Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Inniheldurplöntustanólester sem lækkar kólesteról MEÐ PLÖNTUSTANÓLESTER Í NÆRINGU EIN AF 10 STÆ RSTU UPPGÖTVUNUM Kólesteról er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma 2 fylgja fríttmeð ms.is/benecol Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, tekur í dag á móti formönn- um þeirra framboða sem náðu mönnum inn á þing í alþingiskosn- ingunum á laugardag. Á blaða- mannafundi á Bessastöðum í gær sagðist forsetinn vonast til þess að hann næði að funda með þeim öll- um fyrir kvöldið. Í kjölfarið myndi hann taka ákvörðun um hverjum þeirra hann fæli umboð til stjórn- armyndunar. Jóhanna Sigurðardóttir, fráfar- andi forsætisráðherra, gekk á fund forsetans í gær til að biðjast lausn- ar fyrir ríkisstjórn sína. Forsetinn féllst á þá beiðni en óskaði jafn- framt eftir því að Jóhanna leiddi starfsstjórn þar til ný ríkisstjórn hefði verið mynduð eins og hefð er fyrir. Þakkaði hann Jóhönnu fyrir vel unnin störf og forystu hennar undanfarin ár. Forsetinn sagði eftir fund þeirra forsætisráðherra að sér væri nauð- synlegt að kynna sér viðhorf allra flokkanna sem ættu fulltrúa á þingi til að geta metið á raunsæjan hátt hverjum hann fæli umboð til þess að mynda nýja stjórn. Horfir til fleiri þátta Ólafur Ragnar lét í veðri vaka að það væri ekki aðeins þingstyrkur- inn eða hverjir gætu talist sigur- vegarar kosninga sem réði úrslitum um það hverjum yrði falið stjórn- armyndunarumboðið. „Það er eindregið mín skoðun að sá lærdómur blasi við að þó að þingstyrkur sé nauðsynleg forsenda fyrir farsælli ríkisstjórn þá hefur atburðarásin á undanförnum árum sýnt að víðtækur þjóðfélagslegur stuðningur og samstaða á meðal þjóðarinnar eru líka brýn forsenda þess að vel takist til í stjórnarfari,“ sagði hann. Að öðru leyti sagðist forsetinn myndu hafa í huga þær venjur sem hefðu mótast á lýðveldistímanum við ákvarðanir um stjórnarmyndun. Hann var spurður hvort formanni Sjálfstæðisflokks eða Framsóknar- flokks, tveggja stærstu flokkanna eftir kosningarnar, yrði falið um- boðið. Ólafur sagði að það hefði verið með ýmsum hætti hverjum hefði verið fengið umboð til stjórnar- myndunar í gegnum söguna og benti á að eftir því sem hann kæm- ist næst hefði ekki áður komið upp sú staða að tveir stærstu flokkarnir hefðu sama fjölda þingmanna. Það væri ekki sitt að kveða upp dóm um hverjir væru sigurvegarar kosning- anna. Markmiðið væri að tryggja að mynduð yrði ríkisstjórn á farsælan og öruggan hátt. Forsetinn tæki ekki aðeins mið af stærð flokkanna eða árangri í kosn- ingunum heldur einnig hvað for- menn hinna flokkanna hefðu að segja. Sagðist hann myndu verða í betri stöðu til að tjá sig eftir að hafa hlýtt á formennina í dag. Líklegast er talið að oddviti ann- aðhvort Framsóknarflokks eða Sjálfstæðisflokks, sem hafa flesta þingmenn eftir kosningarnar, fái stjórnarmyndunarumboðið. Í um- ræðuþætti á Stöð 2 í gærkvöldi kom fram að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefði verið boðaður á fund forsetans klukkan ellefu fyrir hádegi í dag en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, eft- ir hádegið. Forsetinn ætlar að ræða við formenn allra flokka í dag Morgunblaðið/Kristinn Lausn Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, ræða saman.  Þingstyrkur og fylgisaukning ekki einu skilyrði stjórnarmyndunarumboðs Maður sem skar níu ára stúlku á háls með hnífi í Hafnarfirði á laugardag er kominn í lækn- ishendur. Hann var nýútskrifaður af geðdeild þegar hann réðst á stúlkuna þar sem hún var á gangi ásamt jafnöldru sinni. Stúlkan er nokkuð slösuð en ekki talin í lífs- hættu. