neitt upp nema von sé til staðar. Vonandi er hægt að lesa þetta gegn- um þessar myndir, því þótt sumar séu átak- anlegar þá færa þær vonandi líka einhverja von,“ segir Þórir sem er sviðsstjóri hjálp- arstarfssviðs Rauða kross Íslands. Undir það svið fellur meðal annars alþjóðaaðstoð, neyð- araðstoð, skyndihjálp og mál sem varða hæl- isleitendur og flóttamenn. Á sýningunni eru hátt í fimmtíu ljós- myndir sem Þórir valdi og vann með ómet- anlegri aðstoð Þorkels Þorkelssonar ljós- myndara. Ljósmyndaferill Þóris hófst þegar hann var sextán ára, en þá fór hann að vinna sem aðstoðarljósmyndari á dagblaðinu Vísi. „Það var fínt orð yfir það þegar krakkar voru sendir inn í myrkrakompu að framkalla myndir og stækka. Það voru mín fyrstu skref í blaðamennsku,“ segir hann. „Síðar fór ég til Rhode Island í Bandaríkj- unum að læra ljósmyndun og var þar í eitt ár; það leiddi til þess að ég missti áhugann á ljósmyndun og tók ekki mynd í fimmtán ár,“ segir hann og hlær. Þess í stað fór hann í háskóla að læra blaðamennsku og alþjóða- samskipti. „Ég fór ekki að taka myndir aftur fyrr en ég fór á vegum Rauða krossins til Mið- ÞÓRIR GUÐMUNDSSON SÝNIR LJÓSMYNDIR AF FÓLKI Í ERFIÐUM AÐSTÆÐUM „Var sendur þangað sem hamfarir voru í gangi“ Á LIÐNUM ÁRUM HEFUR ÞÓRIR GUÐMUNDSSON FARIÐ VÍÐA Í STARFI SÍNU FYRIR RAUÐA KROSSINN. SÝNING Á LJÓSMYNDUM HANS VERÐUR OPNUÐ Í GERÐARSAFNI UM LEIÐ OG ÁRLEG SÝNING BLAÐALJÓSMYNDARA. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Aðstæður geðveikra voru vægast sagt slæmar í Tadsjikistan. Þessir menn fóru út í lítinn bakgarð hælisins og sumir gengu þar hring eftir hring. Gömul kona í Úsbekistan held- ur hita á húsinu sínu með því að setja gaseldavél- arhellu á fullt. 52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013 „Öll él birtir upp um síðir“ er heiti sýningar á nýjum málverkum eftir Harald Bilson sem verður opnuð í Gallerí Fold við Rauðarárstíg á laugardag klukkan 15. Málverkin eru öll til sölu á sýningunni en sú gamla hefð verður endurvakin með nútímalegum hætti, að unnt verður að bjóða í óseld verk þegar sýning- unni lýkur. Einnig er hægt að bjóða í verkin meðan á sýningunni stendur, á sýningunni og á uppboðsvefnum Uppbod.is. Haraldur „Harry“ Bilson hefur notið vin- sælda víða um lönd fyrir list sína. Hann fædd- ist árið 1948 í Reykjavík en fluttist til Bret- lands á unga aldri. Móðir hans var íslensk, en faðir hans breskur. Hann hefur dvalist í fjór- um heimálfum við listsköpun og sýningar. HARALDUR BILSON SÝNIR UPPBOÐSSÝNING Verk Bilsons hafa notið vinsælda hér á landi og víðar. Þau verða boðin upp á sýningunni. Morgunblaðið/Golli Viskí tangó er fjórða leikrit Jóns Atla Jónassonar sem Útvarpsleikhúsið flytur. Morgunblaðið/Styrmir Kári Útvarpsleikhúsið á Rás 1 frumflytur á sunnu- dag klukkan 13 nýtt leikrit eftir Jón Atla Jón- asson, Viskí tangó. Í samantekt fjallar leikritið um mann og konu sem sitja í borg sem hefur lagst í eyði og hlusta eftir kallmerkjum í stuttbylgjustöð. Þau bíða nóttina af sér og deila minningum