Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Page 15
ingar í kjölfar alvarlegs sjúkdóms
eins og krabbameins. Þær geta
verið róttækar. Ég hef svo sem
sömu gildin og áður en þau hafa
dýpkað og áherslur breyst. Margt
af því sem mér fannst stórt hefur
minna vægi í dag. Ég hef slakað á
því að taka bæði sjálfa mig og fólk-
ið í kringum mig of alvarlega. Hluti
sem voru ofsalega stórir og skiptu
rosalega miklu máli áður horfi ég á
í gegnum önnur gleraugu núna,“
segir Ragnhildur og klárar úr te-
bollanum sínum.
„Mér finnst líka gott að hafa
hugfast að það erum við sjálf sem
veljum okkur viðhorf. Við getum
ekki haft stjórn á öllu sem kemur
fyrir okkur en við getum valið
hvernig við tökumst á við hlutina.
Ýmis viðmið hvað varða útlitið hafa
líka breyst hjá mér. Ef mér hefði
verið sagt að það ætti að taka af
mér brjóstið fyrir ári hefði mér
fundist það hræðilegt en nú finnst
mér það ekki málið í stóra sam-
henginu. Ég hafði líka nánast alltaf
verið með sítt hár og mér fannst
mjög erfið tilhugsun að verða sköll-
ótt og missa augabrýrnar og allt
það en það er með það eins og ann-
að viðmiðið hefur svo sannarlega
breyst. Eins fór ég að endurmeta
margt annað í lífi mínu, eins og t.d.
mataræði, ýmis framtíðarplön og
bara fjölmargt í einkalífinu eins og
uppeldi barnanna minna og hvað
það er sem skiptir máli í lífinu.
Þegar ég lít til baka yfir síðasta
ár kemur mér helst í hug þakklæti
fyrir það að hafa komist í gegnum
erfitt tímabil með hjálp fólksins
míns og með stuðningi frá stöðum
eins og Ljósinu og því góða fólki
sem ég hef kynnst þar. Ég hefði
seint óskað mér þessarar lífs-
reynslu en hún hefur að sama
skapi kennt mér mikið og breytt
lífi mínu á margan hátt til batn-
aðar.“
Ragnhildur með
börnum sínum
Margréti Sól, Þór-
hildi Rósu og Eiríki
Erni Sveinsbörnum.
Morgunblaðið/Ómar
10.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Senn kemur vorið...
Túlipana
sýning um
helgina
Blómagallerí
Hagamel
Fyllum lífið af túlipönum