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu urðu maður og kona vitni að árásinni og hrópaði konan svo að styggð kom að manninum. Að svo búnu hljóp hann á brott og kastaði hnífnum í fjöruna við Herjólfs- götu. Maður konunnar elti mann- inn og hélt þar til lögregla kom á staðinn. Hnífurinn fannst í fjörunni þeg- ar fjaraði á laugardagskvöld en fyrr um daginn höfðu kafarar leit- að hans í sjónum. Málið telst upp- lýst samkvæmt upplýsingum lög- reglu. Skar níu ára stúlku á háls „Veður verður áfram í kaldara lagi. Það verður einhver dæg- ursveifla í hitanum en frost verður á næturnar fram eftir viku. Við munum hins vegar ekki sjá eins mikinn vind og hefur verið,“ segir Haraldur Ei- ríksson, veð- urfræðingur hjá Veðurstofu Ís- lands, um veð- urhorfur næstu daga. Allhvasst var á Norður-, Austur- og Vesturlandi í gærmorgun. Vindur fór mest upp í 29 metra á sekúndu í Æðey á Vestfjörðum og upp í 27 metra á sekúndu í Bláfeldi á Snæfellsnesi. Mestur snjór var á Austurlandi, auk þess sem vindstyrkur fór upp undir 20 metra á sekúndu. Ekkert tjón varð þó af veðrinu, sam- kvæmt upplýsingum frá Neyð- arlínunni. „Lægðin sem veldur þessu er að fjarlægjast,“ segir Haraldur. Hann gerir ráð fyrir því að seinni partinn í dag verði veður orðið stillt víðast hvar um landið. vidar@mbl.is Minni vindur en kalt fram eftir vikunni Rok Víða var hvasst í gær. Börn sem tóku þátt í barnamenningarhátíð stóðu fyrir því á laugardag að kríta hjólaleið á torgið framan við Hörpu. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í síðustu viku hef- ur hjólreiðafólk slasað sig og sprengt dekk á varasömu torginu. Sesselja Traustadóttir er framkvæmdastýra Hjólafærni á Íslandi sem er fræðasetur um samgöngu- hjólreiðar. Hún segir torgið framan við Hörpu þekkta slysagildru og að upp hafi komið hugmynd um að börn- in myndu mála listastíg fyrir hjólreiðafólk í gegnum torgið. Það reyndist hins vegar torsótt þar sem það var háð samþykktum nokkurra aðila. „Lendingin var sú að ég keypti nokkur kíló af krítum sem notaðar voru í að búa til listastíg. Hann fær í það minnsta að vera fram að næstu rigningu. Vonandi er þetta fyrsta skrefið að því að þarna komi varanlegur stígur sem eykur öryggi hjólreiðafólks,“ segir Sesselja. Barnamenningarhátíð lauk í gær en hún hófst á þriðjudag. Á henni var staðið fyrir margvíslegum menningarviðburðum og var listastígurinn gerður í tengslum við hátíðina. vidar@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Á listastíg Hin 15 ára gamla Hugrún Britta Kjart- ansdóttir var listrænn stjórnandi og yfirteiknari lista- stígs fyrir hjólreiðafólk á Hörputorgi. Börnin gerðu listastíg fyrir hjólreiðafólk á Hörputorgi Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, gaf fjölda fjölmiðlamanna, sem beðið höfðu á meðan hún fundaði með forsetanum á Bessastöðum í gær og baðst lausnar fyrir stjórn sína, ekki tækifæri til að ræða við sig að fundinum loknum. Ólafur Ragnar Grímsson forseti var spurður um þetta á blaðamannafundi eftir fund þeirra Jóhönnu. Hann sagði forsætisráðherra hafa talið sig hafa þegar sagt allt það sem hún vildi segja við fjölmiðla í kjölfar kosn- inganna. Hann hefði virt þá afstöðu hennar að hún teldi ekki ástæðu til að ræða við fjölmiðla. „Við áttum mjög ítarlegan, efnismikinn og góðan fund. Við ræddum ákvörðun hennar [að hætta í stjórnmálum], framhaldið, niðurstöður kosninganna, mat á stöðunni og ýmislegt sem þarf að hafa í huga næstu daga,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann var einnig spurður út í feril Jóhönnu sem forsætisráðherra. „Þetta hefur verið einstaklega erfitt tímaskeið hjá okkur öllum Íslend- ingum og enginn verið öfundsverður af því að þurfa að stýra ríkisstjórn. Margt hefur tekist vel á þessum árum en eins og allir vita eru mörg verk enn óunnin. Þess vegna skiptir máli að menn vandi sig vel við ríkisstjórn- armyndun,“ sagði forsetinn. Jóhanna ekki öfundsverð BAÐST LAUSNAR FYRIR RÍKISSTJÓRNINA Jóhanna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.