frá landi og borg sem er ekki lengur til, á milli þess sem þau hlusta eft- ir útsendingum frá talstöðinni. Leikendur eru Erling Jóhannesson og Arn- dís Hrönn Egilsdóttir. Hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson og leikstjóri er Jón Páll Eyj- ólfsson. Þetta er fyrsta leikritið sem Jón Páll stýrir í útvarpi. NÝTT ÚTVARPSLEIKRIT VISKÍ TANGÓ Þegar gítarsnillingurinn Jimi Hendrix lést í sept- ember 1928, aðeins 28 ára gamall, höfðu hundruð klukkustunda af leik hans verið hljóðrituð í hljóð- verum. Síðustu áratugi hafa tugir platna verið gefnir út með þessum upp- tökum á vegum dánarbús- ins, en nú er brunnurinn að tæmast. Á þriðjudag kemur út síðasta platan, „People, Hell and Angels“. „Við munum ekki gera fleiri plötur með þessum stúdíóupptökum,“ hefur The New York Times eftir öðrum upptökustjóranna sem hafa unnið í efninu á liðnum árum ásamt systur gítarleikarans. Hann gefur þó í skyn að fleiri upptökur með Hendix muni verða gefnar út. „Mikið er til af óútgefnu efni, því við eigum mikið af dásamlegum tónleika- upptökum,“ segir hann. SÍÐUSTU STÚDÍÓLÖG HENDRIX LOKAUPPTÖKUR Jimi Hendrix Sýning á verkum tveggja kvenna, sem eru í fremstu röð myndlistar- manna sinnar kynslóðar, verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á laugardag klukkan 15. Guðrún Einarsdóttir og Ragna Róbertsdóttir vinna báðar með efni sem tíminn hefur fengið að móta, og báðar vísa í eða vinna beint með náttúruna og náttúruleg efni. Guðrún blandar af þekkingu saman olíulitum og bindiefnum og vinnur tíminn síðan á litablöndunum sem hún skilur iðulega eftir á striganum mánuðum saman, þar til olíuliturinn hefur tekið á sig ákveðna mynd. Útkoman er málverk sem byggjast á hreinni efna- fræði en með sterkri skírskotun í náttúruna. „Ég vil myndgera inn- tak verkanna, náttúruna. Ég vil búa hana til aftur, með hinum ýmsu efnum, olíu og ýmsum verkfærum. Það er ekki frásögn í þeim, þau eru ekki beint fígúratíf, heldur er ég að endurgera náttúruheiminn,“ sagði Guðrún í viðtali í Morgunblaðinu fyrir nokkrum árum. Í sínum verkum vinnur Ragna með náttúruleg efni á borð við hraun, skeljar og sjávarsalt. Þesi efni veðrast og breytast í náttúr- unni og þar grípur Ragna þau, tekur þau og mótar úr þeim verk. „Ég er að safna þessum efnum, ár eftir ár, og síðan kemur að þeim tímapunkti að ég fer að hugsa um að nota þau í myndlistarverk,“ sagði hún í viðtali á dögunum. „Ég sortera efnin á vinnustofunni og kem síðan með þau í sýningarsalinn.“ Og þar verða verkin til. ATHYGLISVERÐ SÝNING Á AKUREYRI Náttúrumálverk og náttúruefni „Þau eru ekki beint fígúratíf, heldur er ég að endurgera náttúruheim- inn,“ hefur Guðrún Einarsdóttir sagt um málverk sín. Morgunblaðið/Einar Falur Ragna Róbertsdóttir við verk gerð úr skeljum á sýningu sem er í i8. Hún vinnur mikið með náttúruleg efni, eins og hraun, skeljar og sjávarsalt. Morgunblaðið/Einar Falur SÝNING GUÐRÚNAR EINARSDÓTTUR OG RÖGNU RÓBERTSDÓTTUR Í LISTASAFNINU Á AKUREYRI. Menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.