Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Síða 38
Farmers Market
sýnir nýjustu
afurðir sínar
á RFF.
REYKJAVÍK FASHION FESTIVAL
Uppskeruhátíð
fatahönnuða
*Föt og fylgihlutir Handtöskur úr flaueli og ull frá Elínu Hrund Þorgeirsdóttur verða sýndar á Hönnunarmars »40
Hátískan hefur alltaf kostað mikið.
Fræga og ríka fólkið borgar mikið,
stundum mjög mikið, fyrir fötin sem
það klæðist.
Á lista Forbes yfir ríkasta fólk ver-
aldar má finna þó nokkra sem
standa að baki vörumerkjunum sem
allir þekkja, ekki aðeins hátísku-
merkjum heldur ekki síður ódýrari
vörumerkjum sem rata oftar í inn-
kaupapokana. Þannig er Spánverjinn
Amancio Ortega sem á Zöru í
þriðja sæti yfir ríkustu menn veraldar.
Góðvinur Íslendinga, Stefan Pers-
son hjá H&M, er í 12. sæti listans en
eignir hans eru metnar á 28 milljarða
dala.
Tískan kemur sterk inn á listann
sem inniheldur 1.426 milljarðamær-
inga, en þekkt nöfn á borð við
Renzo Rossi hjá Diesel og félagana
Domenico Dolce og Stefano Gabb-
ana koma ný inn á listann í ár.
benedik@mbl.is
TÍSKUFRÖMUÐIR Á LISTA FORBES
Milljarða
mæringarnir
í tískunni
Á LISTA FORBES YFIR RÍKASTA FÓLK VERALDAR
MÁ FINNA MARGA TÍSKUFRÖMUÐI HEIMSINS.
Tískutopparnir
Þau auðugustu í heimi tískunnar samkvæmt Forbes
3. Amancio Ortega, Zara, 57 milljarðar dala
10. Bernard Arnault, LVMH, 29 milljarðar dala
12. Stefan Persson, H&M, 28 milljarðar dala
56. Phil Knight, Nike, 14,4 milljarðar dala
66. Tadashi Yanai, Fast Retailing, 13,3 milljarðar dala
78. Miuccia Prada, Prada, 12,4 milljarðar dala
131. Giorgio Armani, Armani, 8,5 milljarðar dala
145. Alain & Gerard Wertheimer, Chanel, 8 milljarðar dala
166. Ralph Lauren, Ralph Lauren, 7 milljarðar dala
248. Isak Andic, Mango, metin á 5 milljarða dala
248. Philip & Christina Green, Topshop, metin á 5 milljarða dala
276. Jin Sook & Do Won Chang, Forever 21, 4,5 milljarðar dala
458. Renzo Rosso, Diesel, 3 milljarðar dala
490. Chip Wilson, Lululemon, 2,9 milljarðar dala
503. Doris Fisher, Gap, 2,8 milljarðar dala
704. Nicolas Puech, Hermes, 2,1 milljarður dala
736. Carlo Benetton, Gilberto Benetton, Giuliana Benetton, Lu-
ciano Benetton, Benetton, 2 milljarðar dala
736. Domenico Dolce and Stefano Gabbana, Dolce & Gabbana,
2 milljarðar dala
1031. Paolo Bulgari, Bulgari, 1,4 milljarðar dala
1342. Christopher Burch and Tory Burch, Tory Burch LLC, 1
milljarður dala
1342. Sara Blakely, Spanx, 1 milljarður dala
Amancio Ortega,
Zara, metin á 57
milljarða dala.
Stefan Persson,
H&M, metin á 28
milljarða dala.
Ralph Lauren,
metin á 7 milljarðar
dala.
Giorgio Armani,
metin á 8,5
milljarðar dala.
REYKJAVÍK VERÐUR TÍSKUBORG Í FÁEINA DAGA ÞEGAR
REYKAVÍK FASHION FESTIVAL FER FRAM 14.-16. MARS.
HARPA VERÐUR MIÐDEPILLINN ÞAR SEM ALLT ÞAÐ
FLOTTASTA VERÐUR SÝNT Á PALLINUM.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
V
ið erum að fara að sýna nýja línu hjá Ellu og verðum von-
andi með skemmtilega sýningu,“ segir Elínrós Líndal, list-
rænn stjórnandi hjá tískumerkinu Ellu sem tekur þátt í
Reykjavík Fashion festival eða RFF. Ella er tiltölulega
nýtt fyrirtæki sem hefur verið að þróast í nokkur ár, var stofnað í
miðju hruni en blómstrar nú sem aldrei fyrr. „Við erum svo hepp-
in hjá Ellu að hafa frábæran viðskiptavinahóp sem eru konur á
öllum aldri. Það þykir okkur vænt um. Þetta eru konur sem
vilja góð efni og skemmtileg snið. Við höldum í það auk
þess að bjóða upp á nýtt. Við erum mikið að vinna með
bambus núna og líka með ný snið,“ segir Elínrós.
Fyrir rúmu ári fór undirbúningur á fullt fyrir nýju
línuna og segir Elínrós að „þýska aðferðin“ hafi
verið tekin upp hjá fyrirtækinu; ekkert er gert á
síðustu stundu. „Við vitum að það er bara eitt
prósent sem slær í gegn í tískunni og þá beit-
um við öllum ráðum til að ná því. Meðal annars
með skipulagi,“ segir hún róleg.
RFF mikilvæg fyrir fatahönnuði
Elínrós segir að þessi hátíð sé fatahönnuðum mikilvæg.
Þetta sé eins og að láta skíra barnið sitt eða jafnvel ferma.
Gleðin sé mikil enda komið að því að uppskera. „Þetta er
líka frábær stökkpallur. Nú sjáum við meiri viðskiptahlið á
þessu. Skapandi greinar eins og tíska skapa verðmæti í
þjóðfélaginu og það væri gaman að sjá tölur á bak við
tískuna.
Tískan endurspeglar tíðarandann og ef tískufyrirtæki
er á undan speglar það líka framtíðina. Línan okkar
núna táknar pínu gleði. Ella fæddist í hruninu og nú
erum við að fagna og við viljum vera til staðar þegar
konur fagna,“ segir Elínrós.
Guðmundur Jörundsson sýnir
það nýjasta frá JÖR á hátíðinni.
Lj
ós
m
yn
d/
Fr
ið
ri
k
Ö
rn
H
ja
lte
st
ed
Föt frá Ellu eru bæði þægileg
og flott.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Huginn Muninn tekur þátt í RFF, en
nánari upplýsingar um þátttakendur
má finna á vefnum www.rff.is.
Morgunblaðið/Ómar
Mundi vondi sýndi
í fyrra. Hann er nú í
samstarfi við 66°Norður.
Elínrós Líndal,
listrænn stjórnandi
hjá tískumerkinu Ellu.
Morgunblaðið/Eggert