Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Qupperneq 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Qupperneq 45
leitast við að ýta undir brölt Björns Vals. Hálmstráið, sem reynt er að hanga á, til að réttlæta áróðurs- herferðina, er að Seðlabankinn hefur, með vísan í lög sem um bankann gilda, hafnað því að birta samtal talsmanns bankans við forsætisráðherrann á þeim tíma. Sú synjun hefur aldrei verið borin undir þá tvo, enda telur bankinn að þeir eigi ekki aðild að málinu. Hið „dularfulla“ samtal hafði aðeins eina þýðingu. Það staðfesti að lánið var veitt með samþykki oddvita ríkisstjórnarinnar, efnahagsráðherrans, þess sem bankinn féll stjórnarfarslega undir. Um það hefur enginn efast. Synjun bankans er lögformleg ákvörðun sem Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur stað- fest. Hún myndi engu skipta nema vegna þess að einn af ómerkilegri stjórnmálamönnum landsins hefur reynt að nota sér þá synjun til að fara í pólitískan skollaleik. Bankinn liggur ekki einn á þessu samtali. Rannsóknarnefnd Alþingis hafði afrit af því og hefur vísast sent það Sérstökum saksóknara með öðrum gögnum. Ríkissaksóknari hefur vafalítið haft það líka þegar unnið var að ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi, sem Björn Valur tók sem þingmað- ur virkan þátt í. Þótti ekkert merkilegt þar Rannsóknarnefnd Alþingis gerði eins og kunnugt er aðeins athugasemd við tvö atriði sem þóttu duga til málamyndaáfellis gagnvart bankastjórn SÍ. Annað var um að bankastjórnin hefði svarað munnlegri fyr- irspurn munnlega en ekki skriflega og er þó hvergi deilt um svarið! Hitt var fyrir að hafa ekki, þvert á lögmætisregluna, látið sig hafa að ganga inn í lögboðið hlutverk Fjár- málaeftirlitsins varðandi tiltekið atriði í starfsemi LÍ. Ljóst má vera að þessi tvö furðuatriði voru hugsuð sem einhvers konar dúsa upp í æsingarlið. Og ekki vantaði að „RÚV“ gerði sér mat úr því er plagg nefnd- arinnar var birt. Þegar á það er horft var það stofnun- inni til háðungar. En lánið til Kaupþings náði ekki þvílíkri alvöru, að mati Rannsóknarnefndarinnar, eins og þeirri að hafa ekki svarað munnlegri fyrirspurn skriflega. Og hvern- ig skyldi standa á því? Það kann að hafa m.a. verið vegna þess að SÍ lánaði úr gjaldeyrisforða sínum, samkvæmt vilja og samþykki ríkisins, fjárhæð sem var tryggð með veði sem endurskoðaðir reikningar sýndu að nálgaðist að vera þrefalt virði lánsins sem veitt var. Ef reyna myndi á veðið myndi fjárhæðin skila sér í gjaldeyri, svo ákvörðunin hafði engin áhrif á forðann. Þessu til viðbótar, sem auðvitað var gætt að sleppa í hinni broguðu umfjöllum „spegilsins“, hafði verið leitað til Seðlabanka Danmerkur, sem staðfesti, eftir að hafa ráðgast við fjármálaeftirlit sama lands, að um mjög traustan banka væri að ræða og ekki væri nein sjáanleg ástæða til að efast um mat á stöðu hans. Bankinn væri að auki, eins og aðrir danskir bankar um þær mundir, með sérstakri tímasettri ríkisábyrgð Danmerkur. Þótt mánuðir eða ár hefðu verið fyrir hendi hefði ekki verið kostur á að sannreyna gæði veðsins betur en þarna var gert. Að auki var tækifær- ið notað til að taka allsherjarveð í FIH-bankanum og gat hann því staðið gagnvart öðrum skuldbindingum Kaupþings gagnvart SÍ en fólust í umræddu láni. Þegar þeir, sem Jóhanna og Steingrímur komu í Seðlabankann, með aðferðum sem eru kunnar, ákváðu eftir dúk og disk að snúa sér að sölu á FIH-bankanum er sagt, að staða hans hafi verið orðin önnur en þegar veð var veitt. Ef marka má fréttir var veðið, sem talið hafði verið yfirgnæfandi gagnvart láninu, af öllum sem áttu eða máttu vita, jafnvel ekki talið þá nægja fyrir því einu! Með hálfsannleik og spuna er svo reynt að láta málið líta svo út að bankastjórarnir þrír, sem hraktir höfðu verið frá bankanum, með einstakri póli- tískri ofsóknargerð, hafi einnig borið ábyrgð á síðbún- um sölutilburðum núverandi bankastjórnar SÍ og því, að síðari tíma atburðir í Danmörku kunni að hafa breytt gæðum veðsins. Björn Valur Gíslason hefur verið með þetta mál „til meðferðar“ í nokkur ár í fjárlaganefnd og lítt sparað dylgjurnar allan þann tíma. Framkoma hans er þó auðvitað fjarri því að vera í neinu fyrir neðan virðingu hans. En um taglhnýtinginn, fréttastofu „RÚV“, ætti auðvitað að gegna öðru máli, en það virðist ekki gera það. Allan þann tíma, sem þessi „fréttastofa“ hefur tekið þátt í ófrægingarherferð Björns Vals Gíslasonar, hlýt- ur hún að hafa hugleitt að spyrja hann, hverju fyrrver- andi bankastjórn hafi svarað á fundum sínum með fjár- laganefnd, þegar aftur og aftur hafi verið farið yfir málið á undanförnum árum. Varla dettur „fréttastof- unni“ í hug að bankastjórnin gamla hafi aldrei verið spurð um eitt né neitt allan þann tíma sem dylgjurnar og spuninn hafa staðið? Það getur varla verið. Morgunblaðið/Ómar 10.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.